03.05.1984
Efri deild: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5168 í B-deild Alþingistíðinda. (4551)

25. mál, lántaka Áburðarverksmiðju ríkisins

Eiður Guðnason:

Herra forseti.Ég skrifaði undir þetta nál. með fyrirvara og ég vil geta þess í hverju sá fyrirvari einkanlega felst og skal ekki hafa um það mörg orð. Hann felst fyrst og fremst í því að hér er um að ræða ríkisfyrirtæki þar sem hafa verið rekstrarvandræði árum saman vegna þess að framleiðslan hefur ekki verið seld á því verði sem hún kostar. Hér er enn einn þáttur í hinu margumtalaða landbúnaðardæmi þar sem er verið að greiða niður með ýmsum hætti rekstrarvörur til landbúnaðarins. Ég veit ekki hvað hæstv. fjmrh., sem hefur fengist við viðskipti lengi, segir um þá rekstrarhætti, sem þarna hafa verið viðhafðir. Sem sagt, framleiðslan er ekki seld á því verði sem hún hefur raunverulega kostað, tekin eru lán með allt að því afarkjörum og síðan stundar verksmiðjan lánastarfsemi með allt óðrum kjörum. Svona getur ekkert fyrirtæki gengið til lengdar. Þarna verður að taka á með einhverjum hætti.

Það var auðvitað engrar undankomu auðið í þessu máli eins og kom fram hjá hv. frsm., 4. þm. Norðurl. v. Það var þegar búið að ráðstafa því fé sem hér um ræðir. Það er satt að segja ekki til fyrirmyndar hvernig að þessum málum er staðið og þetta er ekki nýtt vandamál. Þetta vandamál hefur verið hér uppi í umr. á Alþingi oft áður. Það er í þessu sem minn fyrirvari fyrst og fremst er fólginn. Um þetta mætti hafa mörg orð og miklu fleiri, en ég ætla ekki að segja margt frekar að þessu sinni. Hér stóðu menn frammi fyrir gerðum hlut og það var í rauninni enginn annar kostur fyrir hendi en láta þetta mál ná fram að ganga, hversu illa sem menn annars una því hvernig á þessum málum hefur verið haldið.