07.05.1984
Neðri deild: 81. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5436 í B-deild Alþingistíðinda. (4716)
266. mál, sala ríkisjarðarinnar Selárdals í Suðureyrarhreppi
Frsm. (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Þetta frv. er um að heimila ríkisstj. að selja Suðureyrarhreppi ríkisjörðina Selárdal, Suðureyrarhreppi, Vestur-Ísafjarðarsýslu. Þessi jörð er að sögn Landnámsins búin að vera í eyði í 39 ár. Telur landbn. eðlilegt að verða við þessari beiðni og eins og sést á þskj. 739 er það einróma lagt til að frv. verði samþykkt óbreytt.
Jón Baldvin Hannibalsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins.