03.05.1984
Efri deild: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5181 í B-deild Alþingistíðinda. (4566)

136. mál, hafnalög

Frsm. (Egill Jónsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. samgn. Ed. um frv. til hafnalaga. Ég minni á að við fyrri umr. málsins flutti samgrh. ítarlega ræðu um efni frv. og er að sjálfsögðu engin ástæða til að fara efnislega yfir það sem slíkt. Auk þess fylgir frv. ítarleg grg. sem skýrir alla meginefnisþætti frv. Ég mun þess vegna fyrst og fremst snúa mér að þeim brtt. sem samgn. Ed. leggur hér fram. Eins og fram kemur í nál. nefndarinnar eru allir nm. sammála um afgreiðslu málsins.

Nefndin sendi frv. til umsagnar bæði til Landssambands íslenskra útvegsmanna og eins Sambands skipafélaga. Auk þess ræddi nefndin við marga aðila, þ. á m. ráðuneytisstjórann í samgrn., formann Hafnasambandsins og starfsmenn Hafnamálastofnunarinnar. Enn fremur ræddi nefndin við hafnastjóra utan af landi, bæði frá Akranesi og eins frá Stykkishólmi, til að geta fengið sem víðast að sjónarmið varðandi þetta frv. Þess má líka geta að n. fór yfir samþykkt Hafnasambandsins um þessa frv.-gerð, athugaði raunar fleiri efni í þessu tilliti. Sú niðurstaða liggur fyrir á þskj. 724 og eru þar 16 brtt. sem ég ætla að gera grein fyrir í stuttu máli.

Þessar till. eru ekki allar mjög efnismiklar, en þó verður annar andi í frv. eftir samþykkt þeirra, ef þær ná fram að ganga, því að þær stefna að því að hafa meira frjálsræði í þessum efnum, eins og raunar verið hefur, og gefa þeim aðilum sem með þessi mál fara í héraði rýmri heimildir um að ákveða hvern veg skuli þar með farið.

Í 5. gr. frv., þar sem fjallað er um tækjabúnað Hafnamálastofnunar, er bætt inn í að hún skuli hafa í sinni eigu sérhæfð tæki. Það er m. a. gert með tilliti til þess að sá markaður sem lýtur að hafnarframkvæmdum er ekki stór. Það má í þessu tilliti m. a. minna á pramma sem notaðir eru til að keyra út efni í hafnargarða.

Í 7. gr., þar sem höfn er skilgreind, eru tekin af öll tvímæli um að notkun hafnar sé öllum heimil.

Í 10. gr., þar sem kveðið er á um að sett skuli hafnarreglugerð fyrir hverja höfn, er gerð till. um að í stað hafnarstjórnar sé leitað tillagna eða umsagna eigenda hafna því að hafnarstjórnir eru að sjálfsögðu ekki sami aðilinn og eigendurnir sem hljóta að eiga að fjalla, eðli málsins skv., um reglugerðir af þessu tagi.

Í 11. gr., þar sem fjallað er um gjöld sem eiga að falla til hafnarinnar, er bætt við gjöldum af ferjuflutningum. Það má segja að umr. um 12. gr. hafi verið einna víðtækust. Þar eru mjög víðtækar heimildir um innheimtu á aflagjöldum og hafnargjöldum. Í þessari grein, bæði 5. og 6. tölul. og reyndar í niðurlagi 4. tölul., eru harðari innheimtuákvæði en almennt gilda og sumpart mundu þau skapa fordæmi fyrir aðrar innheimtuaðgerðir. Þess vegna er lagt til að þessi hluti 12. gr. falli út, enda er vel séð fyrir því með öðrum hætti að hægt sé að fá hafnargjöldin og aflagjöldin greidd.

Í 13. gr. er kveðið á um með hvaða hætti eigi að staðfesta gjaldskrá. Þar leggur n. til að þau þjónustugjöld sem höfnin verður að greiða heima fyrir, svo sem fyrir vatn og skólp og annað slíkt, séu ákveðin af hafnarstjórn viðkomandi hafnar.

