04.05.1984
Neðri deild: 80. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5383 í B-deild Alþingistíðinda. (4674)
340. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Það frv. sem hér er á dagskrá kom fyrir augu hv. alþm. í gær. Forustumenn stjórnarandstöðuflokkanna fengu málið að vísu aðeins fyrr í hendur sem trúnaðarmál. Hér er um að ræða allviðamikið mál svo að það tekur að sjálfsögðu nokkurn tíma að átta sig á öllum efnisatriðum þess. Við þessa umr. er því vafalaust eitthvað af atriðum sem ætti að ræða sérstaklega en ekki verður til skila haldið sem skyldi vegna þess hvað málið hefur verið skamman tíma til meðferðar. Tími gefst hins vegar til að ræða málið síðar við aðrar umræður hér í þinginu þegar hv. þingnefndir hafa fjallað um málið.
Hæstv. fjmrh. komst þannig að orði hér áðan í ræðu sinni að hann hafi ekki verið slíkur bjartsýnismaður að hann tryði því að jafnvægi næðist í ríkisfjármálunum á árinu 1984. Í þessum efnum koma orð hæstv. fjmrh. ekki heim og saman við stefnuyfirlýsingu ríkisstj. Steingríms Hermannssonar, en það er sú ríkisstj. sem hæstv. ráðh. á þó sæti í. Þar segir með leyfi hæstv. forseta um ríkisfjármál:
„Gerð fjárlaga fyrir árið 1984 miðist við að ná jafnvægi á ný í ríkisfjármálum.“
Þetta skrifaði hæstv. fjmrh. niður og samþykkti um leið og hann settist inn í ríkisstj. Það er bersýnilegt að hann hefur þegar það gerðist verið sá bjartsýnismaður að búast við því að jafnvægi næðist í ríkisfjármálum á árinu 1984. Þegar hann svo gekk frá fjárlögum fyrir árið 1984 þá gerði hann ráð fyrir því að halli yrði á fjárlögum upp á 406 millj. kr. og útgjöld fjárlaga yrðu 18.3 milljarðar kr. Aðeins tveimur mánuðum seinna, eftir að hæstv. fjmrh. hafði gengið frá hinu atfullkomna frv. til fjárlaga fyrir árið 1984, kom í ljós að útgjöldin höfðu ekki lækkað heldur hækkað svo stórkostlega að tölur sem áður voru í kringum 18 milljarðar voru komnar um og yfir 20 milljarða kr. Niðurstaðan í þessu dæmi, sem hæstv. fjmrh. og hæstv. forsrh. leggja hér fyrir, er sú að það er halli á ríkissjóði á þessu ári upp á einn milljarð kr. þrátt fyrir þær ráðstafanir sem ríkisstj. er hér að gera grein fyrir.
Ég vil hér, herra forseti, fara yfir níu meginatriði í sambandi við þetta frv. og ríkisfjármálin eru eitt af þeim mörgu atriðum. Það er greinilegt af þessu frv. að ríkisstj. hefur gefist upp á að taka á ríkisfjármálavandanum. Þar er í raun og veru enginn vandi leystur. Öllu er vísað á framtíðina, börn okkar og barnabörn, með erlendum lántökum og það sem þá stendur eftir er lagt á þá sem síst skyldi í þjóðfélaginu, þ. e. annars vegar sjúklinga sem eru afhentir hæstv. heilbrrh. sem frjáls gjaldstofn skv. því lagafrv. sem hér liggur fyrir með stórfelldum hækkunum á landbúnaðarafurðum og með hækkunum á þjónustu almannatrygginganna eins og tannviðgerðum. Þar eru lausnirnar sem ríkisstj. hefur fundið.
Hæstv. fjmrh. var svo vinsamlegur að skýra okkur frá því fyrir nokkrum vikum í umr. utan dagskrár að þegar gatið yrði brúað, vandinn yrði leystur þá mundi þjóðin fá að sjá ógnvekjandi bola. Hann skellti sér þannig í dýraríkið og brá sér í hástemmdar bókmenntalegar samlíkingar og seildist þetta langt, að líkja ríkisstj. við ógnvekjandi bola sem bráðum mundi mæta hv. Alþingi og landsmönnum öllum.
Þegar varaformaður Sjálfstfl. hins vegar heldur fund á Seltjarnarnesi þá er skipt um í dýraríkinu. Þá er það ekki lengur ógnvekjandi boli heldur lítil mús sem ríkisstj. sýnir með þessum aðgerðum sínum. Ég held í raun og veru, herra forseti, að skýrasta einkunnin, sem hægt er að gefa þessu ríkisfjármálafrv., komi fram í ræðu varaformanns Sjálfstfl. á fundi Sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi í gærkvöldi. Frá þessari ræðu er sagt í Morgunblaðinu í dag og hv. þm. Friðrik Sophusson segir skv. frásögn Morgunblaðsins:
„Þetta tók um tvo mánuði og þá fæddist lítil mús.“ síðan segir: „Friðrik deildi í ræðu sinni hart á efnahagsaðgerðir ríkisstj., aðdraganda þeirra og benti á þær hættur sem fram undan gætu verið vegna þeirra gífurlegu erlendu lántaka sem fyrirhugaðar væru.
