04.05.1984
Neðri deild: 80. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5410 í B-deild Alþingistíðinda. (4677)

340. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Fyrir réttum tveimur mánuðum bauð hæstv. fjmrh. fulltrúum stjórnarandstöðunnar í rn. sitt að skoða gatið í ríkissjóði sem verið hefur aðalumræðuefni manna allar götur síðan. Þetta árans gat hefur orðið tilefni ótal fleiri yfirlýsinga, sem sumar eru orðnar að hálfgerðum brandara, eins og staðhæfingin fræga um vin litla mannsins sem enn er verið að leita að í kimum ríkisstj. (Gripið fram í: Hann er hérna.) Þar finnst ekki þessi frægi vinur heldur aðeins visst problem forsrh.

Við umr. um þetta ljóta gat þann 8. mars s. l. vakti hæstv. fjmrh. sérstaka athygli á því hvernig að þessu máli hefði verið staðið af sinni hálfu sem fjmrh., eins og hann orðaði það. Orðrétt sagði hann, með leyfi forseta:

„Mér hefði verið í lófa lagið að fylgja fordæmi sumra fyrirrennara minna og reyna að þegja vandann í hel og sjá hvort hann leystist ekki af sjálfu sér á endanum. Það hefði verið leikur einn fyrir mig að sópa vandanum undir teppið og láta sem ekkert væri þar til á seinustu mánuðum ársins og þá hefðu hugsanlega auknar tekjur ríkissjóðs getað verið búnar að leysa hluta vandans. En þannig starfa ég ekki og mun ekki gera. Ég kýs að koma til dyranna eins og ég er klæddur og gera þingi og þjóð grein fyrir fyrirsjáanlegum vanda svo að unnt sé að taka tímanlega í taumana. Annað er ábyrgðarlaust að mínum dómi og ábyrgðarleysi getur orðið þjóðinni dýrt. Ég skýri frá þessum vanda nú til þess að ríkisstj. og Alþingi geti gripið til nauðsynlegra varnaraðgerða í tíma. Annars fljótum við sofandi að feigðarósi.“

Og síðar í sömu ræðu segir hæstv. fjmrh.:

„Ég mun síðar gera grein fyrir þeim hugmyndum og tillögum sem ég hef til lausnar þeim vanda sem við blasir og ég vænti þess að ríkisstj. muni takast von bráðar að koma sér saman um tillögur að þessu leyti. Þær tillögur munu þá hljóta umfjöllun hér á Alþingi.“

Þetta var sagt 8. mars s. l. og ég verð að segja að ekki datt mér í hug að þetta „von bráðar“ mundi teygjast upp í heila tvo mánuði. Hæstv. fjmrh. talaði um nauðsyn þess að þm. og þjóðin öll gerðu sér grein fyrir þeim mikla vanda sem við blasti og sagði í lokaorðum ræðu sinnar að sá vandi yrði ekki leystur nema með samstilltu átaki okkar allra hér og þjóðarinnar allrar. Augljóslega hefur gengið illa að fá þm. stjórnarflokkanna til að skilja og viðurkenna þetta með samstillta átakið. Af þeim tillögum að dæma sem nú hafa loksins séð dagsins ljós hefur ákall fjmrh. um samstillt átak ekki enn fengið hljómgrunn meðal þeirra. Eftir allan þennan tíma, eftir allt þetta tal um sparnað og niðurskurð, eftir alla þessa leit að fyllingu í gatið, eru helstu niðurskurðartillögurnar svo óljósar að það er naumast mögulegt að fjalla um þær, og síðan er meginhluti vandans leystur með því að búa til nýjan vanda. Það eru skuldir sem nema rúmum tveimur milljörðum og sem eru ekkert annað en ávísun á verðbólguaukningu og svik við almenning sem hefur lagt á sig miklar þrengingar til þess að hjálpa ríkisstj. að ná markmiðum sínum í efnahagsmálum.

