04.05.1984
Neðri deild: 80. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5380 í B-deild Alþingistíðinda. (4673)
340. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Við gerð fjárlaga tilkynnti ég að ég mundi gefa Alþingi yfirlit yfir stöðu ríkisfjármála eins og hún blasti við eftir fyrsta ársfjórðung 1984. Hart nær tveir mánuðir eru nú liðnir frá því að ég gerði Alþingi grein fyrir breyttum horfum varðandi afkomu ríkissjóðs á þessu ári. Þau breyttu vinnubrögð sem fólust í því að reifa fyrirsjáanlegan vanda svo snemma hafa vissulega vakið athygli þótt reynt hafi verið að gera þau tortryggileg. Þessi vinnubrögð hafa orðið til þess að nú, löngu fyrir mitt ár, hefur tekist að ná samstöðu um aðgerðir sem verulega minnka þann vanda sem við hefðum ella staðið frammi fyrir síðar á árinu. Þar er strax um verulegan ávinning að ræða, hvað sem liður ásökunum í minn garð fyrir að hafa skýrt frá vandanum áður en hann var yfir okkur duninn af fullum þunga, enda er óvíst að tekist hefði að ná saman um úrræði við vandamáli sem ekki mátti opinbera fyrir þjóðinni.
Umræður undanfarinna vikna og mánaða um ríkisfjármálin hafa einnig orðið til þess að gerbreyta viðhorfi margra aðila í stjórnkerfinu til sparnaðar og eyðslu. Það hefur ekki farið fram hjá neinum hver vandinn er og hversu mikill hann er og stjórnendur ríkisstofnana og ráðuneyta gera sér nú betur grein fyrir því en áður að það er tilgangslaust að tala um meiri eyðslu og útgjöld, enda hefur stórlega dregið úr ásókn í aukafjárveitingar, sem orðnar voru að hreinni plágu þegar ég kom fyrst í fjmrn. fyrir tæpu ári. Sú staðreynd er einnig til marks um það, að þrátt fyrir að halli blasi við hjá ríkissjóði í heild eru einstakir fjárlagaliðir hjá langflestum ráðuneytum og stofnunum mun raunhæfari og marktækari en um árabil. En hverjum hefur dottið í hug að takast mundi að leiðrétta allar fjárlagaskekkjur fyrri ára á einu bretti í fjárlögum þessa árs? Slíkur bjartsýnismaður var ég a. m. k. ekki.
Ég held að skynsamlegt sé fyrir þingheim að skyggnast eilítið inn í baksvið þessa máls alls og þær efnahagslegu hræringar sem það mynda. Hvernig stendur á því að ríkissjóður, þ. e. A-hluti hans, var kominn í alvarlegan halla á árinu 1983 sem ekki er enn séð fyrir endann á og við erum raunar að súpa seyðið af nú þegar við glímum við aðsteðjandi vanda? Ástæðan er í raun og veru sáraeinföld, eins og hv. þm. Lárus Jónsson, formaður fjvn., hefur margbent á en margir þverskallast við að skilja. Hún er sú, að með minnkandi þjóðarframleiðslu og þjóðartekjum hefur veltan í þjóðfélaginu stórminnkað. Þegar jafnhliða er tekið á umframneyslunni í þjóðfétaginu, sem birtist í formi viðskiptahalla við útlönd, eins og gert var í fyrra minnkar veltan enn. Umframeyðslan var einkenni á ferli síðustu ríkisstj. bæði í blíðu og stríðu og á þessu sjúkdómseinkenni nærðist ríkissjóður, því stærsti hluti tekna ríkissjóðs eru óbeinir skattar af veltunni í landinu.
Þegar byrjað var að takast á við umframneysluna, sjúkdómseinkennið, hlutu því tekjur ríkissjóðs að minnka, en útgjöldin eru hins vegar í mun ríkari mæli óháð sveiflum í veltu, eins og allir þekkja. Við þessa tekjulækkun vegna minni veltu bættist síðan sú staðreynd að óhjákvæmilegt var að draga úr skattheimtu, eins og ríkisstj. gerði á síðasta ári.
Til þess að mæta þessu samanlagða tekjutapi, sem gæti numið á fjórða milljarð kr., var við fjárlagagerð fyrir þetta ár ráðist skipulega í meiri niðurfærslur útgjalda á ýmsum sviðum en lengi hefur verið árætt. Því verkefni er að sjálfsögðu ekki lokið og verður haldið áfram í fjárlagagerðinni fyrir næsta ár sem nú fer senn að hefjast. Við hljótum að stefna að því að leysa hluta þess vanda sem eftir er í fjárlögum næsta árs.
