04.05.1984
Neðri deild: 80. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5370 í B-deild Alþingistíðinda. (4672)
340. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Frv. það sem nú er til umr. um ráðstafanir í ríkisfjármálum og lánsfjármálum 1984 er veigamikill þáttur í efnahagsstefnu ríkisstj. Því þykir mér rétt í upphafi að fara nokkrum almennum orðum um efnahagsmálin.
Afleiðingar efnahagskreppunnar í heiminum, sem hófst 1979 með stórfelldri olíuverðshækkun, hrun loðnustofnsins 1981 og mikill samdráttur í þorskafla á árinu 1982 komu af fullum þunga fram í efnahagsmálum landsmanna á fyrri hluta ársins 1983. Þessir erfiðleikar í efnahagsmálum eru þeir mestu sem þjóðin hefur átt við að glíma frá stofnun lýðveldisins. Áhrifin urðu meiri og alvarlegri vegna þess að ekki náðist samstaða um nægilega ákveðnar og harðar viðnámsaðgerðir á árinu 1982 og í upphafi ársins 1983. Afleiðingin varð verðbólga, sem skv. framfærsluvísitölu 1. maí á s. l. ári var yfir 130%, þegar verðbreytingar þriggja mánaða voru reiknaðar til árshraða. Með erlendar skuldir þjóðarinnar í hámarki var ljóst að slík verðbólga hlaut að leiða til stöðvunar atvinnuvega, atvinnuleysis og efnahagslegs hruns. Því varð að forða. Það gerði núv. ríkisstj. með róttækum aðgerðum í efnahagsmálum.
Fyrsti áfangi efnahagsstefnu ríkisstj. beindist því gegn óðaverðbólgu, fyrirsjáanlegu atvinnuleysi og erlendri skuldasöfnun. Þær aðgerðir byggðust fyrst og fremst á ákveðinni launastefnu. Um annað var ekki að ræða eins og ástatt var, enda ljóst að miðað við minnkandi þjóðartekjur, mikinn viðskiptahalla og vaxandi erlendar skuldir lifði þjóðin verulega um efni fram. Árangur fyrstu aðgerðanna varð mikill og í samræmi við áætlun ríkisstj. Um áramótin var verðbólgan komin niður fyrir 20% og vextir höfðu verið lækkaðir um helming. Viðskiptahallinn minnkaði úr 10% 1982 í rúmlega 2% 1983. Á flestum sviðum efnahagsmála voru þegar um áramótin komin fram mikilvæg og augljós batamerki.
Skv. síðasta mati Þjóðhagsstofnunar skertust hins vegar ráðstöfunartekjur heimilanna um 10% á s. l. ári. Ógerlegt er aftur á móti að meta hvað tekjur heimilanna hefðu skerst í óðaverðbólgunni. Með stöðvun atvinnulífs og atvinnuleysi hefði það vafalaust orðið meira. Á árunum 1982 og 1983 drógust þjóðartekjur saman um 8% á mann. Skerðing tekna heimilanna er því aðeins meiri en samdrátturinn í þjóðartekjum. Þess ber hins vegar að gæta að á árinu 1981 varð viðskiptahalli 5% eða m. ö. o. þegar á því góða ári var eytt meiru en aflað var og jókst í 10% 1982. Niðurstaðan verður því sú að skerðing kaupmáttar varð síst meiri en gera varð ráð fyrir ef horfst er í augu við staðreyndirnar, minni þjóðartekjur og mikinn viðskiptahalla og erlenda skuldasöfnun. Fyrsta áfanga efnahagsstefnu ríkisstj. hefur verið náð. Tekist hefur að hemja verðbólguna og koma í veg fyrir það atvinnuleysi, sem við blasti.
Í öðrum áfanga er ætlunin að koma á viðunandi heildarjafnvægi í þjóðarbúskapnum þannig að ekki þurfi stöðugt að grípa til bráðabirgðaaðgerða, sem hafa í allt of ríkum mæli einkennt hagstjórn hér á landi í mörg ár. Þessu markmiði hyggst ríkisstj. ná með hefðbundnum hagstjórnaraðferðum, fjármála- og peningastefnu og almennum reglum sem aðilum efnahagslífsins eru kunnar þannig að þeir geti tekið sínar ákvarðanir á eigin ábyrgð. Stefnunni í efnahagsmálum á þessu ári hefur verið ítarlega lýst. Markmiðið er að verðbólgan í lok ársins verði um 10% . Því mun verða náð m. a. með því að halda gengi stöðugu þannig að það breytist ekki meira en að hámarki 5% á árinu. Jafnframt er lögð áhersla á að erlendar skuldir þjóðarinnar verði ekki auknar umfram það sem þær eru nú sem hlutfall af þjóðarframleiðslu. Mjög mikilvægt er jafnframt að sporna gegn þenslu í efnahagslífinu með aðhaldsaðgerðum í peninga- og fjármálum. Um þann þáttinn í efnahagsstefnu ríkisstj. fjallar það frv. sem hér er til umr.
Áður en ég kem nánar að peninga- og fjármálum vil ég geta þess, að þriðji áfangi efnahagsstefnu ríkisstj. mun verða tileinkaður nýsköpun í atvinnulífinu og hagvexti. Einungis á þann hátt verður unnt að tryggja viðunandi kaupmátt og lífskjör hér á landi. Í því skyni hafa ýmsar ráðstafanir þegar verið gerðar og fleiri eru í undirbúningi eins og fram kemur m. a. í frv. þessu og ég mun ræða síðar.
Þegar metnar eru aðgerðir í peninga- og fjármálum sem frv. lýsir er nauðsynlegt að hafa í huga hve þröngur sá rammi er sem efnahagslífi þjóðarinnar er markaður. Honum má lýsa með eftirgreindum staðreyndum.
1. Nauðsynlegt er að verðbólga hjaðni enn. Markmiðið er 10% verðbólga í lok ársins.
2. Til þess að þetta verðbólgumarkmið náist verður gengi haldið stöðugu á árinu þannig að það breytist ekki meira en að hámarki um 5%.
3. Erlendar skuldir mega ekki aukast frá því sem nú er.
4. Áætlað er að þjóðartekjur dragist saman um 2%.
