04.05.1984
Neðri deild: 80. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5366 í B-deild Alþingistíðinda. (4664)

123. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Í þessu frv. er í c-lið 33. gr. aukið hlutverk Byggingarsjóðs verkamanna til fétagslegra íbúðabygginga og þar segir:

„Leiguíbúðir, sem byggðar eru eða keyptar af sveitarfélögum, stofnunum á þeirra vegum og/eða ríkisins eða félagssamtökum og ætlaðar eru til útleigu við hóflegum kjörum fyrir námsfólk, aldraða, öryrkja og aðra sem ekki hafa aðstöðu til þess að eignast eigið húsnæði við hæfi.“

Þetta er nánar útfært í 54. gr. og í aths. við 33. gr. og 54. gr. sem fylgja frv. Það er mín túlkun að skv. c-lið fái félagssamtök, sem ætla að byggja leiguíbúðir sem ætlaðar eru til útleigu fyrir félagsmenn sína, sem ekki hafa aðstöðu til að eignast eigið húsnæði við hæfi, möguleika til lána úr Byggingarsjóði verkamanna, enda uppfylli aðilar ákvæði Byggingarsjóðs verkamanna um tekjuviðmiðun skv. 44. gr. frv. Hins vegar tel ég ekki tök á að samþykkja brtt. á þskj. 689 og segi því nei.

Brtt. 691,11 felld með 23:11 atkv., að viðhöfðu nafnakalli, og sögðu

já: KJóh, KH, KSK, SvG, GeirG, GE, GJG, GHelg, HG, JS, JBH, KP.

nei: MB, MÁM, ÓE, PP, PJ, RH, StG, SV, StH, SvH, ÞP, ÞS, AS, BÍG, EH, GeirH, FÞ, FrS, GSig, GGS, HÁ; HBl, IG.

5 þm. (ÓÞÞ, PS, SJS, NL, GA) fjarstaddir.

Tveir þm. gerðu svofellda grein fyrir atkv. sínu: