08.11.1983
Sameinað þing: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 638 í B-deild Alþingistíðinda. (481)

46. mál, móttökuskilyrði sjónvarps í N-Þingeyjarsýslu

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég vil undir umr. um þetta efni vekja athygli hæstv. menntmrh. og þeirra sem málum ráða að því er þessa þætti varðar á að það er víðar en á Norðurl. e. sem slæm móttökuskilyrði eru, ekki bara að því er varðar sjónvarpið heldur-og ekki síður — útvarpið. Það er daglegur viðburður t.d. á Vestfjörðum, að FM-bylgjan er úti svo tímunum skiptir. Vildi ég beina því vinsamlegast til hæstv. menntmrh., að um leið og hann hægir hug Norðlendinga eystri líti hann í aðra átt, til Vestfjarða, og geri slíkt hið sama.