08.05.1984
Sameinað þing: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5519 í B-deild Alþingistíðinda. (4786)

Um þingsköp

Stefán Benediktsson:

Herra forseti. Með tilliti til þess að verkefni þings hrannast nú upp vildi ég leyfa mér að beina þeim tilmælum eða þeirri ósk til hæstv. forseta að hann sjái svo um að nefndir Sþ. starfi með eðlilegum hætti. Sá sem hér stendur hefur reyndar ekki yfirsýn yfir störf allra nefnda Sþ. en ég veit með vissu að liðinn er óeðlilega langur tími, allt of langur tími núna milli funda hv. allshn. þessarar deildar og orðið mjög brýnt að hún haldi fund þar sem fáar nefndir í Sþ. hafa um jafnmörg mál að fjalla. Og því, eins og ég sagði, vildi ég leyfa mér að biðja um að hæstv. forseti sæi svo um að störf yrðu tekin upp með eðlilegum hætti.