5. Staða atvinnuveganna er enn þá mjög erfið, einkum sjávarútvegs og landbúnaðar.
6. Draga verður úr þenslu á peningamarkaðinum.
7. Umsaminn kaupmátt þarf að vernda.
Ég hygg að öllum megi vera ljóst að þetta dæmi er ákaflega erfitt úrlausnar. Í þeirri lausn sem felst í frv. því sem nú er til umr. er reynt að sigla á milli skers og báru. Engin dul skal þó á það dregin að farið er út á ystu mörk með erlendar lántökur. Ljóst er jafnframt að sú niðurstaða í kjaramálum og ríkisfjármálum sem nú liggur fyrir mun ekki auðvelda áframhaldandi hjöðnun verðbólgu og að halda í horfinu með viðskiptahalla á árinu 1984. Þrátt fyrir þessar staðreyndir og minnkandi þjóðartekjur er leitast við að vernda umsaminn kaupmátt. Það er hins vegar gert með meiri erlendri lántöku og meiri þenstu í peninga- og fjármálum en æskilegt hefði verið. Þessi varð þó niðurstaðan þar sem þrátt fyrir þetta er talið að meginmarkmiðin muni nást, þ. e. að verðbólgan í lok ársins verði um það bil 10% og erlendar skuldir þjóðarinnar fari ekki yfir 60% þjóðarframleiðslu. Áætlað er að verðbólgan frá upphafi til loka ársins verði 13–14%.
Mönnum verður hins vegar að vera ljóst að með þessu er því fórnað að verðbólga frá upphafi til loka ársins verði undir 10% og í lok ársins vel sambærileg við það sem hún er í okkar viðskiptalöndum. Jafnframt er stöðu atvinnuveganna e. t. v. teflt í meiri tvísýnu en æskilegt hefði verið. Hins vegar mæla ýmis rök með því að ekki sé óskynsamlegt að fara þannig aðeins hægar í hjöðnun verðbólgu, ef með því móti fæst friður á vinnumarkaðinum og tóm til þess að atvinnulífið eflist, hagvöxtur hefjist á ný og samstaða náist um áframhaldandi hjöðnun verðbólgu. Aðeins traust atvinnulíf og hagvöxtur getur staðið undir auknum kaupmætti og betri lífskjörum. Það hlýtur öllum mönnum að vera orðið ljóst.
Í peningamálum getur ríkisvaldið haft áhrif fyrst og fremst eftir þremur leiðum: gegnum fjárlög ríkisins, lánsfjárlög og bankakerfið. Þessir þrír þættir eru að sjálfsögðu nátengdir og hafa afgerandi áhrif á peningamarkaðinn í heild og þar með á þensluna í þjóðlífinu. Með því að fjalla um þá alla í einu eins og gert er í þessu frv. fæst heilli mynd af ástandinu í peningamálum. Eins og ítarlega hefur komið fram blasir að óbreyttu við mikill halli á ríkissjóði. Eftir að tekjuáætlun hefur verið endurskoðuð er talið að sá halli geti orðið 1910 millj. kr. eða um 1500 millj. kr. hærri en áætlað var við afgreiðslu fjárlaga. Fyrst og fremst er það tvennt sem þessu veldur eins og fram kemur í fskj. með frv.
Nokkrir sparnaðarliðir, sem reiknað var með við gerð fjárlaga, hafa ekki komist til framkvæmda enn eða verið lögformlega ákveðnir. Þarna er m. a. um að ræða sparnað og útgjaldaminnkun ríkissjóðs vegna heilbrigðismála að upphæð 300 millj. kr. og frestun á framkvæmd ákvæðis um 100% lán vegna þarfa námsmanna. Nemur sú upphæð 100 millj. kr.
Í öðru lagi hafa nokkrir útgjaldaliðir reynst vanáætlaðir. Má í því sambandi nefna útgjöld vegna löggæslunnar og heilbrigðis- og tryggingamála. Í þriðja lagi hefur verið samþykkt að greiða úr ríkissjóði samtals 350 millj. kr. í barnabótaviðauka og ýmiss konar hækkuðum tryggingum og greiðslum til þeirra sem lakasta afkomu hafa í þjóðfélaginu.
Auk þess sem ég hef talið verður því ekki neitað að tekjur ríkissjóðs hafa skerst nokkuð með lækkun á sköttum og tollum. Samtals er áætlað að tekjur hefðu orðið um 550 millj. kr. hærri án slíkra lækkana. Þess ber þó að gæta að um það bil 250 millj. kr. af þessari skattalækkun stafa af hækkun persónuafsláttar og barnabóta í tengslum við efnahagsaðgerðir ríkisstj. í lok maí á s. l. ári. Þetta var ákveðið til þess að draga úr áhrifum efnahagsaðgerðanna á afkomu fjölskyldufólks. Niðurfelling skatts á ferðamannagjaldeyri hefur skert tekjur ríkissjóðs á þessu ári um 100 millj. kr. Þetta hefur verið gagnrýnt. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að rangt sé að vera með tvöfalt gengi. Það samræmist alls ekki þeim reglum sem við höfum undirgengist í Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og öðrum skuldbindingum okkar erlendis. Einnig er ljóst að slíkt gjald fellur á þá sem ekki fá ferðakostnað sinn greiddan af fyrirtækjum eða opinberum stofnunum og verður því oft þyngst þeim sem minnst efni hafa.
Auk þess sem nú hefur verið talið er rétt að hafa í huga að í ár var ekki fylgt þeirri reglu að hækka skattvísitölu í samræmi við verðtagshækkun á milli ára. Í þess stað var ákveðið að miða við að greiðslubyrði skattgreiðenda yrði sú sama í ár og í fyrra. Ef eldri reglunni hefði verið fylgt hefðu tekjur ríkisins af tekjuskatti orðið um 600 millj. kr. hærri. Því er haldið fram að skattbyrði fyrirtækja lækki með þeim frv. sem nýlega hafa verið samþykkt á Alþingi. Eins og reyndar kom fram í lokaumr. um þetta mál er það á misskilningi byggt. Til lengri tíma litið virðist raunar ljóst að framlag í fjárfestingarsjóð fyrirtækja í stað varasjóðs muni hækka skattbyrðina.
Um annan þátt peningamála, lánsfjárlög, fjallar frv. einnig. Farið er fram á heimildir til aukinnar erlendrar lántöku samtals að upphæð 2050 millj. kr. Fyrir þessu eru fyrst og fremst þrjár ástæður. Í fyrsta lagi er óhjákvæmilegt að brúa að verulegu leyti halla ríkissjóðs með erlendu láni. Er í því skyni gert ráð fyrir lántöku að upphæð 713 millj. kr. Í öðru lagi þykir ljóst að innlendur lánamarkaður muni ekki skila jafn miklu og gert er ráð fyrir í lánsfjárlögum. Er þar um að ræða 302 millj. kr. vegna A-hluta ríkissjóðs og 190 millj. kr. vegna húsnæðismála eða samtals 492 millj. kr. Í þriðja lagi er óhjákvæmilegt að auka heimild til lántöku vegna atvinnuveganna. Vegna skuldbreytinga í sjávarútvegi er þörfin áætluð 300 millj. kr. og 80 millj. kr. vegna skuldbreytinga í landbúnaði. Þá er ráðgert að afla 150 millj. kr. til að tryggja skipasmíðastöðvum verkefni við viðhald skipaflotans. Loks telur ríkisstj. rétt að gera ráð fyrir 150 millj. kr. til nýsköpunar í atvinnulífinu. Um þann lið vil ég fara nokkrum orðum.
