03.05.1984
Efri deild: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5175 í B-deild Alþingistíðinda. (4558)

8. mál, ráðstafanir í sjávarútvegsmálum

Kolbrún Jónsdóttir:

Herra forseti. Það frv. til laga um ráðstafanir í sjávarútvegsmálum sem hér um ræðir er til staðfestingar á brbl., eins og fram hefur komið, sem sett voru 27. maí á s. l. ári. Hafa því þessi brbl. verið í gildi í nær heilt ár.

Efnisinnihald þessa frv. er að annars vegar er kveðið á um sérstakan kostnaðarhlut útgerðar af aflaverðmæti þar sem gengið er á rétt sjómanna og hins vegar er ákvæði um 10% gengismun sem skal færður á sérstakan reikning á nafni ríkissjóðs í Seðlabankanum. Ríkisstj. er heimilt að ráðstafa þessu fé í þágu sjávarútvegs og sjóða hans.

Báðar þessar ráðstafanir eru gagnrýni verðar, enda til þeirra gripið til að viðhalda löngu úreltu millifærslukerfi. Reiknimeistarar ríkisvaldsins finna út meðaltalsafkomu útgerðarinnar og fiskvinnslu. Með hliðsjón af þessum útreikningum er fiskverð ákveðið að tilstuðlan oddamanns yfirnefndar verðlagsráðs í langflestum tilfellum. Þessi ráðdeildarsemi stjórnvalda hefur aðeins leitt til þess að millifærslur aukast með ærnum tilkostnaði og óráðsían eykst í rekstri útgerðar og fiskvinnslu.

Ég ætla ekki að bæta miklu við það sem hér hefur komið fram hjá hv. þm. Karli Steinari Guðnasyni, frsm. minni hl. sjútvn. og hefur gert því efnislega góð skil sem í frv. felst, en vil þó minna á frv. til l. sem lagt var fram hér á haustdögum af þm. BJ um breytingar á lögum um Verðlagsráð sjávarútvegsins. Í því frv. er lagt til að sú skipulagsbreyting verði gerð á verðlagsákvörðun Verðlagsráðs sjávarútvegsins að lágmarksverð af sjávarafla verði ákveðið í frjálsum samningum af hagsmunaaðilum í verðlagsráði sjálfu án íhlutunar ríkisvalds. Nú er unnið að endurskoðun á lögum um Verðlagsráð sjávarútvegsins.

Væri æskilegt að fá upplýst hvar það mál er nú statt vegna þess að frv. BJ liggur nú í hv. sjútvn. og bíður þess að glitti í þá endurskoðun sem er núna í deiglunni.