1. gr. frv. er dæmigerð fyrir þetta auma ráðleysi. Fjmrh. er heimilt þrátt fyrir ákvæði fjárlaga fyrir árið 1984 að lækka ríkisútgjöld um allt að 370 millj. kr. Í aths. við gr. segir svo hvernig þessum niðurskurði er skipt á milli rn. en frekari skýringar eru ekki gefnar. Einstök rn. eiga að gera tillögur um sinn niðurskurð og fjmrh. hefur svo úrslitavaldið. Þetta eru nú aumu vinnubrögðin. Finnst hæstv. fjmrh. hann nú geta komið fyrir þing og þjóð og sagt: „Ég kýs að koma til dyranna eins og ég er klæddur“, eins og hann gerði þegar hann sagði okkur frá vandanum fyrir tveimur mánuðum? Það fer varla á milli mála að eitthvað vantar í þennan klæðnað. Er ekki ætlunin að þingið fái að sjá þessar tillögur ráðuneytanna og fjalla um þær? Og er ekki ætlunin að fjvn. fjalli um þær? Þarna er t. d. um að ræða 25 millj. kr. niðurskurð í samgrn. Hvernig er nú líklegt að sá niðurskurður verði? Verður hætt við hafnarframkvæmdir á Austfjörðum, brú á Norðurlandi, varanlega vegagerð á suðurlandi? Best að nefna ekki Vestfirðina. Eða ætlar samgrn. að spara þessar 25 millj. í ferðalögum og risnu? Glöð skyldi ég styðja það, en hér er ekki neinar slíkar tillögur að sjá.

2. gr. þessa frv. fjallar um Lánasjóð ísl. námsmanna. Ekki kemur það mér á óvart. Tónninn var gefinn strax í haust. Ég hef ekki lengur tölu á því hve oft ég er búin að jagast hér í vetur út af bersýnilegri fjárvöntun Lánasjóðsins. Það var augljóst strax við afgreiðslu fjárlaga að sjóðurinn var sveltur og við Kvennalistakonur reyndum að fá því breytt, fluttum tvær tillögur um aukin framlög til sjóðsins. Samkv. lögum um sjóðinn áttu námsmenn að fá að láni 100% af reiknaðri fjárþörf frá síðustu áramótum. Skv. ákvæði í lánsfjárlögum þessa árs hefur gildistöku þess lagaákvæðis verið frestað, en skv. lögum eiga þeir að fá 95%. Þrátt fyrir þetta, þrátt fyrir frestun á gildistöku lagaákvæðisins er ljóst að yfirráðafé sjóðsins nægir ekki til að veita öllum lán, sem rétt eiga á þessu ári, eða þá að lánin verða skert til mikilla muna. Við eigum hins vegar eftir að sjá þær úthlutunarreglur sem setja verður til að láta ráðstöfunarfé sjóðsins nægja. Engin svör fengust við fsp. minni og Steingríms J. Sigfússonar varðandi það efni frá hæstv. menntmrh. í Sþ. 3. apríl s. l.

En nú virðist það ljóst, sem margir námsmenn og aðstandendur þeirra hafa lengi óttast, að útlánareglur verða hertar og hlýtur það að koma illa við marga. Stjórn Sambands ísl. námsmanna erlendis hefur ályktað um þetta og lýsir þungum áhyggjum sínum vegna þessarar greinar. Þeir segja í bréfi, sem alþm. hefur borist dags. í dag, með leyfi forseta:

„Verði 2. gr. frv. samþykkt þýðir það að lánshlutfall á seinni hluta þessa árs verður um 60% en ekki 95% eins og þó var samþykkt á þingi fyrir skömmu. Verði greinin samþykkt þýðir það stórstíga afturför í menntamálum landsins. Lánshlutfall hefur ekki verið undir 65% síðan skólaárið 1970–1971. Fjöldi námsmanna mun hrökklast frá námi þegar í haust, einkum þeir sem hafa lítil fjárráð. Einnig er fyrirsjáanlegt að margir verða að falla frá áformum um að fara til náms við háskóla erlendis í haust.