Við gjörbreyttar og betri aðstæður í efnahagsmálum hefur áhugi mjög vaknað á ýmiss konar nýsköpun í atvinnulífinu. Með stórum minni verðbólgu og horfum á friði á vinnumarkaðinum er útlitið fram undan allt annað en áður var fyrir nýtt framtak í atvinnulífinu. Á ýmsum slíkum sviðum virðast möguleikar vera miklir. Ég nefni fiskeldi. Til þess er aðstaða talin betri hér á landi en víðast hvar annars staðar. Hið sama má segja um loðdýrarækt, sem nú er hafin en að ýmsu leyti af vanefnum, og auka má verulega. Loks nefni ég ýmsan háþróaðan iðnað eins og lífefnaiðnað og rafeindaiðnað. Ungir menn með góða þekkingu hafa vakið athygli á slíkum möguleikum og reyndar haslað sér völl með athyglisverðri framleiðslu á rafeindasviðinu. Slíkar hugmyndir hafa þó ekki náð fram að ganga nema að litlu leyti vegna fjárskorts. Úr því vill ríkisstj. bæta og mun setja reglur um ráðstöfun umrædds fjármagns til nýsköpunar í atvinnulífinu.
Auknar erlendar lántökur eru að sjálfsögðu slæmur kostur. Æskilegt hefði verið að brúa halla ríkissjóðs með enn meiri sparnaði og öflun tekna. Þess er hins vegar enginn kostur ef vernda á nokkurn veginn þann kaupmátt sem um samdist í febrúar á sama tíma og þjóðartekjur dragast saman og staða höfuðatvinnuvega þjóðarinnar er svo erfið sem raun ber vitni. Að mati Þjóðhagsstofnunar munu erlendar skuldir að vísu ekki aukast sem hundraðshluti af þjóðarframleiðslu og verða rétt innan við 60%. Stafar það af því að þjóðarframleiðslan er talin verða nokkru meiri en áður var áætlað. Greiðslubyrði er áætluð óbreytt, 21% gjaldeyristekna. Nauðsynlegt er þó að hafa í huga að erlendar skuldir þjóðarinnar eru of háar þegar til lengri tíma er litið. Markmiðið verður að vera að draga úr erlendum skuldum. Að því verður stefnt á næstu árum þótt ekki náist það í fyrsta áfanga endurreisnar hins íslenska efnahagslífs.
Halli á ríkissjóði og erlendar lántökur eykur að sjálfsögðu peningaþensluna í þjóðfélaginu sem þó er mikil fyrir. Á ársgrundvelli hafa útlán og innlán aukist um 42% fyrstu þrjá mánuði ársins. Miðað við þá verðbólgu sem nú er er þetta of mikil aukning. Seðlabankinn getur haft áhrif á aukningu peningamagns eftir þremur leiðum: með því að breyta vöxtum, breyta endurkaupum afurðalána eða bindingu. Hækkun vaxta telur ríkisstj. ekki koma til greina enda raunvextir töluverðir og meiri en áður hefur verið hjá okkur Íslendingum. Leiðrétting á vöxtum verðtryggðra lána er þó talin nauðsynleg til samræmis við aðra vexti í bankakerfinu. Ríkisstj. stefnir að því að færa afurðalánin yfir til viðskiptabankanna. Það verður þó að gerast þannig að ekki valdi röskun í atvinnulífinu. Viðskiptabankarnir eru nú mjög misjafnlega í stakk búnir til þess að taka við afurðalánum. Því verður að fara hægt í þá tilfærslu þar til bankakerfið hefur verið endurskipulagt. Að því er stefnt með nýrri bankalöggjöf, fækkun banka og tilfærslu verkefna.
Ofangreindum tveimur leiðum eru því eins og stendur takmörk sett. Því telur ríkisstjórnin rétt að afla tímabundinnar heimildar til sveigjanlegrar bindingar. Sú heimild verður því aðeins notuð að óhjákvæmilegt þyki vegna aukinnar þenslu og hættuástands af þeim sökum. Gert er ráð fyrir því að heimild þessi falli niður þegar ný bankalöggjöf hefur verið samþykkt.
Öll merki benda til þess að peningaveltan í þjóðfélaginu sé töluvert meiri en hagtölur gefa til kynna. Eftirspurn er mikil, t. d. bifreiðainnflutningur vaxandi, fasteignasala mikil og utanlandsferðir hafa sjaldan verið meiri, svo eitthvað sé nefnt. Uppspretta þessa fjármagns getur verið margs konar. T fyrsta lagi er það umhugsunarefni að lífeyrissjóðirnir, sem orðnir eru ákaflega öflugir, eru nánast sem stjórnlaus þáttur í peningakerfi þjóðarinnar. Útlán þeirra eru án umtalsverðra takmarkana og renna að verulegu leyti til einstaklinga til alls konar útgjalda. Á s. l. ári nam útlánsaukning lífeyrissjóða 25% af útlánsaukningu innlánsstofnana án endurseldra lána, en á fyrsta ársfjórðungi þessa árs er útlánsaukning lífeyrissjóðanna orðin 40% af útlánsaukningu innlánsstofnana og hefur því aukning þar verið miklu meiri en hjá innlánsstofnunum. Viðleitni stjórnvalda til þess að draga úr peningaþenslunni í gegnum bankakerfið bitnar því fyrst og fremst á atvinnuvegunum, eða þar sem síst skyldi. Úr þessu verður að ráða bót og það fyrr en síðar.
Lífeyrissjóðina verður að fella inn í peningakerfi þjóðarinnar.
Í öðru lagi virðist mér augljóst að svonefnt neðanjarðarhagkerfi hafi vaxið mjög hér á landi í verðbólguöngþveiti undanfarinna ára. Svo virðist sem allstór hópur einstaklinga og fyrirtækja greiði ekki sinn lögboðinn hluta af rekstrarkostnaði þjóðfélagsins. Það er ófært og atvarleg svik við aðra þjóðfélagsþegna. Áhersla mun verða lögð á að stórherða innheimtu söluskatts. Eru þær aðgerðir nú í undirbúningi á vegum fjmrh. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að lengra þurfi að ganga, jafnvel að herða viðurlög svo að enginn leyfi sér slíkt athæfi.
Um einstakar greinar frv. vil ég nú fara nokkrum orðum. Í 1. gr. er gert ráð fyrir heimild til lækkunar á ríkisútgjöldum um 370 millj. kr. Sundurliðun á ráðuneyti er að finna í athugasemdum. Það er sett í vald hvers ráðh. hvernig þetta er framkvæmt en eftir því mun verða hart gengið að ákvarðanir rn. liggi sem fyrst fyrir.