Við meðferð hins fyrirsjáanlega fjárlagahalla hafa menn gjarnan spurt hvort leggja ætti á nýja skatta. Mitt viðhorf í því efni hefur alltaf verið skýrt. Ég er andvígur nýjum sköttum. Í hnotskurn eru þeir kostir sem staðið er frammi fyrir eftirfarandi:
Á að leggja nýja skatta á atmenning ofan á þá kjararýrnun sem varð á síðasta ári og gera almenningi þannig erfiðara fyrir og setja jafnvel samkomulagið við vinnumarkaðinn í hættu? Eða á að fresta hluta vandans með lánum og víkja þar með frá upphaflegum áformum ríkisstj. í lánamátum, þótt það þýði e. t. v. nokkra áhættu varðandi önnur markmið?
Þetta eru ekki glæsilegir valkostir og ekkert gamanmál að gera hér upp á milli. En miðað við allar aðstæður og lífssannfæringu mína hlaut síðari leiðin að verða fyrir valinu, að því marki sem ekki náðist að leysa vandann með lækkun útgjalda og niðurskurði. Það er hvorki stefna ríkisstj. né Sjálfstfl. að íþyngja almenningi frekar með sköttum.
Í ræðu minni hér á hv. Alþingi í marsmánuði s. l., þegar afkoma ríkissjóðs fyrir árið 1983 var til umr., gerði ég grein fyrir þeim fyrirséða fjárhagsvanda sem væri hjá A-hluta ríkissjóðs á þessu ári að óbreyttu. Endurskoðuð áætlun gerði ráð fyrir að greiðsluhallinn gæti numið allt að 2.1 milljarði kr. Meginskýringar á þeim breyttu horfum til hins verra í ríkisfjármálum frá því að fjárlög fyrir árið 1984 voru afgreidd hér á Atþingi mátti rekja til eftirfarandi þátta:
Ekki hafði við afgreiðstu fjárlaga verið gert ráð fyrir útgjöldum sem mundu lenda á ríkissjóði að óbreyttu og ýmis útgjöld voru ekki að fullu þekkt. Við afgreiðslu fjárlaga var stefnt að lækkun útgjalda sem óvíst er að nái fram að ganga. Óvíst var hvort innlend fjáröflun mundi gefa ríkissjóði það fjármagn sem ráð var fyrir gert.
Á undanförnum árum hefur ámóta fjárhagsvandi blasað við í ríkisfjármálum innan fjárlagaársins. Þeim vanda hefur verið mætt að meginhluta til með því að tekjur ríkissjóðs hafa orðið hærri en fjárlög ársins hafa gert ráð fyrir vegna þess að ríkissjóður hefur hagnast á þeirri óðaverðbólgu sem geisað hefur hér á landi á undanförnum árum. Einnig hefur verið gripið til taumlausra aukafjárveitinga eins og ég hef margoft bent á og ég tel stórvarhugaverðar. En nú horfir öðruvísi við sem betur fer. Tekist hefur nú á örskömmum tíma með samstilltu átaki fólksins í landinu og ríkisstj. að ná verðbólgunni verulega niður. Ríkissjóður er hættur að hagnast á mestu meinsemd efnahagslífsins, óðaverðbólgu og taumlausum viðskiptahalla. Þessar breyttu forsendur gera þær kröfur til ríkisstj. og alþm. að sá þáttur í útgjöldum þjóðarinnar sem við höfum umsjón með fyrir hönd landsmanna aðlagi sig að breyttum aðstæðum í efnahagsmálum okkar. Vegna þessara breyttu aðstæðna taldi ég það skyldu mína sem fjmrh. að gera Alþingi grein fyrir fyrirséðum fjárhagsvanda hjá ríkissjóði á þessu ári og fá fram vilja ríkisstj. og Alþingis um lausn á honum. Menn verða að gera sér grein fyrir því að þær aðstæður eru nú ekki fyrir hendi að fjmrh. geti vænst þess að sá þjóðhagsvandi sem nú steðjar að leysist af sjálfu sér, heldur verður að grípa til aðgerða.
Það frv. sem hér er til umr. um ráðstafanir í ríkisfjármálum, peninga- og lánsfjármálum fjallar um till. stjórnarflokkanna um lausn á þeim fyrirséða fjárhagsvanda.