Með samþykkt 2. gr. frv. verður meginhluti laga nr. 72 frá 13. maí 1982 numinn úr gildi. Með því gengur alþingi endanlega á bak samkomulags sem námsmenn og alþm. gerðu áður en þau lög voru sett. Verði greinin samþykkt er því sýnt að alþm. er ekki treystandi þegar við þá er samið.“

Í 3. gr. frv. er fjallað um uppbætur á útflutning landbúnaðarvara. Ósárt er mér um þótt hróflað sé við þeim, en einkennilega er nú farið að hlutunum. T'il þess að greiða hluta af þeim útflutningsuppbótum sem samkvæmt lögum ber að greiða er aflað fjár með því að láta bændur greiða sérstakan skatt á kjarnfóður, sbr. 22. gr. frv.

4.–6. gr. eiga að koma einhverju lagi á uppgjör meðlagsgreiðslna og er sjálfsagt að reyna að bæta úr þeirri vitleysu, en lausnin er óneitanlega kúnstug. Hún felst í 26. gr. þar sem félmrh. fyrir hönd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er heimilað að taka 150 millj. kr. lán til að greiða skuld Innheimtustofnunar sveitarfélaga við Tryggingastofnun ríkisins. Ekki veit ég hvort þetta er í fyrsta skipti sem barnsmeðlög eru fjármögnuð með erlendri lántöku en kyndugt er það.

Þá koma hér nokkrar greinar sem kveða á um minni þátttöku ríkisins í kostnaði við heilbrigðisþjónustu og er það ekki annað en búast mátti við frá þeim sem nú sitja í ráðherrastólum. Um þessar greinar er búið að fjalla rækilega hér í dag og hef ég í rauninni ekki miklu við það að bæta, en vek athygli á því að á sama tíma og þessar álögur eru mótaðar í frumvarpsgreinar fullyrðir fjmrh. að hann taki ekki í mál að skattleggja fólk. Hvað er þetta annað en skattlagning á fólk? Þessar ráðstafanir eiga eftir að koma illa við almenning, sér í lagi barnmargar fjölskyldur. Þetta eru kaldar kveðjur frá vinum litla mannsins.

Ákvæði 17. gr. finnst mér ómerkilegur sparðatíningur sem réttir sáralítið af halla ríkissjóðs en getur munað talsverðu hjá bágstöddum barnafjölskyldum.

Um 18.–21. gr. er hins vegar ekkert nema gott að segja. Að vísu er ég yfirleitt á móti svona reikningskúnstum. Öll greiðslukerfi eiga að vera sem einföldust. Mér finnst miklu hreinlegra að greiða sömu upphæð til allra undir ákveðnu tekjumarki, en aðalatriðið er að fatlist var á að greiða þessa uppbót, og ég fagna því að sjá það hér í frumvarpsgreinum.

Og þá er komið að fjáröfluninni. Hún er í formi sérstaks fóðurskatts, eins og ég vék að áðan og fjallað er um í 22.–24. gr., en afganginn á svo að sækja í erlendar lánastofnanir, eða rúmlega 2 milljarða kr. Ekki fá ráðh. og þm. stjórnarflokkanna háar einkunnir fyrir þessa frammistöðu. Satt að segja vorkenni ég þeim eins og ég finn alltaf til með þeim sem falla á prófum. Þeir voru eitthvað svo roggnir með sig í haust. Nú skyldu ný vinnubrögð viðhöfð, raunhæf og marktæk og allt það, fjárlögin náttúrlega alveg á hreinu, hvað sem fulltrúar stjórnarandstöðu sögðu. Síðan kom þessi heiðarleikasýning í byrjun marsmánaðar, og enda þótt mér fyndist ekki ástæða til að lofa þá sýningu eina og sér, þá datt mér satt að segja aldrei í hug að lokaþátturinn yrði jafnlélegur og fram kemur í því frv. sem hér er til umr.

