08.05.1984
Sameinað þing: 87. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5515 í B-deild Alþingistíðinda. (4775)
303. mál, verðbætur í útboðum
Stefán Benediktsson:
Herra forseti. Það fyrsta sem kannske er vert að minnast á er í sambandi við 1. lið þar sem „línulegar“ verðbætur eru taldar vera viðbrögð við drætti á reikningum. Það er ekki alveg rétt, held ég, sem fram kemur í svari rn., að menn hafi verið að draga reikningsuppgjör til loka gildandi vísitölutímabils. Rétt er, held ég, að þeir hafi dregist yfir tímamörk gildistöku nýs vísitölutímabils. Þessi úrbót er ekki annað en skemmri skírn að því leyti að nú er nánast sama hvenær þeir leggja reikninginn fram.
Svarið við 2. spurningu höfðar nokkurn veginn, að því er ég fæ best skilið, til þess hugtaks í íslensku sem kallast „frjálsir samningar“, þ. e. þetta er almennt viðhaft svona. Þess vegna gerum við það líka. Ég held, en þar stendur fullyrðing á móti fullyrðingu, að í frjálsri samningsgerð sé ekki heimilt að búa til aðrar viðmiðanir en þær sem hafa lagalegt gildi og þar á ég við gengi eða vísitölu. Þar gildir einu hvort er um opinberan eða einkamarkað að ræða.
Að öðru leyti staðfestu svörin við 3. og 4. spurningu að nokkru leyti grunsemdir mínar. Það er höfðað þarna til þeirrar hefðar sem skapast hefur hjá Innkaupastofnun. Í 3. lið er spurt á hvern hátt breytilegt samningsverð er endurmetið til núvirðis. Ég held að þessu hafi ekki verið svarað beint vegna þess að slíkt hefur einfaldlega ekki verið gert. Og í svarinu við 4. lið kemur greinilega fram eins og ég sagði í upphafi míns máls, að menn miða við fast verðlag þegar við búum við breytilegt verð á samningstíma og verður því að lagfæra þessa hluti að einhverju leyti með endurbótum á löggjöf því að þessi verkmáti hlýtur að leiða til uppspólunar verðlags og aukinnar verðbólgu.