Auk almennrar lækkunar útgjalda er með greininni gert ráð fyrir því að lækka um 185 millj. kr. það fjármagn sem ætlað er á fjárlögum í niðurgreiðslu á landbúnaðarafurðum. Þetta er að ýmsu leyti erfið ákvörðun. Niðurgreiðslur af nauðsynlegum landbúnaðarafurðum eru fyrst og fremst í þágu neytenda. Þær eru þó einnig mikilvægar fyrir framleiðendur því þær hafa áhrif á sölumagn. Á þennan lið hefur þó af ýmsum aðilum verið bent, m. a. aðilum vinnumarkaðarins, í sambandi við tilfærslu innan ríkissjóðs til þeirra sem við erfiðustu kjörin búa. Hefur m. a. verið fullyrt í umr. hér á Alþingi af einum hv. þm., sem sæti á í miðstjórn ASÍ, að þótt öll sú aðstoð, að upphæð rúmlega 300 millj. kr., væri fjármögnuð þannig, hefði lækkun á niðurgreiðslum áhrif á framfærslu sem nemur aðeins litlu broti af því sem til láglaunafólksins er fært. Engu að síður þótti ríkisstj. ekki rétt að ganga lengra í því að draga úr niðurgreiðslum. Í þessu sambandi er rétt að fram komi að samdráttur hefur orðið í sölu landbúnaðarafurða. Því áætlar Hagstofa Íslands að um 40 millj. kr. afgangur verði af niðurgreiðslufé að óbreyttu. Raunveruleg lækkun á niðurgreiðslum verður því 145 millj. kr. Ekki er endanlega ákveðið hvernig það verður framkvæmt. Líklegt er þó að niðurgreiðslur verði felldar með öllu niður af kartöflum, rjóma, nautakjöti og ostum en því sem eftir er dreift á aðrar afurðir. Landbúnaðarafurðir munu af þessum sökum hækka um 5–15%.
Með 3. gr. frv. er gert ráð fyrir að útflutningsbætur vegna landbúnaðarafurða verði í ár eins og lög um Framleiðsluráð landbúnaðarins gera ráð fyrir. Þær þarf því að auka um 188 millj. kr. frá því sem fjárlög gera ráð fyrir að meðtöldum 18 millj. kr. sem geymdar eru frá s. l. ári. Á það hefur einnig verið bent af aðilum vinnumarkaðarins að draga mætti úr útflutningsbótum og fjármagna þannig greiðslu til láglaunafólks. Staðreyndin er hins vegar sú að áhrifin yrðu svipuð og þegar dregið er úr niðurgreiðslu. Útflutningsbætur reiknast til tekna hjá bændum. Verði þær felldar niður nú mundi það þýða 5% launalækkun hjá bændum, sem hlyti að leiða til hækkunar á verði landbúnaðarafurða innanlands, nema menn vilji láta bændur greiða af sínum tekjum þær sérstöku kjarabætur sem ASÍ og VSÍ sömdu um fyrir þá sem við erfiðust kjör búa. Það yrði þá að gera með sérstökum lögum. Ég trúi því ekki að launþegar vilji það í raun og veru.
Um stefnuna í landbúnaðarmálum er ekki tími til að ræða ítarlega nú. Þó vil ég láta þá skoðun mína koma fram að mjög mikilvægt er að á næstu árum megi takast að draga svo úr hinni hefðbundnu landbúnaðarframleiðslu að útflutningur verði lítill sem enginn. Íslenskar mjólkurafurðir og kjöt eru því miður ekki samkeppnisfærar á erlendum mörkuðum. Útflutningsbótaþörfin sem hlutfall af heildsöluverði hefur farið vaxandi. Þetta stafar fyrst og fremst af gífurlegum niðurgreiðslum og annarri aðstoð við landbúnað í viðskiptalöndum okkar. Svo róttæk breyting í landbúnaði er hins vegar mjög viðkvæm. Hún gæti valdið miklu tjóni, m. a. alvarlegri byggðaröskun, ef ekki er rétt að staðið. Því er á aðlögunartímanum nauðsynlegt að ráðstafa því fjármagni sem til landbúnaðar er veitt nú til þess að efla nýjar búgreinar þannig að jafnvægi haldist í byggð landsins. Loðdýraræktin er sérstaklega álitleg í því skyni. Bændum verður jafnframt að tryggja viðunandi tekjur á aðlögunartímanum. Að slíkri stefnumörkun í landbúnaði er nú unnið á vegum landbrh.
4.–1. gr. fjalla um greiðslur frá Innheimtustofnun sveitarfélaga til Tryggingastofnunar ríkisins. Með lögum nr. 54 frá 1971, um Innheimtustofnun sveitarfélaga, var þeirri stofnun falið það verkefni að innheimta hjá meðlagsskyldum aðilum barnsmeðlög og endurgreiða Tryggingastofnun ríkisins. Innheimtustofnun á að gera fullnaðarskil til Tryggingastofnunar fyrir 1. okt. ár hvert á skuld við s. l. áramót. Það sem á vantar að Innheimtustofnunin geti af eigin innheimtufé gert full skil fyrir 1. okt. greiðist af Jöfnunarsjóði sveitarfélaga af óskiptu fé hans. Vegna eftirágreiðslna Innheimtustofnunar til Tryggingastofnunar samkvæmt gildandi lögum hefur Tryggingastofnunin þurft að binda mikið fé á hverjum tíma. Um s. l. áramót vantaði þannig um 150 millj. kr. til endurgreiðslna á barnsmeðlögum og síðsumars er gert ráð fyrir að sú fjárhæð nálgist 200 millj. kr. að óbreyttu fyrirkomulagi. Nú er ráðgert að flýta skilum til Tryggingastofnunar með því að breyta ákvæðum laga um Innheimtustofnun þannig að full skil fari fram svo til á sama ári. Viðbótarfjármagn til þess er hins vegar ekki hægt að sækja á einu ári til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga þar sem slíkt mundi skerða ráðstöfunarfé sjóðsins og þar með framlög til sveitarfélaga úr sjóðnum óeðlilega mikið. Því er ákveðið að dreifa þeirri byrði á nokkur ár með lántöku að upphæð 150 millj. kr. Það sem á vantar á þessu ári, um 40 millj. kr., greiðist beint úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Þessi ráðstöfun mun bæta fjárhagsstöðu Tryggingastofnunar ríkisins á þessu ári um 190 millj. kr.
Með 7. gr. er ákveðið að tekjur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skuli ekki aukast frá því sem ráð er fyrir gert í fjárlögum þótt tekjur af söluskatti og tollum verði meiri en áætlað var. Ríkissjóður nýtur þá slíkra hækkana að fullu. Áætlað er að hér geti verið um 30–40 millj. kr. að ræða á árinu 1984.
