07.11.1983
Neðri deild: 11. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í B-deild Alþingistíðinda. (457)

11. mál, launamál

Guðmundur H. Garðarsson:

Herra forseti. Ég vil hefja mál mitt með því að lýsa ánægju minni yfir þeirri yfirlýsingu hæstv. forsrh. þar sem hann segir að hann sé reiðubúinn að vinna að því að ákvæðið um skerðingu á samningsrétti verði endurskoðað. Það gerist því kannske óþarft fyrir mig að fjölyrða mikið um þetta mál umfram það sem kom fram í yfirlýsingu ráðh., vegna þess að það hnígur í sömu átt og afstaða mín og nokkurra annarra hv. þm.

Ég er einn af þeim sem hafa frá upphafi talið ákvæðið um skerðingu á samningsrétti afar óæskilegt og hef verið á móti því. Slíkt brýtur í bága við mína grundvallarlífsskoðun um frelsi einstaklinganna til að semja um eigin mál. En því miður er það rétt, sem kom fram hjá hæstv. forsrh., að hv. Alþingi hefur allt of oft gripið inn í gerða samninga með ýmsum hætti með þeim árangri eða afleiðingum, sem fram kom í máli hans að gerðir samningar hafa verið skertir með alls konar kúnstum. Ég treysti því að fólkið, bæði í verkalýðshreyfingunni og annars staðar, hafi þann þroska og dómgreind að geta gert sér grein fyrir því hver var ástæða þess að núv. ríkisstj. taldi sig þurfa í upphafi þeirra aðgerða sem hún greip til með brbl. að grípa einnig til þess að takmarka samningsréttinn. Sú var raunverulega ástæðan, eins og margrætt hefur verið hér, að ástand var að verða það slæmt s.l. vor að það horfði til upplausnar og atvinnuleysis. Minnist ég þess, að hv. 3. þm. Reykv. Svavar Gestsson mun hafa fjallað um það á s.l. vetri að nú blasti við neyðarástand í íslensku atvinnu- og efnahagslífi. En það breytir ekki því, að ég hef verið á móti þessu atriði í brbl., þ.e. að skerða samningsréttinn með þeim hætti sem kemur þar fram.

Ég vil undirstrika að við erum nokkrir þm. og höfum verið að vinna að því að þetta ákvæði væri fellt út úr frv. í meðferð þingsins. Undirstrikar þa

ð það, sem kom fram í ræðu hæstv. forsrh. hér áðan, að fullur hugur er á að endurskoða þetta ákvæði.

Mér finnst nokkuð einkennilegt, vegna þess að hér erum við að ræða um erfiðleika fortíðarinnar, hve lítið hefur verið rætt um það sem fram undan er. Það er rétt og skylt að undirstrika það hér á þingi, að almenningur hafði mjög ríkan skilning á nauðsyn þess að mæta þeim ákveðnu og tímabundnu erfiðleikum, sem við bjuggumst við að væru fram undan s.l. vor og sumar, með þeim hætti að færa ákveðnar og tímabundnar fórnir. Staðreyndin er sú, að hvað sem líður ræðum stjórnmálamanna og fullyrðingum fann almenningur fyrir því s.l. vor og s.l. vetur að verðbólgan af stærðargráðunni 140, 150, 160% eða guð veit hvað var farin að skerða kjör fólksins mjög mikið. Það fann fyrir afleiðingum óðaverðbólgu. Það fann fyrir því að óðaverðbólgan breytti öllu gildismati, öllum verðviðmiðunum, bæði hvað áhrærði verð, kaup, vexti o.s.frv., það mikið að það vildi ekki lifa í þeirri óvissu og við þá áhættu og afkomuskerðingu sem greinilega var fram undan ef ekki yrði breyting á. Það er óumdeilt, að þegar gengið var til kosninga s.l. vor í apríl blasti við neyðarástand. Krafa fólksins í kosningunum var að hér yrði breyting á.

