08.05.1984
Sameinað þing: 88. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5553 í B-deild Alþingistíðinda. (4802)

288. mál, sjúkra- og iðjuþjálfun í heilsugæslunni

Flm. (Helgi Seljan):

Herra forseti. Fyrir þessari till. mætti gjarnan hafa langa framsögu, en ég skal reyna að hafa hana mjög stutta. Hún er um skipulagt átak til aukinnar sjúkra- og iðjuþjálfunar í heilsugæslunni og er þannig:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að beita sér fyrir skipulegu, samræmdu átaki til þess að koma sem bestri sjúkra- og iðjuþjálfun inn á heilsugæslustöðvar landsins sem allra fyrst. Kannað verði rækilega hversu tengja megi þessa þætti sem best við kennslu í heilsurækt í efstu bekkjum grunnskólans. Efldir verði möguleikar Vinnueftirlits ríkisins til að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum á vinnustöðum þar sem leiðbeint yrði sem gleggst um grundvallaratriði réttra vinnubragða og vinnustellinga jafnhliða bættri vinnuaðstöðu.

Leitað skal samráðs um þetta átak við samtök launafólks og vinnuveitenda, svo og þau félög heilbrigðisstétta sem málið varðar sérstaklega.“

Ég ætla ekki að fara yfir grg., heldur lesa upphaf hennar þar sem segir, með leyfi hæstv. forseta: „Meginatriði löggjafar okkar um heilsugæslu snýr að hinum fyrirbyggjandi aðgerðum, að koma í veg fyrir sjúkdóma, hindra þá í stað þess að vera sífellt að fást við afleiðingarnar með misjöfnum árangri. Vissulega hefur þar mikið áunnist í mörgum greinum og má nefna krabbameinsleit og athuganir á þeim sjúkdómi alveg sérstaklega, svo og rannsóknir og eftirlit varðandi hjartasjúkdóma. Ómetanlegt starf hefur þar verið unnið, enda forvarnarstarfið ævinlega árangursríkast ef rétt er að staðið. Vitanlega má þó enn betur gera og virkja heilbrigðisstéttir og sjálfboðaliða, svo og fyrst og fremst allan almenning til enn stærri átaka í forvarnarstarfi og á enn fleiri sviðum en nú er.“

Ég læt þetta nægja, en til áhersluauka varðandi þetta er þessi till. flutt.

Í grg. er vikið að því hver ástæða er fyrir þessari till. að öðru leyti, en ég hirði ekki um að taka þá löngu grg. upp, sem þar er, heldur vík ég að örfáum atriðum í tengslum við þetta, — bendi þó á það eitt, að hér geta margir að unnið, skótarnir alveg sérstaklega fyrir utan heilsugæslustöðvarnar og heilbrigðisstéttirnar í heild sinni, skólarnir alveg sérstaklega varðandi sína heilsurækt, vinnueftirlitið til þess að fara nánar ofan í vinnuaðstöðuna á vinnustöðunum enn frekar en nú er varðandi bæði vinnubrögð og vinnustellingar, eins og segir í ályktuninni, og einnig er þetta slíkur hagur fyrir samtök launafólks og vinnuveitenda, fyrir launafólk í landinu og vinnuveitendur almennt, að víða hafi slíkir aðilar, þar sem ég hef kynnt mér mál í öðrum löndum, gert stórátak á því sviði að koma inn á vinnustaði hjá sér ákveðinni sjúkra- og iðjuþjálfun og telja sig hafa þar hið mesta gagn af varðandi betra heilsufar fólksins, betri vinnuafköst og meiri vinnuánægju almennt.

Í grg. segir reyndar að flm. hafi leitað til sér fróðari aðila um þetta efni og því verði gerð skil í framsögu. Hér læt ég nægja að vísa til þess sem segir í grg. Hér er um býsna flóknar fræðigreinar að ræða, sem ég hygg að sé ekki auðvelt að skilgreina í stuttu máli, svo að ég vel þann kost í samráði við þá aðila sem hér kunna gleggst skil á og eiga langa skýrslu í fórum sínum hér að lútandi að stikla aðeins á því stærsta.