8.–16. gr. frv. fjalla um breytingar á greiðslum almannatrygginga vegna heilsugæslu. Í frv. er að finna ákvæði til breytinga á lögum nr. 67 frá 1971, um almannatryggingar. Eru þær gerðar í framhaldi af nýjum samningum sem Tryggingastofnun ríkisins hefur gert við heimilislækna og sérfræðinga. Jafnframt er gerð till. um breytingu á hlut sjúkratrygginga í tannlæknakostnaði. Mér þykir því rétt að gera lauslega grein fyrir þessum nýju samningum.
Með nýjum samningum við heimilislækna verður sú breyting á að í stað fasts númeragjalds fyrir hvern samlagsmann greiða sjúkrasamlög fast mánaðargjald, sem nemur 45 þús. kr. miðað við að heimilislæknir hafi a. m. k. 1 750 samlagsmenn, en hlutfallslega lægra sé fjöldi samlagsmanna minni. Af þessum 45 þús. kr. eru 21 þús. kr. ætlaðar til greiðstu kostnaðar við rekstur læknastofu. Enn fremur gerir samningurinn ráð fyrir að heimilislæknir fái greitt fyrir hvert unnið læknisverk samkvæmt gjaldskrá heilsugæslulækna. Með samningi þessum verða laun heimilislækna svipuð og laun heilsugæslulækna. Á árinu 1983 námu greiðslur til númeralækna vegna um 108 þús. samlagsmanna samtals um 28 millj. kr. Er ekki gert ráð fyrir að mánaðarleg útgjöld sjúkrasamlaga hækki samkvæmt samningum út samningstímann, eða fram til áramóta 1984–1985, umfram það sem leiðir af almennum launahækkunum og kostnaðarhækkunum í landinu.
Í frv. þessu er sett ákvæði um að sjúkrasamlög skuli aðeins greiða læknishjálp þeirra lækna sem samningsbundnir eru við Tryggingastofnun ríkisins vegna sjúkrasamlaga. Í hinum nýja samningi við sérfræðinga er gert ráð fyrir að til reynslu verði fallið frá áskilnaði um tilvísanir heimilis- eða heilsugæslulækna. Ástæðan fyrir þessu er sú, að í framkvæmd eru tilvísanir ekki talinn sá hemill á sérfræðiþjónustu sem ætlað hefur verið. Erfiðleikar hafa verið á að framfylgja ströngu tilvísunarkerfi og hafa af þeim sökum verið veittar frá því ýmsar undanþágur. Á árinu 1983 jókst læknisþjónusta sérfræðinga að magni til um 33%, en í krónum úr 54 millj. 1982 í 110 millj. 1983. Því virðist augljóst að tilvísanakerfið beini sjúklingum ekki nægilega til frumlækniskerfisins, það er heilsugæslustöðvar og heimilislækna, eins og lög gera ráð fyrir. Í samningum við sérfræðinga er leitast við að ná þessu markmiði á annan hátt en með tilvísunum. Á hitt ber þó að líta, að eðlilegt kann að teljast að sjúklingur geti sjálfur ákveðið til hvaða læknis hann leitar, þar með talið til sérfræðings, enda greiði hann aukalega fyrir það.
Viðtalsgjald hjá heimilislækni á heilsugæslustöð er nú 25 kr. en fyrir komu til sérfræðings er gjald sjúklings 100 kr. Fer ekki á milli mála að þessi greiðsla er lág. Er gert ráð fyrir að gjald þetta hækki nú í 75 kr. hjá heimilis- og heilsugæslulæknum en þó verður gjald fyrir símaviðtal 40 kr. Gjald fyrir komu til sérfræðings verður 275 kr.
Skv. hinum nýja samningi við sérfræðinga er ekki gert ráð fyrir að heildarkostnaður aukist umfram almennar launahækkanir og verðlagsbreytingar. Hins vegar mun hluti sjúklinga í lækniskostnaði, einkum í sérfræðiþjónustu, hækka úr um 17% í 45% heildarkostnaðar. Reikna má hins vegar með að vegna kostnaðarauka þessa muni sjúklingar leita enn frekar en áður til heimilislækna og heilsugæslulækna um læknisþjónustu sem þeir leituðu áður til sérfræðinga með. Það leiðir til þess að kostnaðarhækkun sjúklinga verður í raun minni. Með tilkomu heilsugæslulækna hefur aðstaða til frumlækninga stórbatnað þannig að minni þörf er fyrir þjónustu sérfræðinga en áður. Með hinum nýju samningum við heimilislækna er þjónustuaðstaða heimilislækna enn fremur bætt. Ætti það einnig að draga úr þörf fyrir þjónustu sérfræðinga.
Enginn samningur er nú í gildi við Tannlæknafélag Íslands og hafa endurgreiðslur farið fram samkvæmt heimild í 44. gr. laga um almannatryggingar og í samræmi við gjaldskrá Tannlæknafélags Íslands. Við þessar aðstæður þykir rétt að lögheimila heilbrn. að setja einhliða gjaldskrá. Auk þess er gerð till. um lækkun á þátttökuhlutfalli sjúkratrygginga í tannlæknakostnaði. Gert er ráð fyrir að allar almennar tannlækningar á börnum á grunnskólastigi verði eftir sem áður greiddar að fullu, til helminga af sjúkratryggingum og til helminga af sveitarfélögum.
Áætla má að um 50–60% kostnaðar vegna tannlækninga 16–18 ára unglinga sé vegna tannréttinga. Þykir nokkuð ljóst að kostnaður vegna tannréttinga hafi hækkað úr hófi og því rétt að einstaklingar beri meiri ábyrgð á kostnaði þessum en verið hefur. Sama gildir um eldri aldurshópa. Er af þeim sökum gert ráð fyrir minni þátttöku sjúkratrygginga í kostnaðinum en verið hefur. Það hefur hins vegar verið ljóst lengi að kostnaður vegna tannlækninga hefur verið ofviða elli- og örorkulífeyrisþegum sem aðeins hafa bætur almannatrygginga sér til lífsviðurværis. Reynt er með þessu frv. að rétta nokkuð hlut þeirra.
Með 17. gr. frv. er enn frestað um eitt ár því ákvæði grunnskólalaga að síðasta ár skólaskyldu komi til framkvæmda. Frestun þessi hefur í för með sér nálægt 10 millj. kr. sparnað.
18.–21. gr. fjalla um þær tekjutengdu barnabætur sem um var samið í samningum ASÍ og VSÍ í febrúar s. l. og ríkisstjórnin féllst á að greiða. Framkvæmdir eru eins og ráð var fyrir gert með litlum undantekningum eins og fram kemur í athugasemd. Í till. ASÍ og VSÍ segir: „Barnabótaaukinn verði úttærður þannig, að þeir skattgreiðendur fái hann ekki sem hafa möguleika á framfærslu með öðrum hætti, svo sem vegna vinnu við eigin atvinnurekstur, af eignum eða námslánum.“ Skattalög greina ekki á milli manna eftir starfsstéttum heldur eftir tekjum og eignum. Við fyrri greiðslu láglaunabóta hafa stjórnvöld ekki treyst sér til slíkrar mismununar eftir starfsstéttum. Lagt er til að svipuðum tilgangi verði náð með því að binda rétt til barnabótaviðauka við það að eignir viðkomandi fari ekki fram úr ákveðnu marki.
