08.05.1984
Sameinað þing: 87. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5511 í B-deild Alþingistíðinda. (4773)
303. mál, verðbætur í útboðum
Stefán Benediktsson:
Herra forseti. Fyrir hönd fyrirspyrjanda, 1. landsk. þm., mæli ég fyrir fsp. til fjmrh. um útreikning verðbóta í útboðum. Fyrsti hluti þessarar fsp. er:
„Hver hefur heimilað stofnunum ríkisins og stofnunum, sem ríkissjóður er eignaraðili að, að bæta „línulegri“ verðlagshækkun ofan á opinbera gildandi verðvísitölu á hverju vísitölutímabili til greiðslu verðbóta á útboðsverk?“
Hér er um þann mjög algenga og allt að því algilda vinnumáta að ræða að við útreikning verðbóta miðla menn verðhækkun milli vísitölutímabila á þann tíma sem um ræðir hverju sinni og líka á verðhækkunina sem ákveðnu margfeldi af þeim dögum sem eru liðnir frá útgáfu síðustu gildandi vísitölu. Seðlabankinn hefur reyndar gefið út álit sitt á þessu verklagi, gerði það vegna fsp. til hæstv. viðskrh. fyrr í vetur, og sagði þá svo í áliti Seðlabankans, að ekki væri að hans mati hægt að líta á verðbætur sem nokkurs konar dagvexti og þessi vinnubrögð væru þar af leiðandi að þeirra mati ekki eðlileg. Samt sem áður er þetta notað og hér er spurt um það: Hver hefur heimilað þetta og hver ber ábyrgð á slíku?
„Er það réttlætanlegt að mati ráðh. að bæta kostnaðarhækkunum ofan á opinbera gildandi verðvísitölu til greiðslu á breytilegu samningsverði“ — segir hér í 2. lið — „í útboðssamningum þar sem breytilegt samningsverð er innt af hendi á samningstíma?“
Þetta höfðar til fyrstu spurningarinnar á þann hátt að fyrirspyrjandi lítur svo á að útgefin vísitala hafi nánast sama gildi og gengi, þ. e. gengi sem breytist dag frá degi, sem gildir þar til að næsta gengi hefur verið lýst yfir, þannig að fari fram einhver greiðsla á þeim sólarhring sem líður milli gengisbreytinga tekur hún mið af því gengi sem í gildi var morguninn áður en ekki á nokkurn hátt miðast hún við það gengi sem í gildi verður daginn eftir.
Í þriðja lagi: „Á hvern hátt er breytilegt samningsverð í útboðssamningum ríkisstofnana endurmetið til núvirðis þegar greiddar verðlagshækkanir eru hærri en gildandi verðvísitala?“ þ. e. þegar ríkisstofnanir nota „línulega“ verðhækkun sem viðmiðun við verðbótagreiðslur. Á hvern hátt reikna þeir sér sinn hagnað í slíkum viðskiptum?
Í fjórða lagi: „Hver er hagnaður ríkissjóðs af verðbótahækkun samningsverðs þegar útboðssamningar eru greiddir á samningstíma, (framkvæmdatíma) og hvernig er hann skilgreindur, eða, ef hann hefur fallið óskertur til verksala, á hvern hátt er hann þá skattlagður?“
Til að skýra þetta fyrir mönnum sem eru almennt ekki mjög mikið inni í verðbótaútreikningum er kannske einfaldast að taka mið af þeim lánum sem tekin eru með verðbótaákvæðum í banka. Annað lánið er borgað niður reglulega yfir árið, mánaðarlega eða eitthvað þvíumlíkt, en hitt lánið er greitt í lok ársins í einni afborgun. Sá sem greiðir í einni afborgun í lok ársins ber alla verðbótahækkun þess árs. Hann greiðir sem sé alla verðlagshækkun sem orðið hefur á láninu á þessu ári. Hinn, sem greitt hefur í jöfnum afborgunum allt árið, ber aldrei meira en hálfa verðlagshækkun á ársgrundvelli. Þetta þýðir að hann hefur borið minni fjármagnskostnað en sá sem lét lánið liggja í heilt ár. Spurningin er þar af leiðandi sú: Hvernig hefur ríkissjóður skoðað uppgjör á verksamningum með tilliti til verðbótagreiðslna og gert sér mynd af því hvaða vinnumáti sé hagkvæmastur fyrir ríkið? Fimmta spurningin er augljós og kannske fram sett einkum og sér í lagi til að minna á skyldleikann milli vísitölu og gengis: „Hvernig hefur gengisviðmiðun í útboðssamningum með breytilegu samningsverði við erlenda samningsaðila á einstökum verkþáttum verið skilgreind?