Hæstv. forsrh. hefur gert ítarlega grein fyrir efnisatriðum þessa frv. sem hér er til umr. og horfum í efnahags- og peningamálum þjóðarinnar um þessar mundir. Ég mun því ekki rekja hér einstakar greinar frv. Þó vil ég leggja áherslu á að þær ráðstafanir sem frv. gerir ráð fyrir til að mæta fyrirséðum greiðsluhalla ríkissjóðs gera ráð fyrir miklum niðurskurði útgjalda. Æskilegt hefði verið að ganga enn lengra í þeim efnum en gert er. Ástæðan fyrir því að ekki var talið fært að ganga enn lengra í almennum niðurskurði ríkisútgjalda er m. a. að við fjárlagagerðina fyrir árið 1984 var gengið mjög langt í að draga saman ríkisútgjöld. Í því sambandi vil ég vekja athygli alþm. á þeirri ákvörðun sem felst í samþykkt fjárlaga fyrir þetta ár, að ríkisaðilum er skylt að lækka launaútgjöld að raungildi um 2.5% og önnur rekstrargjöld um 5%. sú staðreynd að aðeins um 10% af útgjöldum A-hluta ríkissjóðs gengur til stofnframkvæmda og framlaga til framkvæmdasjóða gefur takmarkað svigrúm til niðurskurðar á þessum útgjaldaflokki, bæði vegna þess að búið er að binda stóran hluta þess fjármagns með fyrirframgerðum samningum og að hér er fjöldinn allur af verkefnum og ekki stórar fjárhæðir sem ganga til einstakra viðfangsefna.
Stærsti hluti rekstrarútgjalda og framlaga til rekstrar er á sviði heilbrigðis- og menntamála. Það er alveg ljóst í mínum huga að ef menn ætla sér að ná jafnvægi í ríkisfjármálum á næstu árum án þess að auka skattátögur verður að koma til betri nýting fjármuna í þessum málaflokkum. Þá tel ég mjög brýnt að gerð séu gleggri skil á fjárhagsábyrgð aðila og ákvörðunum um framkvæmdir. Bind ég miklar vonir við það starf sem nú fer fram á vegum ríkis og sveitarfélaga um að finna leiðir til breyttrar verkefnaskiptingar og að hún muni leiða til betri nýtingar fjármuna og meiri ábyrgðar en nú er.
Þá tel ég að ekki sé fært lengur að ríkissjóður gegni stóru millifærsluhlutverki í verðmyndunarkerfi landsmanna. Það hlýtur að vera öllum til góðs, bæði framleiðendum og kaupendum, að hið rétta kostnaðarverð endurspeglist í söluverði framleiðslunnar. Í þeim ráðstöfunum sem hér eru til umr. var gengið eins skammt og frekast var unnt í að auka átögur á almenning í landinu. Miðað við þær aðstæður sem nú ríkja hjá launafólki er ekki hægt að leggja auknar álögur á það. Sá mikli árangur sem náðst hefur í slagnum við verðbólguna er m. a. að þakka því hvað fólk hefur verið reiðubúið að taka á sig auknar byrðar. Ekki er hægt að ganga öllu lengra í þeim efnum meðan við erum að vinna okkur út úr þeim verðbólguvanda sem hrjáð hefur allt efnahagslíf okkar.
Eins og ég hef áður sagt hér á hv. Alþingi er mörgum alþm. meira umhugað um að hrinda af stað útgjaldaskuldbindingu fyrir ríkissjóð heldur en að draga úr útgjöldum. Umfjöllun Alþingis og lagasetning um ýmsa þarfa málaflokka er því miður um of bundin öðrum atriðum en því hver fjármálaáhrif tiltekinnar lagasetningar eru. Við þau skilyrði sem þjóðin býr nú er ekkert svigrúm til slíkrar lagasetningar. Það er löngu tímabært að endurskoða lög sem hafa í för með sér sjálfvirk útgjöld, enda mörg þeirra sett við aðrar aðstæður en ríkjandi eru í dag og sum hver vafalaust úrelt og koma í veg fyrir eðlilega þróun í þjóðfélaginu. Alþm. verða að vera sér meðvitandi um möguleika og vilja fólksins um hvað langt má ganga í að auka skattaálögur á landsmenn í einu eða öðru formi. Því verður ekkert lát á því meðan ég gegni embætti fjmrh. að beitt verði ýtrasta aðhaldi á öllum sviðum útgjalda hjá ríkissjóði.
Virðulegi forseti. Ég vil að lokum leggja áherslu á nauðsyn þess að ströngu aðhaldi verði áfram beitt í ríkisrekstrinum öllum. Það frv. sem hér er til umr. er aðeins áfangi í þeirri viðleitni að ná fullum tökum á vanda ríkissjóðs og þjóðarbúsins. Við höfum orðið að fresta lausn á hluta vandans og dreifa honum yfir lengri tíma, ekki vegna þess að það sé æskilegt heldur af illri nauðsyn. Þess vegna verður nú að snúa sér að því af fyllstu hörku og fyllstu ábyrgð að leysa vandann til frambúðar með nauðsynlegum skipulags- og kerfisbreytingum, m. a. í tengslum við fjárlagagerðina fyrir árið 1985.