Í fyrsta lagi er rétt að víkja að námskröfum sem gerðar eru til iðjuþjálfa og sjúkraþjálfa. Hér er orðið um býsna erfitt nám og fjölþætt að ræða og það liggur mikil starfsþjálfun að baki. Menntunarkröfurnar eru þær, að til þess að komast í þessar greinar báðar þarf stúdentspróf og síðan er nám á háskólastigi. Hjá sjúkraþjálfurum er þetta þannig, að þetta geta verið 2–3–4 ár a. m. k., eftir því hversu langt er farið og mikið numið. Ég hlýt í því sambandi að vekja athygli á þeim miklu takmörkunum sem eru á fjölda þeirra sem inngöngu fá árlega í Háskólann í sjúkraþjálfun, alveg sér í lagi með tilliti til þess skorts sem hefur verið á lærðum sjúkraþjálfurum þó úr hafi nokkuð ræst hin síðustu ár. Endurhæfingarstöðvar okkar hafa t. d. til skamms tíma verið með erlenda sjúkraþjálfara, ágæta starfskrafta, en flestir hafa þeir horfið til síns heima, og nú mun þannig ástandið í Háskólanum að þar mun aðeins 16–18 hleypt inn á þessa braut árlega. Það heltast alltaf einhverjir úr lestinni. Ég hygg að það sé rétt að núna í vor muni aðeins 10 útskrifast á sama tíma og ég hef það fyrir satt að Gigtarfélaginu gangi illa að fá sjúkraþjálfara á sína nýju ágætu stöð og er þó þörfin ærin.

Nú draga læknar, sem best hafa hér vit á, ekkert úr því hversu mikla nauðsyn ber til þess að fá enn fleiri sjúkraþjálfara til starfa alveg sér í lagi svo að snúa megi sér að fyrirbyggjandi aðgerðum jafnhliða þjálfun og endurhæfingu. Hér er því eitthvað ekki sem skyldi þegar svo mjög er þrengt að um inntöku nemenda í þessa grein, svo þýðingarmikil sem hún er talin.

Varðandi iðjuþjálfa gildir það hins vegar, eins og ég sagði áðan, að þar er stúdentspróf vissulega forsendan og síðan kemur þriggja ára háskólanám, erlendis vel að merkja, því að iðjuþjálfabraut er ekki til hér á landi. Það er enn erfiðara að fást við það nám, enda miklu færri í þeirri stétt.

Það er rétt að víkja að stöðu þessara stétta innan heilbrigðisþjónustunnar. Ég vitna þar í lög og bendi á að bæði sjúkra- og iðjuþjálfun er meðal verkefna heilsugæslustöðvanna, sbr. 19. gr. heilsugæslulaganna 1. töluliðs sem orðast svo, með leyfi forseta:

Á heilsugæslustöð eða í tengslum við hana skal veita þjónustu eftir því sem við á — og hér segir í fyrsta lagi: almenn læknisþjónusta, hjúkrunarþjónusta, sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun o. s. frv. Hér er skýrt að orði kveðið. Í tölulið 3 er talað um læknisfræðilega endurhæfingu, sem er vart hugsanleg án þessara stétta.

Varðandi starfsstéttirnar er enn ekkert í lögum um iðjuþjálfa, enda er þar um alltof fámenna stétt að ræða enn þá. Iðjuþjálfar óskuðu hins vegar eftir því í endurskoðun laga um heilbrigðisþjónustuna á síðasta þingi að þeim yrði bætt inn í upptalningu starfsstétta á heilsugæslustöðvum. En mönnum þótti nóg í þeim áfanga að bæta sjúkraþjálfurum við því að 1. tölul. 17. gr. laganna hljóðar nú svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Ráða skal hjúkrunarfræðinga, ljósmæður og sjúkraþjálfara til starfa vð heilsugæslustöðvar og skulu þeir skipaðir af ráðh. að fenginni umsögn stjórnar viðkomandi heilsugæslustöðvar og taka laun úr ríkissjóði.“

Lagastoðin er mjög ljós hvað þetta snertir, sérstaklega þó varðandi sjúkraþjálfarana eins og ég tók fram, en iðjuþjálfun er hins vegar einn viðurkenndra þátta starfsins á heilsugæslustöðvum. Það vita þó allir að hvort tveggja er enn allt um of dauður bókstafur og raunar eru hin stærri sjúkrahús landsbyggðarinnar hvergi nærri með þá endurhæfingarþjónustu sem vera skyldi, hvað þá hin smærri eða sjúkrahús eða sjúkraskýli.