Hann fjallaði enn fremur um innanflokksmál Sjálfstfl. og ríkisstjórnarsamstarfið og sagði grundvallaratriði nú að flokkurinn næði saman innbyrðis.“ Hinn samhenti og sterki flokkur þarf sem sagt að snúa sér núna að því meginverkefni að reyna að ná saman innbyrðis að mati varaformanns Sjálfstfl. Og hann heldur áfram: „og nefndi landbúnaðarmál sem dæmi um þann málaflokk sem mikil óeining ríkir um.“ Þá ræddi hann einnig um formann Sjálfstfl., en það kemur ekki efnahagsvandamálum við svo að ég sleppi því hér úr þessum upplestri. Síðan sagði varaformaður Sjálfstfl. „er hann hafði lýst skoðunum sínum á efnahagsaðgerðunum að hann teldi að reynslan ætti nú að kenna Sjálfstæðismönnum nokkra lexíu. Verið væri að ýta vandanum á undan sér sem þýddi að Sjálfstfl. „kæmi buxnalaus til næstu kosningabaráttu“. Hann sagði að nú ætti að setjast niður og endurskoða stjórnarsáttmálann. Sjálfstfl. yrði síðan að ná samstöðu í mikilsverðum málum, t. a. m. landbúnaðarmálum, og ekki væri hægt að ætlast til að unnt yrði að ná samstöðu með Framsókn þegar samstaða væri ekki fyrir hendi innbyrðis.“ Hérna er auðvitað komin skýringin á því hvað glíman við gatið hefur verið löng og erfið og ströng. Íhaldið hefur ekki getað komið sér saman innbyrðis og þess vegna hefur Sjálfstfl. ekki getað komið sér saman um lausn vandans gagnvart Framsfl.
En varaformaður Sjálfstfl. hefur nóg í pokahorninu og hann sagði fleira. Hann sagði skv. frétt Morgunblaðsins „að síðan ætti að setjast að samningaborði með Framsókn um hin stóru úrlausnarmál. Ef Framsókn væri ekki tilbúin til raunhæfra aðgerða ætti Sjálfstfl. ekki að hika við að tala við aðra flokka og ef ekki næðist saman með þeim ætti hann að leita nýs umboðs frá íslenskri þjóð.
Þá sagði varaformaðurinn að í frv. ríkisstj. væri ekki gert ráð fyrir stórum útgjaldaliðum sem fyrirsjáanlega þyrfti einnig að taka erlend lán fyrir. Í húsnæðislánapakkann vantaði t. d. enn 300–400 millj. kr. ef standa ætti við digrar yfirlýsingar félmrh.“ — Digrar yfirlýsingar félmrh. — það var orðið sem var notað. „Þá væri óleystur vandi útgerðarinnar, en lausaskuldir hennar væru nú taldar nema 400–500 millj. kr. Hann sagði enn fremur að nýir útreikningar Þjóðhagsstofnunar á þjóðarframleiðslu, sem náð hefði hlutfalli erlendra skulda af þjóðarframleiðslu niður í 59.6%, væru ekki „búmannslegar“ og þar teflt á tæpasta vað, hvort sem það væri gert til að hlífa yfirlýsingaglöðum ráðh. eða í öðrum tilgangi.“
Hér er varaformaður Sjálfstfl. bersýnilega að segja það að útreikningar Þjóðhagsstofnunar hafi verið gerðir til þess að halda yfirlýsingaglöðum ráðh., þ. e. fjmrh., í embætti.
Hæstv. fjmrh. var búinn að lýsa því yfir að hann mundi segja af sér ef skuldahlutfall þjóðarinnar færi fram yfir 60%. Þjóðhagsstofnun fann nýja tölu. Og varaformaður Sjálfstfl. segir að þar sé teflt á tæpasta vað, hvort sem það væri gert til að hlífa yfirlýsingaglöðum ráðherra — ekki ráðherrum — eða í öðrum tilgangi. M. ö. o. hæstv. fjmrh. situr, en hann situr áfram út á útreikninga Þjóðhagsstofnunar.
Staðan er sú í þessum málum varðandi ríkisfjármálin, herra forseti, að gatinu hefur ekki verið lokað. Ríkisfjármálavandinn er óleystur. Gatinu er að segja má snúið í aðrar áttir. Það er aukinn halli á viðskiptum okkar við umheiminn og stórkostlega auknar erlendar lántökur. Loforðið um jafnvægi ríkissjóðs í ár er svikið og það er viðurkennt í grg. frv. að vandi ríkissjóðs stafi m. a. af lífskjaraskerðingunni. Varaformaður Sjálfstfl. hefur gefið þá yfirlýsingu skv. fréttum Morgunblaðsins í dag og Dagblaðsins í dag að á eins árs afmæli ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar þurfi að endurskoða þetta plagg, þetta framsóknargræna plagg sem heitir Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar 26. maí 1983. Það er komið svo að þetta plagg er ónýtt. Það er búið að svíkja svo mikið í þessu plaggi að það þarf að fara að endurskoða hlutina. Svo lengi hélt hin trausta, sterka stjórn sem allan vanda ætlaði að leysa hér í efnahags- og atvinnumálum þessarar þjóðar. Hraklegust er þó útreiðin að mörgu leyti í ríkisfjármálum. Það er enginn vandi leystur.