Af 48 684 hjónum munu 8 695 njóta einhvers barnabótaauka. Hjá 2 325 hjónum mun barnabótaaukinn nema 5% tekna eða meira. Án þess skerðingarákvæðis sem ég hef fjallað um, sem miðað er við eign, hefðu 2 792 fleiri hjón átt rétt á barnabótaauka. Að meginþorra er þar um að ræða hjón þar sem barnabótaauki hefði numið minna en 1% tekna. Af 5 712 einstæðum foreldrum munu 4 963 njóta einhvers barnabótaauka. Hjá flestum, eða 2 822, mun barnabótaaukinn nema 5% af tekjum eða meira. 612 fleiri einstæðir foreldrar mundu njóta barnabótaauka ef engin skerðingarákvæði væru. Þessar tölur eru byggðar á skattlíkani fjmrn. Eins og fram kemur í fskj. 2 með frv. hafa aðgerðir í félagsog skattamálum veruleg áhrif til leiðréttingar á tekjum hinna tekjulægstu umfram aðra tekjuþega. Fyrir tekjulága einstæða foreldra nemur sú leiðrétting 18–23% en 7–8% fyrir tekjutryggingarþega. Mun láta nærri að þeir sem erfiðasta afkomu hafa og njóta hinna félagslegu kjarabóta fái að fullu bætta þá kjaraskerðingu sem þeir hafa orðið fyrir á undanförnum mánuðum.
22. 24. gr. fjalla um sérstakt gjald af innfluttu kjarnfóðri. Í framleiðsluráðslögum er heimild um sérstakan skatt sem lagður er á innflutt kjarnfóður og ráðstafa má til landbúnaðarins skv. ákvörðun Framleiðsluráðs landbúnaðarins með samþykki ráðh. Nú er gert ráð fyrir því að skattur þessi innheimtist u. þ. b. að hálfu í ríkissjóð og verði ráðstafað til að mæta að hluta þörf fyrir útflutningsbætur umfram það sem í fjárlögum er gert ráð fyrir. Kjarnfóðursskattur sá sem Framleiðsluráð landbúnaðarins innheimtir mun verða lækkaður til mótvægis við toll þennan. Gert er ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs af tolli þessum verði 60 millj. kr. til áramóta en til þess tíma er tollurinn bundinn.
Með 25. gr. er lagt til að Seðlabanki Íslands fái að nýju sérstaka heimild til að binda fé innlánsstofnana almennt að fengnu samþykki ríkisstj. umfram það sem nú er ákveðið í lögum. Í tillgr. er gert ráð fyrir að heimild þessi gildi til 30. des. 1985. Að því er þó stefnt að hún falli niður þegar heildarlöggjöf um Seðlabanka Íslands hefur verið samþykkt á Alþingi. Slíkt frv. er nú í undirbúningi. Um nauðsyn þessarar heimildar hef ég áður fjallað.
Um lántökuheimildir þær sem felast í 26., 27. og 28. gr. frv. hef ég áður rætt.
Með frv. fylgir ítarleg grg. frá Þjóðhagsstofnun um horfur um verðlag og kaupmátt í ljósi umræddra ráðstafana í ríkisfjármálum. Í lokaorðum þess skjals segir með leyfi forseta: „En í heild virðist ekki fjarri lagi að meðalkaupmáttur ársins 1984 verði svipaður eða lítið eitt lakari en var á síðasta fjórðungi ársins 1983.“ Í skjali þessu kemur einnig fram sú mikla leiðrétting sem þeir tekjulægstu hafa fengið umfram aðra tekjuþega. Þetta staðfestir þá viðleitni ríkisstj. að vernda þann kaupmátt sem um var samið af aðilum vinnumarkaðarins. Það skal þó tekið fram að á fundi með fulltrúum ASÍ og VSÍ 21. febr. s. l. var á það lögð áhersla, að ríkisstj. áskili sér allan rétt til ráðstafana í ríkisfjármálum, þótt á það yrði fallist að fjármagns til aðstoðar við þá sem við lökustu kjörin búa yrði aflað án nýrra skatta. Engu að síður hefur ríkisstj. viljað forðast að skerða svo nokkru nemi umsaminn kaupmátt. Er þess vænst að það geti stuðlað að því að friður haldist á vinnumarkaðinum í þá 15 mánuði sem um var samið. Það er mjög mikilvægt.
Í upphafi míns máls lýsti ég þeim miklu efnahagserfiðleikum sem við Íslendingar höfum orðið að þola. Þetta er staðfest í samanburði, sem Efnahags- og framfarastofnunin í París birti yfir þjóðartekjur á hvern íbúa í meðlimaríkjum stofnunarinnar, sem eru flestar af auðugustu þjóðum heims. Skv. því yfirliti, reiknað í dollurum, var Ísland í fjórða efsta sæti árið 1981. Árið 1982 hafði landið fallið í sjötta sæti en svo virðist sem við séum nú á árinu 1984 í tólfta sæti með þjóðarframleiðslu á hvern íbúa. Þetta er svipuð staða og var á árunum 1975 og 1976. Þá fór sjávarafli að aukast og færði okkur upp í fjórða sætið. Nú hefur hann fallið og þjóðarframleiðslan með.
Í ræðu og riti nýlega var býsnast yfir því að við Íslendingar værum nú í 12. sæti af löndum Efnahags- og framfarastofnunarinnar með meðaltímakaup í iðnaði, eða m. ö. o. í því sama sæti og við erum taldir með þjóðartekjur á hvern íbúa. Þetta er að sjálfsögðu ekki undarlegt. Við þessu er að búast þegar þjóðartekjur falla.
Stóra verkefnið er nú að vinna sig upp úr þeirri lægð sem við erum í. Það verður að gera með nýju öflugu framtaki og nýsköpun atvinnulífsins, aukinni framleiðstu og hagvexti. Að sjálfsögðu hvílir það mjög á fyrirtækjum og einstaklingum. Ríkisvaldinu ber hins vegar skylda til að skapa efnahagslífinu traustan grundvöll og heilbrigða aðstöðu almennt til slíks framtaks. Um það mun þriðji áfanginn í efnahagsstefnu ríkisstj. fjalla.
Herra forseti. Að lokinni þessari umr. legg ég til að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.
