07.05.1984
Efri deild: 91. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5420 í B-deild Alþingistíðinda. (4697)
321. mál, járnblendiverksmiðja í Hvalfirði
Frsm. meiri hl. (Davíð Aðalsteinsson):
Herra forseti. Iðnn. Ed. hefur fjallað um þetta frv. sem varðar járnblendiverksmiðjuna í Hvalfirði. Eins og hv. þdm. er kunnugt um hafa staðið yfir um nokkurt skeið samningaviðræður varðandi þetta fyrirtæki. Ég mun hins vegar ekki í minni tölu, sem verður stutt, fjalla um þær umr. eða hvað út úr þeim hefur komið. Hins vegar er ljóst að þetta frv., sem hér er flutt, hefur þann tilgang „að afla ríkisstj. lagaheimildar til að gera þær ráðstafanir til endurskipulagningar á fjárhag íslenska járnblendifélagsins hf. að Grundartanga, sem nauðsynlegar eru til að unnt verði að ganga frá samningum við Elkem a/s í Noregi og Sumitomo Corporation í Japan um þátttöku hins síðarnefnda sem samstarfsaðila ríkisins í félaginu við hlið Elkem skv. 2. gr. laga nr. 18/1977. Er það meginmarkmiðið með samstarfsaðild Sumitomo og þeim ráðstöfunum, sem henni eru tengdar, að styrkja markaðs- og fjárhagsstöðu Járnblendifélagsins til varanlegrar frambúðar“, eins og segir í aths. við lagafrv.
„Nánar tiltekið verður hin fyrirhugaða samvinna við Sumitomo Corporation á því byggð, að komið verði á samskiptum til langs tíma um sölu til Sumitomo og viðskiptavina þess í Japan á kísiljárni frá Grundartanga í verulegu magni. Jafnframt gerist Sumitomo minnihlutahluthafi í Járnblendifélaginu ásamt Elkem og eignist þar 15% heildarhlutafjár, en hlutafjáreign Elkem lækki úr 45% í 30%.
Staða ríkisins og hlutafjáreign (55%) í Járnblendifélaginu breytist ekki við tilkomu Sumitomo Corporation sem hluthafa.“
Í aths. með þessu frv. stendur enn fremur, með leyfi forseta:
„Gagnvart ríkissjóði verða áhrifin af endurskipulagningunni þannig í stuttu máli, að ríkið breytir núverandi lánum sínum og ábyrgðarskuldbindingum vegna Járnblendifélagsins í beint hlutafé í félaginu og eykur jafnframt hlutafé sitt til nokkurrar viðbótar með niðurgreiðslu eða yfirtöku frekari skulda félagsins. Með þessu heldur ríkið á hinn bóginn óskertri hlutfallslegri eignarhlutdeild. í félaginu.“
Það er öllum ljóst að fjárhagsleg staða Járnblendifélagsins var orðin mjög hæpin og nánast vonlaus og í framhaldi af því var stofnað til þeirra viðræðna sem nú eru vel á vegi. Þetta frv., sem hér er til umr., og samþykkt þess er forsendan fyrir því að áfram verið haldið á þeirri braut sem mörkuð hefur verið í því efni.
1. gr. varðar fyrst og fremst auknar heimildir til hlutafjár ríkisins í umræddu fyrirtæki eða úr 19 millj. dollara í um það bil 33 millj. dollara.
1. málsgr. 2. gr. frv. varðar heimild til lækkunar á stimpilgjöldum, en síðari málsgrein 2. gr. gerir ráð fyrir að felld verði niður ábyrgðarheimild ríkissjóðs vegna víkjandi láns til félagsins. Þetta lán er frá því herrans ári 1982. Lánsfé þetta mundi nú verða endurgreitt og falla saman við hlutafjáraukninguna skv. 1. gr. frv. og er hægt að vitna til almennra aths. í því sambandi.
Herra forseti. Ég hef þessi orð ekki fleiri. Eins og stendur í nál. komu á fund iðnn. Jóhannes Nordal, bankastjóri Seðlabankans, Jón Sigurðsson, framkvæmdastjóri Járnblendifélagsins, og Ragnar Árnason lektor. Meiri hl. n. leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt, en minni hl. skilar séráliti og ekki veit ég betur en minni hl. muni mæla fyrir því séráliti.