Annar þáttur, herra forseti, sem ég ætla að gera hér að umtalsefni á eftir ríkisfjármálunum eru erlendu lántökurnar sérstaklega. Hlutfallstalan er lækkuð til að bjarga ríkisstj. fyrir horn og koma tölunni niður fyrir 60%. Með því er látið í veðri vaka af ráðh. að í raun og veru hafi engin hækkun orðið á erlendu skuldunum. Þær séu í raun og veru óbreyttar frá því sem áður var og þetta sé allt í besta lagi. En hvernig horfir þetta við? Hvað er hér að gerast? Hvað þýðir það þegar teknir eru 2 milljarðar kr. í erlendar lántökur? Hvað þýðir það? Það þýðir, ef við miðum við þorskútflutning landsmanna, það jafngildir um 68 millj. dollara eða 20% af öllum þorskútflutningi landsmanna. Þessi erlenda lántaka jafngildir um 20% af öllum þorskútflutningi landsmanna, okkar dýrmætustu útflutningsvöru. 20% af þessum dýrmæta fiski, þessari útflutningsvöru, eru tekin og tekin erlend lán fyrir því. Fimmti hver þorskur sem er dreginn á land fer í þessa óráðsíu og þessar erlendu lántökur ef þær væru greiddar hér og nú.
En það má líka meta þetta öðruvísi. Þjóðarframleiðslan á Ístandi er 66 milljarðar kr. Vinnandi menn á Íslandi eru 115 þús. Verðmætasköpunin er 574 þús. kr. á mann. Þessi 2 milljarða erlenda lántaka jafngildir verðmætasköpun 3500 launamanna í heilt ár. Erlend lán sem samsvara allri verðmætasköpun 3500 launamanna í heilt ár eða fimmtungi af öllum þorskútflutningi landsmanna. Og svo eru menn að láta eins og ekkert sé, að þetta sé í raun og veru allt í lagi vegna þess að einhver tala hafi verið færð niður fyrir 60%.
Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að erlendar lántökur þessarar þjóðar hafi mjög lengi, m. a. í tíð fyrrv. ríkisstj., verið á verulegu hættustigi. En ég vil spyrja menn: Hversu langt á að ganga þegar farið er að taka erlend lán til að borga kaup opinberra starfsmanna eins og verið er að gera hér og rekstur ríkissjóðs? Eru engin takmörk til í þessu efni? Í þessu kveri hér, þessu fölgræna kveri, þar stendur: „Aðhalds verði gætt í erlendum lántökum og þær bundnar við hagkvæmar framkvæmdir“. Hvar eru hagkvæmar framkvæmdir, hæstv. forsrh. í þessu plaggi? Hvaða hagkvæma framkvæmd er nefnd í þessu plaggi á nafn? Það er eins og venja er þannig í lánsfjárlögum að það eru nefndar og tilgreindar þær hagkvæmu framkvæmdir sem á að verja erlendum lántökum í. Hvaða hagkvæmar framkvæmdir eru nefndar á nafn í þessu plaggi? Ein — Hitaveita Rangæinga 11 millj. kr. Að öðru leyti er hér um að ræða heildarupphæðir, m. a. til rekstrarútgjalda.
Ég vil í þessu sambandi minna á að þær erlendu lántökur sem ríkisstj. er núna að taka ganga til sex atriða sem aldrei hafa verið tekin erlend lán í áður, aldrei nokkurn tíma. Í fyrsta lagi hefur uppgjör á milli ríkisstofnana aldrei áður farið fram í erlendum lánum, á milli Innheimtustofnunar sveitarfélaga og Tryggingastofnunar ríkisins. Ég þekki það vandamál dálítið, milli Innheimtustofnunar sveitarfélaga og Tryggingastofnunar ríkisins. Og það varð auðvitað að leysa. En það að leysa þetta með erlendum lántökum er auðvitað með öllu forkastanlegt, og að ætla Jöfnunarsjóði sveitarfélaga að taka lán í þessu skyni. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur náttúrulega aldrei fyrr verið látinn taka lán með þessum hætti sem hér er gerð till. um Þannig er verið að hengja aukapinkil á sveitarfélögin af þeirri ríkisstj. sem mest gumar og geipar um Sjálfstæði sveitarfélaga. Hún er að leggja þarna aukapinkil á sveitarfélögin í landinu með því að láta Jöfnunarsjóð sveitarfélaga taka erlent lán. Þetta er nýlunda. Menn tala um að verið sé að borga meðlagsskuldir með erlendum lánum. Ég vil ekki taka þannig til orða. Ég tel að það sé í raun og veru verið að skekkja þá mynd sem rétt er af þessu vandamáli, að það er verið að gera hér upp á milli ríkisstofnana með alveg ákveðnum hætti og stofnunar sveitarfélaga.
Annað atriði, sem ég hygg að ekki hafi áður verið teknar til erlendar lántökur í stórum stíl, eru skipaviðgerðir upp á 150 millj. kr. Auðvitað verður að tryggja gang skipasmíðastöðva. Auðvitað verður að sjá til þess að okkar að mörgu leyti ágæti skipasmíðaiðnaður stöðvist ekki. En hér er gert ráð fyrir því að skipaviðgerðir fái 150 millj. kr. í sinn hlut með erlendum lántökum.
Þriðja atriðið sem ég ætla að nefna, sem aldrei hefur áður verið á blaði í sambandi við erlendar lántökur, eru húsnæðislánin. Það hefur aldrei fyrr gerst að nokkur félmrh. hafi verið í þvílíkri kastþröng að hann hafi orðið að fá erlend lán til að borga fólki lán úr Byggingarsjóði ríkisins eða Byggingarsjóði verkamanna svo það geti byggt eða keypt íbúðir. Það hefur aldrei nokkurn tíma komið til tals, fullyrði ég, að taka erlend lán í þessu skyni. Það eru ekki nema örfáir dagar síðan hæstv. félmrh. sagði: „Ég trúi því að allir tekjustofnar byggingarsjóðanna haldi.“ Svo kemur hann örfáum dögum síðar og þá eru það erlend lán til að bjarga byggingarsjóðunum við. Ja, þvílík útgerð, þvílík útgerð.