Fjmrh. höfðaði til ábyrgðar þm. og þjóðarinnar allrar þegar hann kynnti fjárhagsvanda ríkissjóðs. Það vantaði heldur ekki að fjölmiðlar leituðu eftir ráðum stjórnarandstöðu ekki síður en stjórnarflokka og Kvennalistinn kynnti strax ákveðnar hugmyndir í þeim efnum sem ég minni hér á. Þar var um að ræða niðurskurð sem næmi 1 milljarði kr., þar sem stærstu liðirnir væru niðurskurður á ferða- og risnukostnaði hins opinbera, samdráttur í vegamálum og orkumálum, minnkandi niðurgreiðslur landbúnaðarvara, hætt við byggingu flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli og fleira. Auk þess vorum við með hugmyndir um skyldusparnað hálaunamanna sem hefði gefið a. m. k. 200 millj. kr. í ríkissjóð. Það var reyndar sú hugmynd sem virtist kveikjan að hinni fleygu setningu um vin litla mannsins í ríkisstj. Mér er sérstaklega í minni skelfing hæstv. fjmrh. þegar ég orðaði þessa hugmynd í sjónvarpsþætti og sagði hann við það tækifæri eitthvað á þá leið að varhugavert væri að ráðast með slíkum hætti á hálaunamenn. Það gæti jafnvel endað með því að þeir hefðu það ekkert betra en láglaunafólkið. Skyldusparnaður hálaunamanna er ekkert nýtt ráð. Nú í lok síðasta árs fengu hálaunamenn nokkrir einmitt glaðning í umslagi, tilkynningu frá fjmrh. um að þeir mættu sækja í Landsbankann upphæð þá með vöxtum sem þeir höfðu verið skyldaðir til að lána ríkissjóði fyrir fimm árum þegar honum lá á. Flestir þeirra urðu einfaldlega hissa og voru búnir að steingleyma þessu lítilræði. samkvæmt upplýsingum fjmrn. nam þessi endurgreiðsla rétt rúmum 200 millj. kr. Það er svo aftur önnur saga þegar blessaðir mennirnir sendu eiginkonur sínar til að sækja þessa aura. Fjmrn. hafði sett undir þann leka, kannske til þess að konurnar færu ekki að eyða þessu í einhverja vitleysu án vitundar eiginmannanna.

Þetta var varðandi skyldusparnað hálaunamanna, sem ekki mátti heyra minnst á þótt fjmrh. hefði opin augu fyrir því að sækja fjármuni í vasa þeirra sem þurfa á læknisþjónustu að halda. En auk þessa hef ég aldrei getað skilið sanngirni þess að Seðlabankinn hagnist á tímabundnum vanda ríkissjóðs og það var hugmynd Kvennalista að ríkisstj. semdi við Seðlabankann um þau mál.

Loks má nefna aðgangsharðari innheimtu söluskatts. Í því sambandi er vert að minna á að um tíma voru á lofti hugmyndir um afnám undanþága frá söluskatti á matvælum. Fagna ég því að sjálfsögðu að hætt var við þær hugmyndir.

Ég er þess fullviss að þær hugmyndir Kvennalistans sem ég hef hér minnt á voru framkvæmanlegar og hefðu komið sér betur fyrir almenning en sú litla mús sem varaformaður Sjálfstfl. kallar svo og hér er til umræðu. Ríkisstj. hefði betur tekið mark á þeim hugmyndum sem henni voru lagðar til. Sú niðurstaða sem hér liggur fyrir í frumvarpsformi er til marks um dugleysi og óeiningu stjórnarflokkanna sem er meiri en mig grunaði. Niðurstaðan er uppgjöf og meginhluta vandans er sópað undir skuldateppi sem öðrum er ætlað að dusta.