08.05.1984
Sameinað þing: 87. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5516 í B-deild Alþingistíðinda. (4777)

445. mál, arðgreiðslur til hluthafa Flugleiða hf.

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Ég vil svara þeim fsp. sem eru undir II á þskj. 589 svohljóðandi:

1. spurningin hljóðar svo: „Hve oft hefur ríkissjóður tekið við arðgreiðslum frá Flugleiðum hf. í formi ávísana á farmiða?“ Svarið er: Á aðalfundi Flugleiða hf. árið 1981 var stjórn félagins heimilað að veita hluthöfum Flugleiða hf. afsláttarmiða og var verð þeirra allt að 50% af gildandi fargjaldi á leyfi félagsins. Þess er getið í tilkynningu félagsins til hluthafa, sem fylgdi fyrrnefndum afsláttarmiða, að tilgangur þess að veita hluthöfum afslátt af fargjöldum félagsins sé að auka viðskipti hluthafa við félagið og efla tengsl þeirra við Flugleiðir hf. Ríkissjóði hafa verið afhentir afsláttarmiðar á árunum 1981–1984.

2. spurningin: „Hversu háar voru slíkar arðgreiðslur árlega?“

Á árabilinu 1981–1984 hefur ríkissjóður móttekið afsláttarmiða samtals að fjárhæð 2 964 019 kr. sem skiptist á árin þannig: Árið 1981 164 019 kr., árið 1982 700 000 kr., árið 1983 1 050 00 kr., árið 1984 sama upphæð, 1 050 000 kr.

3. spurningin: „Hversu hár var styrkur ríkissjóðs til Flugleiða á sama tíma árlega?“ Á árinn 1980 samþykkti Alþingi lög um málefni Flugleiða hf. þar sem ríkisstj. er heimilt að veita félaginu sjálfskuldarábyrgð af láni allt að 3 millj. Bandaríkjadollara í því skyni að mæta rekstrarhalla, ef verði, á flugi félagsins milli Lúxemborgar og Bandaríkjanna frá 1. okt. 1980 til 30. sept. 1981.

Þá segir að lendingargjöld og leigugjöld vegna aðstöðu á Keflavíkurflugvelli, svo og tekju- og eignarskatt, miðaskatt og önnur gjöld beri félaginu að greiða á réttum gjalddögum, en þann hluta gjalda, sem rekja má til Norður-Atlantshafsflugsins, fær félagið endurgreitt við skuldauppgjör.

Í 6. gr. fjárlaga fyrir árið 1982 er veitt heimild til handa fjmrh. að veita félaginu sjálfskuldarábyrgð að fjárhæð 1.6 millj. Bandaríkjadala og í fjárlögum 1983 1.9 millj. Bandaríkjadala með sömu skilyrðum og lögin frá 1980 gera ráð fyrir. Samtals nema lántökur þessar 6.5 millj. Bandaríkjadala. Ríkisendurskoðun var falið að meta rekstrarafkomu Flugleiða hf. á umræddu tímabili og varð niðurstaðan sú að á árinu 1981–1982 féllu umrædd lán á ríkissjóð. Hefur því verið fært sem framlag í ríkisreikningi til aðstoðar Flugleiða hf. á árinu 1981 kr. 45 276 756 og á árinu 1982 kr. 48 822 550. Enn hefur ekki verið tekin afstaða til lána sem veitt voru á árinu 1983. Nema þau um 65 millj kr. samtals og falla í gjalddaga á þessu ári. Ég vil bæta því við að fyrsta afborgun er þegar fallin í gjalddaga.

„4. Er það réttlætanlegt að mati fjmrh. að fyrirtæki í taprekstri, sem nýtur ríkisstuðnings, greiði hluthöfum sínum arð?“ Svar mitt er: Nei, alls ekki.

„5. Hefur fjmrh. kannað hvort arðgreiðslur með þessum hætti og við þessi skilyrði eru löglegar?“ Svarið: Af hálfu rn. hefur ekki áður verið gerð könnun á því hvort afsláttarmiðar þeir, sem Flugleiðir veita hluthöfum sínum, teljast vera arður í skilningi hlutafélagalaga nr. 32/1978 né hvort þessir afsláttarmiðar eru löglegir miðað við rekstur Flugleiða undanfarin ár. Við lauslega skoðun, sem gerð var á vegum rn. í tilefni af fsp. þessari, virðist líklegt að telja beri þessa afsláttarmiða til arðs í skilningi hlutafélagalaganna. Sé sú niðurstaðan að þetta sé arður í skilningi hlutafélagalaganna virðist vafasamt að skilyrði 107. gr. hlutafélagalaganna hafi verið uppfyllt þegar útgáfa afsláttarmiðanna fór fram árin 1981–1984.

6. spurning hljóðar svo: „Hvernig hefur ríkissjóður varið þessum arðgreiðslum?“ Svarið: Ríkissjóður ákvað á árinu 1982 að nýta afsláttarmiða sína og á því ári fékk ríkissjóður afslátt af fargjöldum Flugleiða hf. að fjárhæð 482 306 kr. Á árinu 1983 var heimildin hins vegar að fullu nýtt sem var 1 050 000 kr. Hefur þá ríkissjóður nýtt heimild til afsláttar á fargjöldum á leiðum Flugleiða hf. að fjárhæð 1 537 306 kr. sem færð hefur verið sem arðgreiðsla til ríkissjóðs í ríkisreikningi á árinu 1983. Afsláttarmiðar fyrir árið 1984 að fjárhæð 1 050 000 kr. munu verða nýttir. Ofangreindur afsláttur hefur verið notaður til greiðslu fargjalda vegna starfsmanna ríkisspítala og mun sá háttur verða á hafður á árinu 1984.