07.05.1984
Neðri deild: 81. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5490 í B-deild Alþingistíðinda. (4753)

82. mál, Ríkismat sjávarafurða

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra forseti. Ég skal hafa athugasemdir mínar stuttar. Hv. þm. Stefán Guðmundsson kvartaði undan því að ég hefði ásakað hann um harðræði. Ég held ég hafi nú aldrei ásakað hv. þm. um harðræði. Það sem ég sagði hins vegar og stend á þar til ég fæ aðrar og betri upplýsingar er það að daginn áður en þetta fræga meirihlutaálit kom hér fram í þingsalinn hafi verið fundur í sjútvn. Þar höfðu mætt sem varamenn tveir varaþm. Hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson og Guðmundur Einarsson upplýstu að tveir nm., hv. þm. Halldór Blöndal og Gunnar G. Schram — gott ef þessi fundur var ekki haldinn á föstudaginn — kæmu strax eftir helgi og þegar þeir væru komnir væru þeir reiðubúnir að skila áliti og rétt væri að bíða þess. Þetta var ekki gert. Hvernig sú krafa hefur verið sett fram, hvort það hefur verið skriflegt, hvort þetta hefur verið bókað skal ég ekki um segja. En eitt er víst að þegar þessir hv. þm., Halldór Blöndal og Gunnar Schram, voru komnir neituðu þeir að styðja nál. Stefáns Guðmundssonar og þeirra varamanna er sátu fundinn og gera 16 brtt. Um hvað er Stefán Guðmundsson að tala? (StG: Fyrirgefðu, má ég endurtaka það?) Ég skal fyrirgefa þér allt. Um hvað spyrðu? (GHG: Fyrirgefðu, viltu leiðrétta, það var Jón Magnússon. Guðmundur H. Garðarsson var ekki á fundinum.) Jón Magnússon var ekki á fundinum, en — (GHG: Ég var ekki á þessum fundi. Ég bað ekki um frest. Þú sagðir Guðmundur H. Garðarsson.) Guðmundur H. Garðarsson, — já, Guðmundur Einarsson, fyrirgefðu. Jón Magnússon mun ekki hafa verið á þessum fundi en skrifaði hins vegar undir nál. og þetta — (Gripið fram í.) Ég sagði að tveir aðalmanna í nefndinni hefðu verið fjarverandi og þegar þeir hefðu verið komnir hefði verið óskað eftir nýjum fundi í nefndinni vegna þess að hvorugur þessara manna var reiðubúinn að styðja það álit sem lá frá formanni nefndarinnar og varamönnum er sóttu þennan fund, enda sýnir það sig að það koma fram 16 brtt. Skilur hv. þm. þetta ekki? (StG: Það kom ekki frá þeim.) Það kom ekki frá þeim, segir hv. þm. Þessar tillögur munu að mestu hafa komið frá Garðari Sigurðssyni og reyndar fleirum og verið studdar af þeim. Formaður varð ekki við þeirri ósk að þeirra yrði beðið. Ef komnir eru tveir aðalmenn nefndarinnar og tveir menn eru í minni hl. þá eru það fjórir og af sjö er það meiri hl., hv. þm. Stefán Guðmundsson. En að Stefán Guðmundsson hafi beitt einhverju harðræði, það held ég að ég hafi aldrei staðhæft. Ég taldi ákaflega hæpið að setja þetta þskj. fram með þrem atkv. nm. þar sem tveir voru varamenn gegn 2 atkv. minni hl., enda var þskj. afturkallað, svoleiðis að ég held að þetta standi allt óhaggað.

Það sem ég gerði athugasemd við var að hér hefði komið ákaflega hörð gagnrýni á (Gripið fram í: Hér hafa skrifað 4 nm. en ekki þrír.) Hv. þm. afhenti mér hér þskj. 622. Nú vil ég spyrja hv. þm.: Var Jón Magnússon á þessum fundi? (StG: Jón Magnússon lýsti því yfir við nm. að hann vildi samþykkja þetta eins og það var. Hann skrifaði undir og var í Þórshamri.) Var hann ekki í Þorlákshöfn? Enda sést það hverjir skrifa undir, það eru þrír. Ég verð að telja þetta óheppileg vinnubrögð. Harðræði held ég, að Stefán Guðmundsson beiti ekki og hef aldrei ásakað hann um það. Ég taldi þetta hins vegar óheppileg vinnubrögð.

En það sem ég var að gera athugasemd við og hv. þm. forðaðist að svara en sjútvrh. svaraði að nokkru leyti, það var um 17. gr. 1. mgr.: „Framleiðsla á sjávarafurðum til útflutnings er óheimil án sérstaks leyfis sjútvrn.“ Þetta er strikað út. Það sem eftir stendur af greininni er það að rn. setur nánari reglur um skilyrði fyrir sviptingu og veitingu vinnsluleyfa. En í 14. gr. frv. er eftirfarandi tekið fram:

„Afurðadeild gefur út útflutningsvottorð, sé þess krafist í reglugerð. Deildin skal gæta þess að ekki verði fluttar út sjávarafurðir sem ekki standast þær kröfur“ o. s. frv. „Afurðadeild annast útflutning vinnsluleyfa til vinnslustöðva, en þau staðfesta að viðkomandi vinnslustöð fullnægi settum reglum um hreinlæti og búnað. Óheimilt er að verka eða vinna sjávarafurðir til útflutnings án slíks vinnsluleyfis.“

