04.05.1984
Neðri deild: 80. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5368 í B-deild Alþingistíðinda. (4667)
123. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Ég óskaði eftir því við 2. umr. þessa máls að gefin yrði skýr yfirlýsing um afstöðu ríkisstj. varðandi aðild húsnæðissamvinnufélaganna að félagslega íbúðabyggingakerfinu. Þær yfirlýsingar eru nú eins skýrar og menn hafa heyrt af þessari atkvgr. hér, þar sem hv. þm. Halldór Blöndal lýsir því yfir að húsnæðissamvinnufélögin eigi ekki aðild að þessu kerfi en hæstv. félmrh. heldur allt öðru fram. Það er lágmarkskrafa til meiri hl., herra forseti, að það komi skýrt fram hver er sameiginleg afstaða stjórnarflokkanna í þessu máli. Það er ekki hægt að afgreiða þetta mál frá Nd. öðruvísi en að sú sameiginlega afstaða liggi fyrir og komi fram eigi síðar en við 3. umr. þessa máls. Þessar gersamlega gagnstæðu yfirlýsingar, sem hér hafa komið fram við atkvgr., gefa tilefni til þess að krefjast þess að stjórnarflokkarnir komi sér að niðurstöðu í þessu máli og hafi báðir eina og sömu skoðunina. Það er útilokað að búa við þennan túlkunarleik lengur þar sem ætlun félmrh. er bersýnilega að húsnæðismálastjórn verði næsti túlkur í málinu til þess að leysa þá flækju sem hann er kominn í með þetta mál. 33. gr. samþ. með 27 shlj. atkv.