Hérna er nokkuð oft minnst á hugtakið „breytilegt samningsverð“. Ég varð var við að þetta hugtak vafðist dálítið fyrir starfsmönnum fjmrn. sem leituðu til okkar til að fá útskýringar á þessu og fleiri atriðum í fsp. Ég vil, með leyfi hæstv. forseta, reyna að skýra það.
Ef einn og sami maðurinn gerir tvo verksamninga um sambærileg verk við tvo óskylda aðila, annan í upphafi árs og hinn í lok ársins, notar hann allt annað verðlag til viðmiðunar í lok ársins en í upphafi. Þar af leiðandi er ekkert samhengi milli þeirrar verðtryggingar eða verðbóta sem hann hefur fengið á útlagðan kostnað í fyrra verkinu og því sem hann væntir að leggja út í seinna verkinu. En það virðist vera sem skilningur yfirvalda og einkaaðila, sem hafa fetað þarna í fótspor yfirvalda, sé að verkkaupanum beri nánast að tryggja verksalanum 100% verð útlagðs kostnaðar, þ. e. beri að tryggja útlagðan kostnað hans að fullu, það sé ekki á nokkurn hátt á ábyrgð verksalans að tryggja sína eigin fjármuni.
Með leyfi hæstv. forseta. Má ég kannske ganga svolítið á þann tíma sem ég á inni? Þetta verður eitthvað lengra en minn er vani.
Það sem ég tel vera óheilbrigt í þessari hugsun er það, að menn líta nánast á verðbótahækkanir ofan á samningsverð sem nokkurs konar tryggingu fasts verðlags. En verðlagið er, eins og ég sagði, breytilegt því að menn gera samninga um allt aðrar upphæðir í lok árs en í upphafi árs fyrir sambærileg verk. Það er ruglingurinn sem er á ferðinni. Menn eru að tala um fast verðlag þegar þeir eru að vinna í breytilegu verðlagi.
Og svo er hitt: Ef verkið er greitt niður á samningstíma myndast aldrei útlagður kostnaður hjá verksalanum vegna verðfalls krónu. Því á hann alls ekki neinn rétt á að fá meira en hálfar verðbætur greiðslutímans á verkið. Það sem er umfram greitt er í raun og veru hrein vitleysa og það sem verra er: það spólar upp fjármagnskostnað. Íslensk yfirvöld og þá kannske sérstaklega Seðlabanki Íslands þekkja greinilega ekki — og ég get reyndar fullyrt að þeir þekktu hana alls ekki a. m. k. til skamms tíma — samþykkt nr. 188A frá fjárhags- og viðskiptanefnd Sameinuðu þjóðanna, sem starfar í Genf, um verðskiptingarreglur sem kallað er. Þessi samþykkt er frá 6. áratugnum. Þessi samþykkt fjallar um skiptingu verðhækkana í verksamningum með breytilegu samningsverði og gerir gein fyrir hagnaði verkkaupa af að greiða verkið upp á samningstíma. Með þeirri aðgerð er stuðlað að hröðun verklegra framkvæmda og styttur þar með tíminn, þar með fengin lægri framleiðnitala í verkefnunum sem þýðir betri samkeppni, lægra vöruverð, minni fjármagnskostnað og endanlega það, sem kannske skiptir mestu máli fyrir Íslendinga, minni verðbólga.
Ef við gerum ráð fyrir því að útlagðir fjármunir ríkisins í útboðum séu um 4000 millj. á ársgrundvelli í 40% verðbólgu, þá erum við að tala hér um, ef miðað er við hálfa greiðslu verðbóta á samningstímanum eða á því ári, 800 millj. og 1600 millj. í útlögðum kostnaði.
Þetta mál er ekki einungis mál hins opinbera, heldur líka mál einkamarkaðarins sem, eins og ég sagði áðan, hefur fetað í fótspor hins opinbera. Þess vegna er mjög áríðandi að þetta sé skoðað og tekið á þeim þáttum málsins sem opinberum yfirvöldum þykir hlýða. (Forseti: Ég vil vekja athygli hv. fyrirspyrjanda á því að hann hefur þegar fullnýtt allan sinn ræðutíma.)