Fjórða atriðið sem er nýlunda í þessu efni er það að ákveða að hallinn á ríkissjóði verði borgaður með erlendum lántökum, vegna þess að með þessu móti er verið að borga niður ferðamannagjaldeyri með erlendum lánum. Það er verið að taka lán til að leyfa sér þann lúxus að fella niður álag á ferðamannagjaldeyri. Og það er verið að taka lán til að lækka skatta á skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Og það er verið að taka erlend lán til að borga niður og lækka skatta fyrirtækjanna í landinu.
Fimmta atriðið sem ég ætlaði að nefna, sem ég tel nýlundu og brautryðjendastarf þessarar ríkisstj., það er að taka erlend lán til að standa undir lausaskuldum bænda. Hvað eru lausaskuldir bænda? Það eru viðskiptaskuldir m. a., verulegar viðskiptaskuldir og vandi sem hefur hlaðist upp á liðnum árum. Það á að taka erlend lán til að borga kostnaðinn við rekstur landbúnaðarins á liðnum árum. Þetta er nýlunda, þetta hefur ekki áður verið gert.
Í sjötta lagi er gert ráð fyrir því að rekstrarkostnaður útgerðarinnar verði greiddur með erlendum lánum. Og þetta er úrræði ríkisstj. sem hefur þessa stefnu, með leyfi hæstv. forseta orðrétt úr þessu kveri: „Aðhalds verði gætt í erlendum lántökum og þær bundnar við hagkvæmar framkvæmdir.“ Ja, þvílík útreið á einu ári. Þvílík niðurlæging, miðað við það sem menn höfðu sett sér í upphafi í þessu efni.
Ég vil spyrja hæstv. forsrh.: Eru engin takmörk fyrir því til hvers menn sækja erlent lánsfé hér? Eru engin takmörk? Hver eru hin pólitísku takmörk ríkisstj. í þessu efni? Hvar eru mörkin, hversu langt getur hún hugsað sér að ganga í erlendum lántökum? Getur hún hugsað sér að borga hvað sem er með erlendum lánum? Ég óska eftir því að hæstv. forsrh. og fjmrh. birti skilgreiningu á því hversu langt er hægt að ganga í þessu efni. Hvar eru mörkin þegar menn eru farnir að borga niður ferðamannagjaldeyri með erlendum lánum og lausaskuldir bænda og húsnæðislán og rekstur ríkissjóðs? Ég sé ekki hvar mörkin eru.
Þriðja atriðið, herra forseti, sem ég ætla að gera hér að umtalsefni snertir kjarasamningana og kemur í beinu framhaldi af og er í tengslum við þetta frv. Með frv. fylgir grg. og tafla á bls. 18. Þar kemur greinilega fram að kaupmáttur launa verður 2% lægri en gert hafði verið ráð fyrir við gerð kjarasamninganna 21. febr. s. l. Í þeim var byggt á þeirri forsendu að menn héldu sama kaupmætti og á fjórða ársfjórðungi 1983. Með þeim ráðstöfunum sem hér eru á blaði og nánar verða raktar er ríkisstj. í raun og veru að segja kjarasamningunum upp. Kaupmáttarskerðingin verður um 2% frá því sem gert var ráð fyrir. Hér er um að ræða árás á þá hófsömu kjarasamninga sem gerðir hafa verið. Og það er sérstaklega alvarlegt að þessi árás skuli gerð í sama frv. og ríkisstj. flytur till. um sérstakar úrbætur vegna láglaunafólks í landinu.
Ég tel að ríkisstj. sé með þessu að storka verkalýðshreyfingunni í landinu, sýna henni einstaka lítilsvirðingu. Yfirlýsingar ráðh. um Singapore norðursins og auglýsingabæklingarnir um hið lága og ódýra vinnuafl á Íslandi eru eins og svipuhögg framan í hvern ærlegan mann sem hefur með að gera málefni verkalýðs og launafólks í þessu landi. Þessi ríkisstj. er núna með þessu frv. enn þá einu sinni að ráðast að þessu fólki, samtökum launafólks á Íslandi. Þetta er þriðja meginatriðið, herra forseti, sem ég vil gera að umtalsefni.
Fjórða meginatriðið sem ég ætla hér að gera að umtalsefni er sérstök árás frv. á láglaunafólkið, alveg bein árás á láglaunafótkið sérstaklega í landinu. Það fyrsta er niðurskurður á tannviðgerðakostnaði. Hér er um að ræða mjög tilfinnanlegt atriði, ekki bara fyrir láglaunafólk heldur fyrir launafólk í landinu atmennt. Það er lúalegt að fara sérstaklega í það í þessu frv. að skerða kostnað við tannréttingar. Á undanförnum árum hefur það færst mjög í vöxt af ýmsum ástæðum að það þarf að vinna að tannréttingum á börnum og unglingum. Hér er um að ræða kostnað sem er venjulegu heimilli oft á tíðum algjörlega ofviða, algjörlega ofviða. En það er þetta fólk sem er sett í skotskífuna af ríkisstj., það eru lækkuð sérstaklega framlög til þeirra sem þurfa á þessari þjónustu að halda. Hér er þó ekki um að ræða tannviðgerðir sem stafa af því að menn hafi hirt tennur sínar illa eða vanda sem stafi af trassaskap. Hér er um að ræða óviðráðanlegt vandamál sem verður að leysa. Þess vegna er það alveg furðulegt að ríkisstj. skuli sérstaklega rífa þennan þátt út úr sem snýr að tannréttingunum.
