08.05.1984
Sameinað þing: 87. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5511 í B-deild Alþingistíðinda. (4771)
443. mál, almenningsbókasöfn
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Í gildandi lögum um almenningsbókasöfn nr. 50/1976 er svohljóðandi ákvæði til bráðabirgða: „Menntmrn. og Samband ísl. sveitarfélaga skulu sameiginlega gangast fyrir gerð heildaráætlunar um uppbyggingu og aðsetur almenningsbókasafna.“ Í samráði við Samband ísl. sveitarfélaga skipaði menntmrh. Ingvar Gíslason þann 13. febr. 1980 5 manna nefnd til þess að annast framangreint verkefni. Í nefndinni áttu sæti þau Kristín H. Pétursdóttir bókafulltrúi ríkisins frá menntmrn., formaður, skipuð án tilnefningar, í öðru lagi Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri, Seltjarnarnesi, í þriðja lagi Ölvir Karlsson oddviti, Ásahreppi, skipaður skv. tilnefningu Sambands ísl. sveitarfélaga, í fjórða lagi Elfa Björk Gunnarsdóttir borgarbókavörður í Reykjavík og í fimmta lagi Sigrún Magnúsdóttir bókavörður, Ísafirði, skipaður skv. tilnefningu Bókavarðafélags Íslands.
Þann 12. okt. s. l. lagði nefndin fram sameiginlegar niðurstöður sínar í formi skýrslu sem ber nafnið Íslensk almenningsbókasöfn og uppbygging þeirra. Megintillögur nefndarinnar eru: 1. Skipting landsins í 7 bókasafnsumdæmi er fylgi þeirri svæðisskiptingu sem sveitarfélög hafa markað í samstarfi sínu. Í hverju umdæmi verður skipaður bókasafnsráðgjafi. 2. Hert verði á kröfum um menntun til starfa í bókasöfnum og þeir sem koma nýir til starfa uppfylli ákveðnar lágmarkskröfur áður en þeir fá ráðningu til starfa.
Í skýrslunni er bent á að þrátt fyrir verulegar framfarir sem orðið hafa í bókasafnsmálum margra sveitarfélaga verði að telja að íslensk almenningsbókasöfn séu mjög langt frá því takmarki sem þeim eru sett í lögunum um almenningsbókasöfn. Nefndin telur því ofangreindar tillögur forsendur þess að hægt sé að gera heildaráætlun um uppbyggingu og aðsetur almenningsbókasafna og leggur því til að lög um almenningsbókasöfn verði endurskoðuð í samræmi við niðurstöður skýrslunnar.
Það næsta sem gerðist í málinu varð að skýrslan var send bókasafnsstjórnum og forstöðumönnum almenningsbókasafna, sveitarstjórnum og landshlutasamtökum sveitarfélaga, svo og sýslumönnum. Beðið var um umsögn þessara aðila um tillögur nefndarinnr. Rn. mun taka ákvörðun um endurskoðun laga um almenningsbókasöfn þegar umsagnirnar hafa borist og unnið hefur verið úr þeim. Þær eru rétt að byrja að berast núna en ljóst er að ekki verður hægt að leggja fram frv. til nýrra laga um almenningsbókasöfn á þessu þingi.