Núv. ríkisstj. gerði ákveðnar ráðstafanir sem voru mjög harkalegar. Fram hjá því verður ekki gengið. Og því miður verður það að segjast eins og er, að þrátt fyrir ákveðin batamerki um hjaðnandi verðbólgu erum við ekki enn komin út úr þeim vanda og þeim erfiðleikum sem þjóðin var komin í s.l. vor. En nú blasir við annað og miklu alvarlegra vandamál en það sem fram undan var s.l. vor. Ég tel það svo alvarlegt, að ekki sé sæmilegt að forustumenn þjóðarinnar á Alþingi skuli vera að þrasa um fortíðina með þeim hætti sem hér er gert. Auðvitað er söguleg skýring á því sem gert hefur verið nauðsynleg og auðvitað er nauðsynlegt að mótmæla því sem maður telur að brjóti í bága við grundvallarskoðanir um frelsi einstaklinganna. En það sem mér finnst skipta meira máli er að menn láti af þrasi og deilum um fortíðina og líti til framtíðarinnar, en því miður er hún ekki allt of björt fyrir okkur.

Sú skoðun fiskifræðinga þar sem þeir mæla með því að hámarksafli þorsks verði aðeins 200 þús. smálestir á næsta ári er svo alvarleg að það væri verðugra verkefni fyrir hv. og hæfa þm. og forustumenn einstakra flokka að ræða hér og nú og sem fyrst til hvaða ráðstafana þurfi að grípa til að forða þjóðinni frá þeirri ógæfu og þeim afleiðingum sem hlytust af því ef Íslendingar mættu ekki afla nema 200 þús. smálesta af þorski á næsta ári. Hvað þýðir þetta raunverulega fyrir afkomu þjóðarinnar? Í stuttu máli, sem er augljóst öllum sem til þekkja, mundi þetta þýða grundvallarhrun í helstu atvinnugreinum í sjávarútvegi og fiskiðnaði og algert hrun í þjóðarbúinu. Ofan á það hrun sem hefur verið í síldveiðum og loðnuveiðum mundi þetta bætast og þá er fátt til bjargar og þá er mikill vandi fram undan, sem mikið ríður á að allir góðir menn stuðli að að leysa.

Sjávarútvegur og fiskiðnaður hefur verið meginuppspretta þess þjóðarauðs sem Íslendingar hafa byggt á í áratugi. Þaðan hefur komið síðustu árin 70% af gjaldeyrisöfluninni, en hér áður fyrr um 90%. Meginþorri starfa allt í kringum landið, úti í strjálbýlinu, byggist á sjávarútvegi og fiskiðnaði. Hvernig ætlum við hv. þm. að mæta þeim samdrætti sem yrði ef aflinn yrði aðeins 200 þús. tonn af þorski?

Nú kann einhver að segja: Fiskifræðingar eru nú búnir að spá svo mörgu í gegnum árin að ekki er mikið takandi mark á þeim. — En þá verð ég því miður að segja sem einn af þeim sem starfa í þessari atvinnugrein, að þróun síðustu tveggja ára varðandi stærð og þyngd fisks bendir til þess að sú spá og sú skoðun fiskifræðinga, sem þeir hafa fram sett, sé á sterkum rökum reist. Auk þess mun vera staðreynd að hitastig sjávar í kringum landið hefur tekið þeim breytingum að vaxtarskilyrði fisks eru ekki sem þau voru áður fyrr.

Mér finnst þess vegna, og nota nú tækifærið í þessari umr. og segi það, auk þess sem ég setti fram það sjónarmið mitt í upphafi, að það sé mál til komið að ágætir og hæfir alþm. og forustumenn snúi bökum saman og skoði það sem fram undan er. Því miður verður vandinn ekki leystur nema með miklu þjóðarátaki. Ég met það mikils sem núv. ríkisstj. er að reyna að gera til að leysa vanda fortíðarinnar. En það sem skiptir meira máli fyrir okkur öll er að ríkisstj. og hv. alþm. sem kunna að vera stjórnarandstæðingar horfi nú yfir flokka og hagsmunaríg og finni lausnir fyrir íslenska þjóð í þeim vanda sem fram undan er með þeim hætti að Íslendingar geti sæmilega við unað í vondri stöðu. Við skulum leggja til hliðar þetta þras fortíðarinnar og líta heldur til framtíðarinnar, líta til þess sem skiptir máli, líta á þau vandamál sem núv. ríkisstj. er að leysa, hvað fortíðina áhrærir. Við skulum saman reyna að leysa sameiginlega þann mikla vanda, sem þjóðin stendur frammi fyrir á næstu árum, og sleppa flokkaríg.