Annað atriði sem snýr alveg sérstaklega að láglaunafólki, gömlu fólki og öryrkjum og fötluðum í landinu er veruleg hækkun lyfja. Um hana hefur nokkuð verið rætt að undanförnu. Ég heyrði ekki í ræðu hæstv. forsrh. hvort hann nefndi það sérstaklega núna hver væri hækkun á lyfjum en það hafði komið fram áður að það stæði til. Ég vil spyrja hæstv. forsrh.: Hver er sú lyfjahækkun sem gert er ráð fyrir í forsendum þessa frv.?
Fjórða atriðið sem sérstaklega beinist gegn láglaunafólki í landinu er hækkun gjalda í heilbrigðisþjónustunni, úr 25 kr. í 75. kr. hjá heimilislæknum og úr 100 í 300 kr. hjá sérfræðingum og á göngudeildum. Það er fjöldinn allur af fólki í landinu, því miður, sem verður að sækja göngudeildarþjónustu aftur og aftur. M. a. er um það að ræða t. d. með geðsjúklinga að þeir verða að koma reglulega í viðtöl og meðferð á sínar stofnanir. Er það ætlun ríkisstj. að taka fullt gjald af þessu fólki, 300 kr. í hvert skipti sem það kemur inn á þessar stofnanir? Ætli hæstv. forsrh. gæti svarað því hvort það stendur til að taka fullt gjald af þessu láglaunafólki í hvert skipti sem það fer inn á þessar stofnanir og nýtur þjónustu sérfræðinga á göngudeildum? Á að fella þetta gjald niður af og til af þessu fólki eða á að taka það af því í hvert einasta skipti?
Ein grein í þessu frv. lætur ekki mikið yfir sér og forsrh. hafði ekki mikið fyrir því að gera grein fyrir henni hér áðan. Og grg. frv. er nú í einu orði sagt léleg. En í grg. frv. er fjallað um sjúkradagpeninga og þar segir um 8. gr.:
„Í till. frv. felst einkum að atvinnurekendur beri yfirleitt sjúkratryggingarkostnað 14 fyrstu veikindadagana í stað 10 nú, enda hafi launþegi verið óvinnufær 21 dag í stað 14 áður. Áætlað er að þessi breyting spari almannatryggingum 25 millj. kr. á ári.
Þessi lenging á biðtíma eftir sjúkradagpeningum mun fyrst og fremst minnka þann rétt sem atvinnurekendur eiga til dagpeninga. Í kjarasamningum er launþegum yfirleitt tryggður réttur til launa í allt að þrjár vikur verði þeir veikir.“
Þetta er 8. gr. frv. Forsrh. sagði svo sem ekki neitt um hana, þessa lækkun á sjúkradagpeningum. En hvað er hér að gerast? Þessi niðurskurður á sjúkradagpeningum bitnar alveg sérstaklega á þremur hópum einstaklinga í þjóðfélaginu. Það eru ekki atvinnurekendur. Hvaða fólk er það? Það er í fyrsta lagi verkafólk sem hefur unnið tiltölulega mjög skamman tíma. Það fólk missir eftir þessu frv. rétt til sjúkradagpeninga og biðtíminn eftir sjúkradagpeningum lengist frá því sem verið hefur. Þarna fann ríkisstj. fólkið sem var upplagt að leggja byrðar á núna, klípa nokkrar milljónir af þeim launamönnum sem ekki hafa unnið sér inn rétt til sjúkradagpeninga. Á þetta er ekki minnst einu aukateknu orði í grg. frv. og sagt að aðallega komi þetta niður á atvinnurekendum.
En það eru fleiri en launamenn og verkamenn sem hafa unnið skamman tíma sem missa rétt með þessari grein. Það er einn stærsti vinnuhópurinn í þjóðfélaginu sem einnig missir rétt með þessari grein og það eru húsmæður. Húsmæður missa verulegan rétt eftir þessari grein. Það eru tugir þúsunda kvenna í þjóðfélaginu sem eru sérstaklega gerðar að skotskífu með þessari grein eins og hún hér lítur út. Það er ekki minnst á það. Það er sagt: Það eru aðallega atvinnurekendur sem missa hér rétt, aðallega atvinnurekendur. En húsmæðurnar, sem ekki eru á launum hjá einhverjum atvinnurekanda utan heimilis, þær eru þarna að missa verulegan rétt.
Og það eru fleiri. Námsmenn eru þarna einnig að missa rétt til sjúkradagpeninga. Með þessu ákvæði verða menn án sjúkradagpeninga í 14 daga í stað 11 daga áður og þeir þurfa að vera óvinnufærir 21 dag í stað 14 áður til að fá þessa sjúkradagpeninga sem eru svo sem eins og ekki neitt og í rauninni smán þegar allt kemur til alls. Þannig er verið að lengja biðtímann eftir sjúkradagpeningum, menn þurfa að vera lengur veikir en áður en þeir geta fengið sjúkradagpeninga. Ætli ríkisstj. öll, hver einasti maður þar, og þm. stjórnarflokkanna hafi gert sér grein fyrir því að það er fyrir skitnar 25 millj. kr. verið að sarga í þetta láglaunafólk sem ekki hefur áunnið sér rétt til sjúkradagpeninga, námsmenn og húsmæður? Þetta fólk er verið að plokka.