Fjmrh. (Albert Guðmundsson): Virðulegi forseti. Við gerð fjárlaga tilkynnti ég að ég mundi gefa Alþingi yfirlit yfir stöðu ríkisfjármála eins og hún blasti við eftir fyrsta ársfjórðung 1984. Hart nær tveir mánuðir eru nú liðnir frá því að ég gerði Alþingi grein fyrir breyttum horfum varðandi afkomu ríkissjóðs á þessu ári. Þau breyttu vinnubrögð sem fólust í því að reifa fyrirsjáanlegan vanda svo snemma hafa vissulega vakið athygli þótt reynt hafi verið að gera þau tortryggileg. Þessi vinnubrögð hafa orðið til þess að nú, löngu fyrir mitt ár, hefur tekist að ná samstöðu um aðgerðir sem verulega minnka þann vanda sem við hefðum ella staðið frammi fyrir síðar á árinu. Þar er strax um verulegan ávinning að ræða, hvað sem liður ásökunum í minn garð fyrir að hafa skýrt frá vandanum áður en hann var yfir okkur duninn af fullum þunga, enda er óvíst að tekist hefði að ná saman um úrræði við vandamáli sem ekki mátti opinbera fyrir þjóðinni.
Umræður undanfarinna vikna og mánaða um ríkisfjármálin hafa einnig orðið til þess að gerbreyta viðhorfi margra aðila í stjórnkerfinu til sparnaðar og eyðslu. Það hefur ekki farið fram hjá neinum hver vandinn er og hversu mikill hann er og stjórnendur ríkisstofnana og ráðuneyta gera sér nú betur grein fyrir því en áður að það er tilgangslaust að tala um meiri eyðslu og útgjöld, enda hefur stórlega dregið úr ásókn í aukafjárveitingar, sem orðnar voru að hreinni plágu þegar ég kom fyrst í fjmrn. fyrir tæpu ári. Sú staðreynd er einnig til marks um það, að þrátt fyrir að halli blasi við hjá ríkissjóði í heild eru einstakir fjárlagaliðir hjá langflestum ráðuneytum og stofnunum mun raunhæfari og marktækari en um árabil. En hverjum hefur dottið í hug að takast mundi að leiðrétta allar fjárlagaskekkjur fyrri ára á einu bretti í fjárlögum þessa árs? Slíkur bjartsýnismaður var ég a. m. k. ekki.
Ég held að skynsamlegt sé fyrir þingheim að skyggnast eilítið inn í baksvið þessa máls alls og þær efnahagslegu hræringar sem það mynda. Hvernig stendur á því að ríkissjóður, þ. e. A-hluti hans, var kominn í alvarlegan halla á árinu 1983 sem ekki er enn séð fyrir endann á og við erum raunar að súpa seyðið af nú þegar við glímum við aðsteðjandi vanda? Ástæðan er í raun og veru sáraeinföld, eins og hv. þm. Lárus Jónsson, formaður fjvn., hefur margbent á en margir þverskallast við að skilja. Hún er sú, að með minnkandi þjóðarframleiðslu og þjóðartekjum hefur veltan í þjóðfélaginu stórminnkað. Þegar jafnhliða er tekið á umframneyslunni í þjóðfétaginu, sem birtist í formi viðskiptahalla við útlönd, eins og gert var í fyrra minnkar veltan enn. Umframeyðslan var einkenni á ferli síðustu ríkisstj. bæði í blíðu og stríðu og á þessu sjúkdómseinkenni nærðist ríkissjóður, því stærsti hluti tekna ríkissjóðs eru óbeinir skattar af veltunni í landinu.
Þegar byrjað var að takast á við umframneysluna, sjúkdómseinkennið, hlutu því tekjur ríkissjóðs að minnka, en útgjöldin eru hins vegar í mun ríkari mæli óháð sveiflum í veltu, eins og allir þekkja. Við þessa tekjulækkun vegna minni veltu bættist síðan sú staðreynd að óhjákvæmilegt var að draga úr skattheimtu, eins og ríkisstj. gerði á síðasta ári.
Til þess að mæta þessu samanlagða tekjutapi, sem gæti numið á fjórða milljarð kr., var við fjárlagagerð fyrir þetta ár ráðist skipulega í meiri niðurfærslur útgjalda á ýmsum sviðum en lengi hefur verið árætt. Því verkefni er að sjálfsögðu ekki lokið og verður haldið áfram í fjárlagagerðinni fyrir næsta ár sem nú fer senn að hefjast. Við hljótum að stefna að því að leysa hluta þess vanda sem eftir er í fjárlögum næsta árs.
Við meðferð hins fyrirsjáanlega fjárlagahalla hafa menn gjarnan spurt hvort leggja ætti á nýja skatta. Mitt viðhorf í því efni hefur alltaf verið skýrt. Ég er andvígur nýjum sköttum. Í hnotskurn eru þeir kostir sem staðið er frammi fyrir eftirfarandi:
Á að leggja nýja skatta á atmenning ofan á þá kjararýrnun sem varð á síðasta ári og gera almenningi þannig erfiðara fyrir og setja jafnvel samkomulagið við vinnumarkaðinn í hættu? Eða á að fresta hluta vandans með lánum og víkja þar með frá upphaflegum áformum ríkisstj. í lánamátum, þótt það þýði e. t. v. nokkra áhættu varðandi önnur markmið?
Þetta eru ekki glæsilegir valkostir og ekkert gamanmál að gera hér upp á milli. En miðað við allar aðstæður og lífssannfæringu mína hlaut síðari leiðin að verða fyrir valinu, að því marki sem ekki náðist að leysa vandann með lækkun útgjalda og niðurskurði. Það er hvorki stefna ríkisstj. né Sjálfstfl. að íþyngja almenningi frekar með sköttum.
Í ræðu minni hér á hv. Alþingi í marsmánuði s. l., þegar afkoma ríkissjóðs fyrir árið 1983 var til umr., gerði ég grein fyrir þeim fyrirséða fjárhagsvanda sem væri hjá A-hluta ríkissjóðs á þessu ári að óbreyttu. Endurskoðuð áætlun gerði ráð fyrir að greiðsluhallinn gæti numið allt að 2.1 milljarði kr. Meginskýringar á þeim breyttu horfum til hins verra í ríkisfjármálum frá því að fjárlög fyrir árið 1984 voru afgreidd hér á Atþingi mátti rekja til eftirfarandi þátta:
Ekki hafði við afgreiðstu fjárlaga verið gert ráð fyrir útgjöldum sem mundu lenda á ríkissjóði að óbreyttu og ýmis útgjöld voru ekki að fullu þekkt. Við afgreiðslu fjárlaga var stefnt að lækkun útgjalda sem óvíst er að nái fram að ganga. Óvíst var hvort innlend fjáröflun mundi gefa ríkissjóði það fjármagn sem ráð var fyrir gert.
