07.05.1984
Neðri deild: 81. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5450 í B-deild Alþingistíðinda. (4743)
178. mál, sala lagmetisiðju ríkisins á Siglufirði
Frsm. meiri hl. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég er ekki sérlegur talsmaður þess að selja ríkisfyrirtæki. Ég tel að það geti verið mjög réttmætt að ríkið eigi hlut í atvinnurekstri í landinu, það verður að meta í hverju einstöku tilfelli. En ég tel að ríkisrekstur hafi gefist illa á þessu sérstaka fyrirtæki, Siglósíld á Siglufirði, því miður.
Þetta fyrirtæki var stofnað með bjartsýni og nokkrum myndarskap í upphafi og því var ætlað m. a. að stunda tilraunastarfsemi. Því miður varð ekki framhald á hinum myndarlega rekstri. Fyrirtækið komst í erfiðleika. Þeir voru ekki nema að litlu leyti forsvarsmönnum fyrirtækisins að kenna. Þeir Siglfirðingar urðu að súpa seyðið af mistökum sem gerð voru hjá allt öðru fyrirtæki og eyðilögðu markað. Það kom mjög hart niður á Siglóverksmiðjunni. Það var nokkuð sama hver var iðnrh. á undanförnum árum. Ég minnist a. m. k. þriggja eða jafnvel fjögurra sem höfðu afskipti af þessu fyrirtæki. Það var nokkuð sama hver var fjmrh. Þessu fyrirtæki voru aldrei í ríkiseign sköpuð eðlileg starfsskilyrði og aldrei komið undir það fótunum, þannig að það gæti staðið hjálparlaust.
Hins vegar var af og til, þegar fyrirtækið var búið að vera lokað um nokkurra mánaða skeið, gripið til einhverra bráðabirgðareddinga til að koma því af stað. en fyrirtækinu aldrei komið á eðlilegan grundvöll, þannig að það gæti starfað til frambúðar og staðið undir sér. Svo var komið að vélar voru orðnar úreltar, allt of lítið af þeim reyndar, og húsnæði úr sér gengið og ljóst var að til þess að koma fyrirtækinu í eðlilegan rekstur þyrfti verulegt átak í fjármagni og verulega endurbót á húsnæði.
Þetta fyrirtæki var rekið um skamman tíma í félagsskap við Þormóð ramma á Siglufirði. Þormóður rammi átti við erfiðleika að stríða líka og þetta fyrirtæki var nú ekki líklegt, eins og málum var háttað, til þess að geta orðið rekstri hins mjög mikilsverða fyrirtækis, Þormóðs ramma, að verulegu liði eða styrkt þann rekstur verulega. Þar sem horfur voru ekki á að með þátttöku ríkisins eða að frumkvæði ríkisins yrði mögulegt að koma Siglóverksmiðjunni í gang með þeim hætti sem þyrfti, þá var að mínum dómi ekkert annað að gera en selja. Ég held að þessi sala hafi verið skynsamleg. Þar hefur verið byrjað á vinnslu með myndarlegum hætti og búið að endurskipuleggja og enduruppbyggja þetta fyrirtæki. Vonir standa til að þarna sé búið að skjóta traustri stoð — eða nokkuð traustri — undir atvinnulíf á Siglufirði. Og þar af leiðandi held ég að það hafi verið rétt, úr því sem komið var, að selja þetta tiltekna fyrirtæki. Það á hins vegar ekki við um aðrar eignir ríkisins á Siglufirði.
Ég vil gera aths. við það sem kom fram í máli hv. þm. Kristínar Halldórsdóttur, að heimamenn á Siglufirði hafi ekki verið spurðir um þetta mál. Að sjálfsögðu fylgdust heimamenn með því sem þarna var að gerast og þó Verkalýðsfélagið Vaka hafi ályktað gegn þessari ráðstöfun hygg ég að sú ályktun sé orðin úrelt. Ef stjórn Verkalýðsfélagsins Vöku er ekki þegar farin að sætta sig við þetta fyrirkomulag, þá held ég að hún muni innan skamms gera það. Heimamenn á Siglufirði voru að sjálfsögðu hafðir með í ráðum. Heimamenn eiga reyndar helminginn í fyrirtækinu. Ég hefði þó vel getað hugsað mér að hópur heimamanna hefði verið breiðari en hann er. En ég er að svo komnu máli heldur bjartsýnn á framtíð þessa fyrirtækis eins og ég sé hana fyrir mér og held að þetta hafi verið skynsamlegt mál.