Það er lítið sem hundstungan finnur ekki, segir einhvers staðar. Það á við í þessu efni.
Síðasta atriðið sem sérstaklega snýr að láglaunafólki er sú hækkun á verði landbúnaðarafurða sem ákveðin hefur verið. Þetta er hækkun sem fæst með því að skera niður niðurgreiðslur um 185 millj. kr. Og takið eftir: það er ekki verið að skera niður niðurgreiðslur úr 900 millj. kr. sem árstölu, heldur er verið að skera niður það sem eftir er að eyða í niðurgreiðslur á árinu 1984 um 185 millj. kr. Það er í raun og veru verið að skera niðurgreiðslur niður um nærri 1/3 á síðari hluta ársins 1984. Þetta bitnar auðvitað sérstaklega á láglaunafólki, og þetta er sérstök árás á verkalýðshreyfinguna miðað við þær forsendur sem kjarasamningarnir byggðu á.
Hér hef ég, herra forseti, nefnt fimm dæmi um sérstaka árás á láglaunafólk. Það er niðurskurður sjúkradagpeninga, það er hækkun á verði landbúnaðarafurða, það er hækkun sérfræðigjalda í heilbrigðisþjónustunni, það er veruleg hækkun lyfja, það er hækkun á tannviðgerðakostnaði.
Fimmta atriðið, herra forseti, sem ég ætla að gera að umtalsefni snertir námsmenn. Þar er í rauninni um að ræða einhverja harkalegustu árásina skv. þessu frv. Í 2. gr. frv. segir svo með leyfi hæstv. forseta:
„Samanlögð fjárveiting og lántaka Lánasjóðs ísl. námsmanna skal eigi nema hærri fjárhæð en 658 millj. kr. á árinu 1984.“ Síðan segir: „Þrátt fyrir ákvæði 3. gr. laga nr. 72/1982, um námslán og námsstyrki, skal hlutfallstala lána af reiknaðri fjárþörf námsmanna á árinu 1984 miðuð við það fjármagn sem Lánasjóður ísl. námsmanna hefur til ráðstöfunar, sbr. 1. mgr.“
Hæstv. menntmrh., er svo vinsamleg að vera hér stödd í umr. og hefðu fagráðherrar fleiri betur gert það. Ég spyr hæstv. menntmrh.: Er það meiningin að Lánasjóður ísl. námsmanna hafi á þessu ári til meðferðar og ráðstöfunar 658 millj. kr. og ekki neitt þar fram yfir? Ég skil greinina svo. Ef svo er er það ljóst að á fyrri hluta ársins 1984 er búið að greiða mönnum námslán skv. reglunni um 95% umframfjárþarfar, þ. e. það er búið að eyða þessum fjármunum skv. þeirri reglu á fyrri hluta ársins. Þá hlýtur að vera þeim mun minna eftir á síðari hluta ársins. Eftir þeim útreikningum sem ég hef sjálfur gert á þessu máli sé ég ekki betur, ef þetta gengur svona, en lánahlutfall námsmanna skerðist með þessu frv. niður í 60% á síðari hluta ársins 1984. Svo vill til að ég hef einnig séð ályktun frá Sambandi ísl. námsmanna erlendis þar sem líka er giskað á að þessi niðurskurður þýði 60–65% úr 95%.
Ég óska eftir því við hæstv. menntmrh. að hún geri grein fyrir því annaðhvort við þessa umr. eða fyrir fjh.- og viðskn. Nd. hvort þetta er réttur skilningur, að þar sem eytt hefur verið skv. 95% hlutfallinu á fyrri hluta ársins þá sé það sem eftir er á síðari hluta ársins ekki fyrir nema um 60% fjárþarfarinnar. Mér þætti vænt um ef hæstv. ráðh. vildi svara því. Ég held að hér sé í rauninni um að ræða einhverja harkalegustu árás þessa frv. á einstakan hóp. Með þessu móti færu námslán niður fyrir það sem var á síðasta ári viðreisnarstjórnarinnar og hafa ekki verið lægri í ein 15 ár. Þetta væri lækkun á umframfjárþarfarhlutfallinu um u. þ. b. 50%.
Sjötta atriðið, herra forseti, sem ég ætla að nefna snertir sérstaklega sveitarfélögin. Sveitarfélögin á Íslandi hafa haft einn verðtryggðan tekjustofn, þ. e. söluskatt og verðtoll. Nú er ætlunin að svipta sveitarfélögin hluta af þessum tekjum í fyrsta skipti í sögunni með því að fastbinda greiðslur í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga við fjárlagatöluna. Með þessu móti hirðir ríkisstj. nokkra tugi millj. kr. á þessu ári af sveitarfélögunum. Ég vil spyrja hæstv. félmrh.: Telur hann það samrýmast stefnu ríkisstj. um sjálfstæði sveitarfélaganna að skerða þennan eina verðtryggða tekjustofn þeirra um tugi millj. kr. á árinu 1984?
Sjöunda atriðið, herra forseti, sem ég ætla að nefna snertir landbúnaðarmál og hag bænda. Í frv. er gert ráð fyrir því að greiða 10% útflutningsuppbætur, þannig að menn fái sinn 10% útflutningsbótarétt á þessu verðlagsári. Hins vegar er það svo að með þeirri gífurlegu lækkun niðurgreiðslna sem er fyrirhuguð og þeim stórfellda samdrætti í kaupmætti sem hefur átt sér stað hefur útflutningsbótavandinn vaxið stórkostlega frá því sem áður var. Á síðustu árum, t. d. á árunum 1980–983, hafa bændur í landinu tekið á sig geysilega framleiðsluskerðingu. Samdráttur í mjólkurframleiðslu er úr 117 millj. lítra í 106 millj. lítra á árunum 1980–1983 og samdráttur í kjötframleiðslu er úr um 15 þús. tonnum í um 13 þús. tonn á ári milli áranna 1980 og 1983.
