03.05.1984
Efri deild: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5181 í B-deild Alþingistíðinda. (4563)

8. mál, ráðstafanir í sjávarútvegsmálum

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Í þessum orðum, sem hv. 6. landsk. þm. sagði hér, vitnaði hann í ummæli sem prentuð eru í nál. nr. 587 og skoðun mína á því ástandi sem ríkti þegar gengismunur var tekinn af skreið á s. l. ári og ber saman við það ástand í gengismálum sem nú er. Þetta er ekki sambærilegt. Það er ekki sambærilegt þegar dollarinn og annar erlendur gjaldeyrir er á hraðferð niður eða upp til skiptis og dollarinn heldur svo áfram að fara upp borið saman við það, sem verið hefur staðreynd frá því þessi ríkisstjórn tók við, að gengið hefur haldist fast. Þetta er nóg til að svara. Rökin eiga bara ekki við frá einu ári til annars. (Gripið fram í: Af hverju þá ekki iðnaðarvörur líka?) Iðnaðarvörur? Auðvitað á það sama við iðnaðarvörur. (Gripið fram í: Þú gætir þá kannske fengið eitthvað í gatið.) Auðvitað á sama við um iðnaðarvörur. Það á það sama við um allar vörur. Þjóðfélagið allt verður að fara að venjast því að það er ein þjóð í landinu sem býr við sama gengi. Það verður að fara að kenna atvinnuvegunum að það er ein þjóð sem byggir þetta land, en ekki, eins og það hefur verið, að iðnaðurinn og sjávarútvegurinn keppa um gengi eða gengissig frá einu ári til annars. Það verður að bera saman það sem er sambærilegt. (Gripið fram í.) Það verður að bera saman það sem er sambærilegt á milli ára ef menn eiga að fá rétta útkomu.