Í 17. gr. eru ströng ákvæði um með hvaða hætti eigi að selja eða veðsetja eignir hafnanna og þar er einnig kveðið á um að ekki megi ráðstafa öðru fjármagni heldur en greiðsluafgangi viðkomandi árs. Það er að sjálfsögðu útilokað að kveða svo á, því að greiðsluafgangur liggur ekki fyrir hver er fyrr en árið á eftir. Þar af leiðandi er þessu ákvæði breytt, en lögð áhersla á samþykki samgrn. vegna hugsanlegra framkvæmda.

Þar sem fjallað er um skipulag hafnarsvæðis í 18. gr. er bætt inn í að umsagnar þurfi að leita til hafnamálastjóra auk viðkomandi hafnarstjórnar.

Í 20. gr. er lagt til að niður falli ákvæði um að ekki megi hefja hafnarframkvæmdir fyrr en að staðfesting hafi fengist frá Innkaupastofnun ríkisins eða á grundvelli þeirra laga sem um þá stofnun gilda.

Í 24. gr. er lagt til að hafnsögubátar séu styrkhæfir sem hafnarframkvæmd og með sama hætti er líka lagt til að hafnarframkvæmdir sem horfa til umhverfisbóta séu styrkhæf hafnarframkvæmd.

Það er til samræmis við aðrar breytingar í þessu frv. í till. n. að 4. liður 25. gr. sé felldur niður þar sem hann kveður á um að ekki sé heimilt að hefja framkvæmd fyrr en fyrir liggur fjárveiting á fjárlögum.

Í 26. gr. er orðalagsbreyting. Kveðið er á um að í staðinn fyrir „mannvirki“ í niðurlagi 3. liðar komi: hafnarmannvirkin.

Í 27. gr. er svo kveðið á varðandi umsóknir um framlög úr ríkissjóði til hafnarframkvæmda að rn. skuli, auk þess að leita umsagnar hafnarráðs og hafnamálastjóra, leita umsagnar hlutaðeigandi hafnarstjórnar.

28. gr., sem kveður á um áætlunargerð, er gerð skýrari en var í frv. og þar m. a. kveðið á um að staðfesta skuli áætlun til fjögurra ára sem reyndar sé endurskoðuð á tveggja ára fresti á Alþingi.

Herra forseti. Ég hef hér rakið meginbreytingarnar, raunar held ég allar breytingarnar, og skýrt þær, en mér þykir vert að geta þess hér að n. fjallaði æðimikið um þau breyttu viðhorf sem geta orðið og hafa reyndar þegar komið fram í sambandi við tekjur og rekstur hafna vegna þeirrar tækni sem nú ryður sér til rúms, þ. e. gámaflutninga þar sem vörum er safnað saman í flutningagáma og þær síðan fluttar á bifreiðum á sérstakar útflutningshafnir. Þetta er trúlega æskileg þróun frá sjónarmiði þeirra hafna sem þess njóta og eins í sambandi við skipulagða almenna flutninga í landinu þar sem ætla má að þetta horfi til hagræðingar og þá um leið til þess að draga úr kostnaði, sem hlýtur að vera æskilegt. Hins vegar stendur þó hitt eftir og það óhaggað, að við þessar breyttu aðstæður tapa hafnir þeirra byggðarlaga sem varan er flutt frá. Það er trúlegt að þessi breyting eigi eftir að verða enn gagngerðari og með vissum hætti eru menn frekar að spá um framtíðina en að hér hafi þegar átt sér stað umtalsverðar breytingar. M. a. af þeirri ástæðu sá n. sér ekki fært að gera hér breytingu á. Það var mat n. að hún vildi ekki með neinu móti hindra framfarir í þessum efnum.

Ég lýk svo máli mínu, herra forseti, en vil að lokum undirstrika að öll samgn. Ed. Alþingis er sammála um afgreiðslu þessa frv., og mér finnst ástæða til að færa samnefndarmönnum mínum þakkir fyrir mikið og gott starf við frágang og afgreiðslu þessa máls í samgn. Ed.