Auðvitað var þessi framleiðslusamdráttur ákveðinn til þess að bændur aðlöguðu sig þeim markaði sem er um að ræða hér á landi. Auðvitað tóku þeir þetta á sig að nokkru leyti eins og eðlilegt var og sanngjarnt að ætlast til. En þegar þeir eru búnir að skera niður framleiðslu sína með þessum hætti og taka á sig tekjuskerðingu sem því svarar, þá blasir við þeim alveg nýtt vandamál. Ríkisstj. sem situr í landinu, hún sökkvir svo kaupmættinum að fólk getur ekki lengur keypt landbúnaðarvörur eins og áður. Það segir sína sögu að á fyrstu sex mánuðum þessa verðlagsárs hefur selst jafnmikið magn af dilkakjöti og á fyrstu sex mánuðum síðasta verðlagsárs, en inni í þeirri tölu sem selst af dilkakjöti í ár eru 3000 tonn af útsölukjöti þannig að salan á nýju dilkakjöti á fyrstu sex mánuðum er í kringum 3000 tonn. Það er því bersýnilegt að sá vandi sem við er að glíma varðandi útflutning landbúnaðarafurða verður meiri í haust en um langt árabil. Og það er í rauninni hart fyrir bændur, sem hafa tekið á sig þennan framleiðslusamdrátt á liðnum árum í landbúnaðinum, að horfa upp á það að það framlag þeirra er í rauninni einskis metið af ríkisstj., vegna þess að þegar það framlag þeirra liggur fyrir þá er offramleiðsluvandinn jafnstór og áður af því að búið er að skera kaupmáttinn svo mikið niður, hækka búvöruna svo mikið í verði að fólk getur ekki lengur keypt kjöt eða mjólkurafurðir.
Ég er sannfærður um það að staða bænda í landinu, eftir þann framleiðslusamdrátt sem hefur átt sér stað, hækkanir á fjármagnskostnaði og miðað við þann markaðssamdrátt sem nú er um að ræða, er erfiðari en hún hefur lengi verið. Ég tel þess vegna alveg ljóst að útflutningsbótaþörfin sem um verður að ræða í haust verður miklu meiri en nokkru sinni fyrr, meðan fráfarandi ríkisstj. stóð þannig að málum að úr útflutningsbótaþörfinni dró smátt og smátt og hún var komin verulega niður í lok valdatíma hennar.
Áttunda atriðið, herra forseti, sem ég ætla að nefna hér snertir aukabindingu á bankana. Það var málið sem gleymdist að leggja fyrir Sjálfstfl. Það var nú svo lítið mál, smámál sem láðist bara að leggja fyrir aðra en ráðh. (Gripið fram í: Og nefna það við þm.) Þeir hafa kannske lesið það í Morgunblaðinu að það stæði til. Það er aukabinding á bankana upp á 10. Mér þætti gaman að vita hvaða bankar það eru sem telja sig vera aflögufæra um 10% aukabindingu um þessar mundir. Spennan í þjóðfélaginu hefur vissulega verið veruleg, verðbólguhraðinn er í rauninni miklu meiri en verðbólgutölurnar segja til um. Það kemur fram í þessari grg., með frv. sem er í raun og veru mikil sjálfsgagnrýni ríkisstj. Í grg. kemur fram að á fyrsta fjórðungi ársins hafa útlán aukist um 9.1 % og innlán með áætluðum vöxtum um 8.9%, eða um 42% af ársvexti, meðan verðbólgan telst um eða innan við 15%. Þetta þýðir auðvitað að verðbólgu- og þensluspanið í þjóðfélaginu er miklu meira en verðlagstölurnar sjálfar segja til um. Hér er um að ræða vísbendingu um undirliggjandi 40% verðbólgu í hagkerfinu þrátt fyrir þær tölur sem við fáum ef við berum saman verðlag eins og það hefur þróast á liðnum mánuðum. Það verður fróðlegt að vita hvernig Seðlabankinn ætlar að framkvæma þessa aukabindingu. Ég mun spyrja um það í fjh.- og viðskn. Nd. hvernig ætlunin er að sinna því.
Níunda atriðið, herra forseti, og síðasta sem ég ætla að nefna að sinni snertir afurðalán atvinnuveganna. Í frv. ríkisstj. er ekkert sagt um þetta beinum orðum, en það kemur þar fram að Seðlabankinn ætlar að lækka afurðalán atvinnuveganna. Hér stendur á bls. 7 í síðari málslið: „Liggur nú fyrir ríkisstj. till. frá Seðlabankanum um samhliða lækkun allra endurkaupa um sem næst 5% eða nálægt tíunda hluta þeirra.“ Það liggur sem sagt fyrir till. um að lækka afurðalán atvinnuveganna um 10%. Ég vil spyrja hæstv. forsrh.: Ætlar hann að fallast á það og ætlar sjútvrh. að fallast á það að afurðalán sjávarútvegsins í Seðlabankanum hin endurkeyptu afurðalán, verði lækkuð um 5 prósentustig eða 1/10 þeirra? Ég óska eftir því að hæstv. ráðh. svari þessu og um leið því hvernig það á að ganga upp við það að binda 10% meira af innlánsfé viðskiptabankanna og ætla þeim þannig á sama tíma stærri hlut í lánunum en verið hefur. Seðlabankanum á að sleppa við skyldur. Það á að binda meira fé samt hjá Seðlabankanum um leið og hann hefur minni skyldur. Viðskiptabankarnir eiga að taka á sig aukabindingu en taka á sig meiri skyldur en verið hefur gagnvart atvinnuvegunum. Þetta gengur ekki upp. Þetta mundi auðvitað enda með því, ef bankarnir væru látnir einir um að stjórna þessum útlánamálum atvinnuveganna, að það kæmi til atvinnuleysis í stórum landshlutum, ef menn færu að stjórna hlutunum þar á hverjum tíma eingöngu eftir því hvernig hvert einstakt fyrirtæki kann að standa í sínum banka þá og þá.