Að hreinlæti og búnaður sé í lagi, hvaða reglur eru það sem koma hér til viðbótar í 16. gr. að rn. setji nánari reglur um skilyrði fyrir sviptingu og veitingu vinnsluleyfa? Hreint út sagt það að það er á valdi hæstv. ráðh. með einfaldari reglugerð að heimila það sem honum sýnist. Hann hefur skýrt að nokkru hvað fyrir honum vaki. Vitanlega hefði þá þurft að vera þessi reglugerð eða a. m. k. uppdrættir að henni en ekki að Alþingi afhenti hæstv. ráðh. á silfurdiski heimild til að veita eitthvert sérstakt leyfi til reksturs vinnslustöðva. Ef sjútvrh. óttast offjárfestingu í frystihúsum eða vinnslustöðvum, sem vel má vera að hætta sé á, þá á það heima undir einhverjum fjárfestingarlögum en alls ekki lögum um fiskmat. Þarna er verið að afhenda ráðh. meiri og stærri völd en þekkst hafa. Það er vægast sagt ákaflega glannalegt af virðulegu Alþingi að afgreiða slíkt með ekki nánari skilgreiningu en nauðsynlegum ummælum ráðh., en hv. formaður sjútvn. treystir sér ekki til að svara.

Hæstv. ráðh. talar um verkaskiptingu. Í hvaða lagagr. er þessi verkaskipting? Hún er í grg. Í lögunum er hvergi kveðið á um verkaskiptingu. Þetta er fróm ósk í grg. en á ekkert skylt við lagasmíð. Sami ráðh. vill ekki viðurkenna að mat sé ekki óháð þótt það lúti stjórn ótilgreindra hagsmunaaðila sem eru í meiri hl. Það er búið að kippa þessu út úr frv. að verulegu leyti. Þó eru þarna nokkrir hortittir. Frv. og meginatriðin í breytingu á frv. voru þessi völd sem fiskmatsráð fékk. Þau eru tekin burt með áliti nefndarinnar og þá er grundvöllur lagasetningarinnar brostinn. Hann er hreinlega brostinn og þess vegna er ástæða til þess að athuga þessi mál betur og að Alþingi afgreiði ekki frv.

Hv. þm. Guðmundur Garðarsson hefur rætt málið, einn þrautkunnugasti starfsmaður Sölumiðstöðvarinnar sem framleiðir 70% af frystum afurðum okkar. Hann varar við þessu. Ég held að ég hafi þrívegis tekið fram í minni ræðu gildi þess að eftirlitsmenn sölusamtaka og hið óháða ríkismat ynnu saman. Erfiðleikar geta t. d. falist í því að svo góð sem þessi samvinna er og þetta eftirlit að innan einstakra samtaka gætu aðilar sinnt eftirliti sem væri mun eðlilegra en framleiðslueftirlitið eða ríkismatið fengist við í ákveðnum málum. Mat er ekki óháð ef það lýtur stjórn hagsmunaaðila.

Það er sett að skilyrði fyrir útflutningi til Austur-Evrópuríkja að það sé óháð ríkismat. Ekki þori ég að tala fyrir þá austantjaldsmenn en ákaflega er ég smeykur um að þeir mundu aðeins sperra brýrnar yfir því að stjórn þessa óháða mats væri að meira hluta í höndum hagsmunaaðila.

Það er líka vitað að fjölmörg fyrirtæki á Vesturlöndum krefjast þess hins sama. Framleiðsluráð sjávarafurða hefur fengið viðurkenningu í Bandaríkjunum sem eftirlitsmatsaðili skelfisks. Hins vegar hafa verið uppi till. í Bandaríkjunum um að ameríska matvælaeftirlitið hefði með höndum eftirlit á fiskafurðum og matvælum sem framleiddu erlendis, sér í lagi fiskafurðum. Ef t. d. rækjueitrunin frá Bangladesh í Hollandi hefði komið upp í Bandaríkjunum hefði þetta frv. sem vofir yfir Bandaríkjaþingi — það hefur ekki hlotið samþykki — flogið í gegnum þingið. En þetta Framleiðslueftirlit hefur fengið viðurkenningu sem matsaðili á skelfiski og það mundi ábyggilega torvelda að það yrði viðurkennt ef það væri háð hagsmunaaðilum.

Ég verð svo að endingu að segja það fyrst varaformaður annars stjórnarflokksins kemur hér í þingsal að ef það er orðið baráttumál Sjálfstfl. að ákveðinn atvinnurekstur í landinu megi ekki rækja nema með samþykki ákveðins ráðh. þá er orðið lítið eftir af athafnafrelsinu. Engin grg. hefur fengist. Fyrst núna fæst eitthvað lauslega fram hjá virðulegum og hæstv. sjútvrh.

Um umsagnir hinna ýmsu aðila hef ég ekki fjallað og ekki séð. Ég skal viðurkenna að þetta hefði ég átt að geta séð hjá n. en þetta var ekki sýnt í okkar þingflokki og er það í sjálfu sér mál þingflokks Alþb. En ég held að þarna sé ekki umsögn frá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, sem framleiðir 70% af frystum sjávarafurðum. (Gripið fram í: Samband fiskvinnslufyrirtækja.) Samband fiskvinnslufyrirtækja, ég þekki það fyrirtæki ákaflega vel. Formaður þess skrifar ekki undir því að hann er einn af þeim sem samdi þetta frv.

Ég vil benda á að skýringar þær á hinum fjölmörgu greinum sem ég óskaði eftir hafa ekki komið. Túlkanir á mótsögnum hafa ekki komið. Þetta frv. er ekki til að stæra sig af og ekki til að auka veg Alþingis. En það kannske styrkir Sjálfstfl. í baráttu hans fyrir frelsinu að nú skuli allir þurfa að leita leyfis ráðh. þegar þeir ætla að annast eitthvað fiskverkun.