Á undanförnum árum hefur ámóta fjárhagsvandi blasað við í ríkisfjármálum innan fjárlagaársins. Þeim vanda hefur verið mætt að meginhluta til með því að tekjur ríkissjóðs hafa orðið hærri en fjárlög ársins hafa gert ráð fyrir vegna þess að ríkissjóður hefur hagnast á þeirri óðaverðbólgu sem geisað hefur hér á landi á undanförnum árum. Einnig hefur verið gripið til taumlausra aukafjárveitinga eins og ég hef margoft bent á og ég tel stórvarhugaverðar. En nú horfir öðruvísi við sem betur fer. Tekist hefur nú á örskömmum tíma með samstilltu átaki fólksins í landinu og ríkisstj. að ná verðbólgunni verulega niður. Ríkissjóður er hættur að hagnast á mestu meinsemd efnahagslífsins, óðaverðbólgu og taumlausum viðskiptahalla. Þessar breyttu forsendur gera þær kröfur til ríkisstj. og alþm. að sá þáttur í útgjöldum þjóðarinnar sem við höfum umsjón með fyrir hönd landsmanna aðlagi sig að breyttum aðstæðum í efnahagsmálum okkar. Vegna þessara breyttu aðstæðna taldi ég það skyldu mína sem fjmrh. að gera Alþingi grein fyrir fyrirséðum fjárhagsvanda hjá ríkissjóði á þessu ári og fá fram vilja ríkisstj. og Alþingis um lausn á honum. Menn verða að gera sér grein fyrir því að þær aðstæður eru nú ekki fyrir hendi að fjmrh. geti vænst þess að sá þjóðhagsvandi sem nú steðjar að leysist af sjálfu sér, heldur verður að grípa til aðgerða.
Það frv. sem hér er til umr. um ráðstafanir í ríkisfjármálum, peninga- og lánsfjármálum fjallar um till. stjórnarflokkanna um lausn á þeim fyrirséða fjárhagsvanda.
Hæstv. forsrh. hefur gert ítarlega grein fyrir efnisatriðum þessa frv. sem hér er til umr. og horfum í efnahags- og peningamálum þjóðarinnar um þessar mundir. Ég mun því ekki rekja hér einstakar greinar frv. Þó vil ég leggja áherslu á að þær ráðstafanir sem frv. gerir ráð fyrir til að mæta fyrirséðum greiðsluhalla ríkissjóðs gera ráð fyrir miklum niðurskurði útgjalda. Æskilegt hefði verið að ganga enn lengra í þeim efnum en gert er. Ástæðan fyrir því að ekki var talið fært að ganga enn lengra í almennum niðurskurði ríkisútgjalda er m. a. að við fjárlagagerðina fyrir árið 1984 var gengið mjög langt í að draga saman ríkisútgjöld. Í því sambandi vil ég vekja athygli alþm. á þeirri ákvörðun sem felst í samþykkt fjárlaga fyrir þetta ár, að ríkisaðilum er skylt að lækka launaútgjöld að raungildi um 2.5% og önnur rekstrargjöld um 5%. sú staðreynd að aðeins um 10% af útgjöldum A-hluta ríkissjóðs gengur til stofnframkvæmda og framlaga til framkvæmdasjóða gefur takmarkað svigrúm til niðurskurðar á þessum útgjaldaflokki, bæði vegna þess að búið er að binda stóran hluta þess fjármagns með fyrirframgerðum samningum og að hér er fjöldinn allur af verkefnum og ekki stórar fjárhæðir sem ganga til einstakra viðfangsefna.
Stærsti hluti rekstrarútgjalda og framlaga til rekstrar er á sviði heilbrigðis- og menntamála. Það er alveg ljóst í mínum huga að ef menn ætla sér að ná jafnvægi í ríkisfjármálum á næstu árum án þess að auka skattátögur verður að koma til betri nýting fjármuna í þessum málaflokkum. Þá tel ég mjög brýnt að gerð séu gleggri skil á fjárhagsábyrgð aðila og ákvörðunum um framkvæmdir. Bind ég miklar vonir við það starf sem nú fer fram á vegum ríkis og sveitarfélaga um að finna leiðir til breyttrar verkefnaskiptingar og að hún muni leiða til betri nýtingar fjármuna og meiri ábyrgðar en nú er.
Þá tel ég að ekki sé fært lengur að ríkissjóður gegni stóru millifærsluhlutverki í verðmyndunarkerfi landsmanna. Það hlýtur að vera öllum til góðs, bæði framleiðendum og kaupendum, að hið rétta kostnaðarverð endurspeglist í söluverði framleiðslunnar. Í þeim ráðstöfunum sem hér eru til umr. var gengið eins skammt og frekast var unnt í að auka átögur á almenning í landinu. Miðað við þær aðstæður sem nú ríkja hjá launafólki er ekki hægt að leggja auknar álögur á það. Sá mikli árangur sem náðst hefur í slagnum við verðbólguna er m. a. að þakka því hvað fólk hefur verið reiðubúið að taka á sig auknar byrðar. Ekki er hægt að ganga öllu lengra í þeim efnum meðan við erum að vinna okkur út úr þeim verðbólguvanda sem hrjáð hefur allt efnahagslíf okkar.
Eins og ég hef áður sagt hér á hv. Alþingi er mörgum alþm. meira umhugað um að hrinda af stað útgjaldaskuldbindingu fyrir ríkissjóð heldur en að draga úr útgjöldum. Umfjöllun Alþingis og lagasetning um ýmsa þarfa málaflokka er því miður um of bundin öðrum atriðum en því hver fjármálaáhrif tiltekinnar lagasetningar eru. Við þau skilyrði sem þjóðin býr nú er ekkert svigrúm til slíkrar lagasetningar. Það er löngu tímabært að endurskoða lög sem hafa í för með sér sjálfvirk útgjöld, enda mörg þeirra sett við aðrar aðstæður en ríkjandi eru í dag og sum hver vafalaust úrelt og koma í veg fyrir eðlilega þróun í þjóðfélaginu. Alþm. verða að vera sér meðvitandi um möguleika og vilja fólksins um hvað langt má ganga í að auka skattaálögur á landsmenn í einu eða öðru formi. Því verður ekkert lát á því meðan ég gegni embætti fjmrh. að beitt verði ýtrasta aðhaldi á öllum sviðum útgjalda hjá ríkissjóði.
Virðulegi forseti. Ég vil að lokum leggja áherslu á nauðsyn þess að ströngu aðhaldi verði áfram beitt í ríkisrekstrinum öllum. Það frv. sem hér er til umr. er aðeins áfangi í þeirri viðleitni að ná fullum tökum á vanda ríkissjóðs og þjóðarbúsins. Við höfum orðið að fresta lausn á hluta vandans og dreifa honum yfir lengri tíma, ekki vegna þess að það sé æskilegt heldur af illri nauðsyn. Þess vegna verður nú að snúa sér að því af fyllstu hörku og fyllstu ábyrgð að leysa vandann til frambúðar með nauðsynlegum skipulags- og kerfisbreytingum, m. a. í tengslum við fjárlagagerðina fyrir árið 1985.