Ég hef hér farið, herra forseti, yfir níu atriði í sambandi við þetta frv. Eins og ég tók fram í upphafi er stutt síðan við fengum það í hendur og vafalaust mörg atriði í því sem ekki hefur verið hér til skila haldið svo vel væri. Ég hef farið hér yfir stöðu ríkissjóðs, rætt um erlend lán, um kjarasamningana, um sérstakar árásir á láglaunafólk, um námsmenn, um sveitarfélögin, um landbúnaðinn, um aukabindingu á bankana og loks um afurðalán. Hvað átti ríkisstj. að gera andspænis þessum vanda sem uppi var? Hvað átti hún að gera? Mín skoðun er sú að í fyrsta lagi hefði ríkisstj. átt að leggja skatta á ýmis stórfyrirtæki og þjónustufyrirtæki sem hafa skilað stórfelldum gróða á þessu ári. Það átti að leggja skatta á þessi fyrirtæki. Í öðru lagi átti ríkisstj. að halda inni sköttum eins og álagi á ferðamannagjaldeyri.
Í þriðja lagi átti ríkisstj. að leggja skatta á innlánsstofnanir sem hafa skilað verulegum hagnaði, þ. á m. á seðlabankann. Í fjórða lagi átti ríkisstj. að stuðla með kerfisbundnum hætti að sparnaði í ríkiskerfinu og frestun framkvæmda, þ. á m. flugstöðvarbyggingar. Með þessu móti var unnt að draga saman upp í þennan ríkisfjármálavanda með tiltölulega skýrum hætti a. m. k. 1–11/2 milljarð króna.
Afgangurinn í þessu dæmi stafar hins vegar af því að ríkisstj. hefur keyrt svo mikið niður kaupgetu atmennings að hann getur ekki keypt þá þjónustu sem ríkissjóður að nokkru leyti byggir tekjur sínar á. Hér er m. ö. o. um það að ræða að ríkissjóður verður fyrir áfalli um leið og tekjur launafólks eru skornar niður. Ríkissjóður er miðaður við tiltekið neyslustig í þjóðfélaginu, tilteknar venjur í neyslu og athöfnum fólks og þó það gerist ekki á einni nóttu, um leið og kaupið er skorið niður, þá hlýtur það, segi ég, að hafa áhrif á rekstur ríkissjóðs um leið, þannig að um helmingur af þessum sérstaka vanda núna er vegna stefnu ríkisstj. beinlínis, upp á um 1 milljarð króna a. m. k.
Það er fróðleg setning í grg. frv. þar sem segir: „en þá kom í ljós“, þ. e. í skýrslu Alberts, hæstv. fjmrh., “en þá kom í ljós hversu háður hagur ríkissjóðs er almennri þróun efnahagsmála þjóðarinnar.“ Hagur ríkissjóðs er mjög háður almennri þróun efnahagsmála í landinu. Ja, þvílík uppgötvun, þvílík vísindi, að menn skuli láta sér detta í hug að ríkissjóður sé þannig að hagur hans er háður almennri þróun efnahagsmála í landinu. Það hafði nú mörgum dottið í hug fyrr. Staðreyndin var hins vegar sú með hæstv. ríkisstj. núverandi að hún sá ekkert annað en kauplækkanir. Hún hafði enga möguleika á að ná saman um neitt annað en kauplækkanir. Framsfl. og Sjálfstfl. geta ekki neitt annað saman en að lækka kaupið. Að öðru leyti eru þeir strand með sína stjórnarstefnu eins og hv. varaformaður Sjálfstfl. hefur m. a. bent á.
Það frv. sem hér liggur fyrir er lýsing á stjórnarstefnu sem hefur í veigamiklum atriðum mistekist. Í aðeins einu atriði hefur ríkisstj. tekist mjög vel upp og það er í því að láta kauplækkun fólksins borga niður verðbólguna í landinu. Að öðru leyti er allt í skralli, ríkisfjármálin eins og hér hefur verið rakið, erlendar skuldir hækkaðar dag frá degi og allar kerfisbreytingarnar, sem áttu að bjarga ungu íhaldsmönnunum inn í þessa stjórn, þær eru allar strand vegna þess að Tómas Árnason situr á þeim. Þannig er staðan á árs afmæli ríkisstjórnarinnar. Og krafa varaformanns Sjálfstfl. er sú að hin framsóknargræni stjórnarsáttmáli verði tekinn til endurskoðunar. Það er í raun og veru besti vitnisburðurinn um það hvað gersamlega hefur mistekist hjá ríkisstj. að ráða við þau verkefni sem hún setti sér.