Ég get þó ekki stillt mig um að benda á að sjúkrahúsið í Neskaupstað þar sem er nú um stundir hin ágætasta þjónusta af þessu tagi, en hún kann að vera mjög tímabundin. Hún er rómuð af öllum sem þar þurfa að ná sér eftir margvísleg slys eða veikindi, en óvíst er um hversu lengi þeir starfskraftar, sem þar eru, munu halda þar starfi sínu áfram, vonandi sem lengst. Ég bendi einnig á dæmi frá mínu heimasvæði, einnig frá heilsugæsluselinu á Breiðdalsvík, ekki einu sinni heilsugæslustöðinni, þar sem sjúkraþjálfari er í vetur og hefur slíkar annir að til hennar sækir fólk frá Djúpavogi, Stöðvarfirði og Fáskrúðsfirði og biðlistinn lengist stöðugt. Dómur fólksins eystra, hvort sem er í Neskaupstað eða á Breiðdalsvík, svo að ég taki þessi tvö dæmi, eða á Egilsstöðum, þar sem þessi þjónusta hefur verið öðru hverju er allur á einn veg og margir hafa þar fengið verulega bót sem þeir annars, og þar legg ég áherslu á, hefðu þurft að sækja til endurhæfingarstöðvar með ærnum kostnaði fyrir sig og ríki ekki síður, vegna þess að þegar fólk fer á þessar endurhæfingarstöðvar eru þar ólíkt meiri upphæðir að veði varðandi daggjöld þeirra stöðva, sem ríkið greiðir að fullu.

Gildi þessa starfs úti á stöðvunum fer því ekki milli mála og m. a. sagan frá Breiðdalsvík varð mér enn frekari hvatning til að vekja á þessu máli verðskuldaða athygli, en aðalástæðan til þess er sú persónulega reynsla sem ég hef því miður þurft að hafa af þýðingu þessara stétta. Ég veit af eigin raun hversu miklu þær geta skilað ef þar er vel að málum staðið. Ég veit líka að æðstu yfirvöld heilbrigðismála hafa mikinn áhuga á átaki í þessum efnum, vissum áföngum sem unnt væri að ná, en mér er líka sagt að allar tilraunir í þá átt að framfylgja 17. gr. laga um heilbrigðisþjónustu hafi strandað á s. l. hausti vegna algerrar synjunar á stöðum sjúkraþjálfa á heilsugæslustöðvum þó að hæstv. heilbrmrh. hafi leitað þar mjög eftir að fá ákveðnar stöðuheimildir þar. Ég skil þessa synjun illa því að virk sjúkraþjálfun á heimastað skilar ótrúlega miklum sparnaði, ekki síst þegar til lengri framtíðar er litið.

Það er langt liðið á þetta þing og vart unnt að telja till. þessa annað en kynningartillögu rétt til að vekja athygli á brýnu og þörfu máli, áherðingu á þeim lagaákvæðum sem fyrir eru og hvatning til að gera átak í þessum málum um leið og bent er á þá fjölmörgu aðila sem að málinu ættu réttilega að koma, svo sem samtök vinnuveitenda og launþega. Kynning þessi meðal almennings er brýn og ætti að vera sjálfsagður þáttur í heilsurækt skólanna, eins og ég sagði áðan, og almennri heilsurækt um leið. Það er full ástæða til að fylgja þessu máli eftir og verði ekki tök á því eða virðist ekki til þess tími nú að afgreiða málið, eins og ég reikna svo sem með, þá mun það endurflutt að ári því að fullvissa mín er sú að fátt gerir þingið þarfara en það að leggja aukna áherslu á forvarnarstarf í okkar heilbrigðismálum.

Ég vil svo leyfa mér, herra forseti, að leggja til að að loknum þessa hluta umr. verði þessari till. vísað til hv. allshn.