09.05.1984
Efri deild: 92. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5565 í B-deild Alþingistíðinda. (4823)
319. mál, kvikmyndamál
Frsm. (Eiður Guðnason):
Herra forseti. Menntmn. þessarar hv. deildar hefur fjallað um frv. til l. um kvikmyndamál á þremur fundum. Til viðræðna við nefndina komu fulltrúar Félags ísl. kvikmyndagerðarmanna og Kvikmyndasafns. Þá kom einnig á fundi nefndarinnar til skrafs og ráðagerða Knútur Hallsson ráðuneytisstjóri menntmrn.
Í nefndinni urðu nokkrar umr. um ýmsa þætti þessa máls, m. a. um svonefnda kvikmyndalögsögu sem verið hefur til umr. hér að undanförnu, m. a. með tilliti til þess að erlend stórfyrirtæki á sviði kvikmyndagerðar hafa staðið að umfangsmikilli kvikmyndagerð, sem núna virðist hafa runnið út í sandinn, á Skógasandi þar sem þeir eru hættir starfi hér á landi. Íslenskir kvikmyndagerðarmenn hafa haft af því nokkrar áhyggjur að erlend fyrirtæki sæktu hingað í mjög vaxandi mæli til að notfæra sér það sem Ístand hefur upp á að bjóða í þessu efni. Kunnugt er að sums staðar hefur sá háttur verið á hafður að þessum aðilum hefur verið gert að greiða einhvers konar aðstöðugjald og starfsemi þeirra háð leyfum.
Þetta var rætt töluvert ítarlega í nefndinni, hvort ætti að gera slíkum aðilum að greiða einhvers konar aðstöðugjald er rynni til íslenskrar kvikmyndagerðar. En við athugun okkar sem sæti eigum í menntmn. kom í ljós að hugtakið „kvikmyndalögsaga“ mun ekki vera til í alþjóðarétti þó að okkur sé býsna ljóst hvað við er átt með því og enn fremur að fyrir liggja takmarkaðar upplýsingar um hvernig þessum málum er háttað hjá öðrum þjóðum. Ekki þótti rétt að taka upp í þessi lög stífar, beinar reglur um það hvernig málum þessum skyldi fyrir komið þar sem nm. voru á einu máli um að þau þyrfti að kanna betur. Ég mun koma síðar að því hér hver till. n. er í þessu efni, en nefndin mælir með samþykkt frv. með þeim breytingum sem er að finna á þskj. 773. Hv. þm. Árni Johnsen og Salome Þorketsdóttir voru fjarstödd afgreiðslu málsins en nefndin mælir einróma með því að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem ég skal nú í stuttu máli gera grein fyrir.
Nefndin leggur til að 1. tölul. 2. gr. frv. verði breytt á þann veg að hann orðist sem hér segir, með leyfi forseta:
„Úthlutun styrkja og lána til íslenskrar kvikmyndagerðar, óháð því hvaða tækni er notuð við myndgerðina.“
Þarna er í rauninni tekið inn ákvæði sem er að finna í 10. gr. frv. eins og hún nú er, en þar segir, með leyfi forseta:
„Heimilt skal Kvikmyndasjóði að láta starfsemi sína ná til myndbandagerðar og annarra tækniaðferða sem skyldar eru eða tengjast hefðbundinni kvikmyndagerð með einum eða öðrum hætti.“
Þetta ákvæði er sett þarna inn aðeins til einföldunar. Tekið er fram að þetta gildi um kvikmyndagerð óháð því hvaða tækni sé notuð. Framfarir á þessu sviði eru næsta örar nú og því töldu nm. eðlilegra að þetta yrði orðað með þessum hætti.
Og næsta setning með leyfi forseta:
„Með íslenskri kvikmyndagerð er átt við verkefni þar sem íslenskir aðilar hafa forræði.“
Eðlilegra þótti að hafa þetta orðalag frekar en það sem er í frv. en þar segir: „Enn fremur er heimilt að styðja kvikmyndagerð sem unnin er í samvinnu við erlenda aðila skv. nánari skilyrðum í reglugerð.“ Okkur í menntmn. þótti eðlilegra að hér væri eingöngu átt við verkefni þar sem íslenskir aðilar hafa forræði á því hvernig það er unnið og stjórna því verki.
2. brtt. er við 3. gr., þ e. um þá sem tilnefndir eru í stjórn Kvikmyndasjóðs. Í stað Félags ísl. leikara komi Bandalag ísl. listamanna. Félag ísl. leikara er aðili að Bandalagi ísl. listamanna og eðlilegra þótti að hafa þetta nokkru víðara þar sem langtum fleiri listamenn koma við sögu við gerð kvikmynda en leikarar eingöngu. Má þar nefna tónlistarmenn, leikmyndagerðarmenn, og sjálfsagt einhverja fleiri.
3. brtt. n. er við 7. gr. frv. um Kvikmyndasafn. Þar leggja nm. til að síðari mgr. 7. gr. orðist sem hér segir, með leyfi forseta:
„Framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs skal jafnframt vera forstöðumaður safnsins“ — þ. e. Kvikmyndasafnsins — „en fela skal a. m. k. einum af starfsliði sjóðsins að sinna sérstaklega málefnum safnsins.“
Þarna eru ákvæðin gerð nokkru skýrari en var í frv. eins og það var fram lagt hér í þessari hv. deild, en þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
„Framkvæmdastjóri Kvikmyndasjóðs skal jafnframt vera forstöðumaður safnsins, en heimilt skal að fela einum af starfsliði sjóðsins að sinna sérstaklega málefnum safnsins.“
Brtt. okkar gengur í þá átt að fela þetta a. m. k. einum af starfsliði sjóðsins.
Ég þarf ekki að fara um það mörgum orðum að starfsemi Kvikmyndasafns Íslands hefur einkum beinst að því að bjarga frá glötun ýmsum verðmætum sem ekki verða bætt eða þau færu í glatkistuna. Að þessum málum hafa ýmsir menn vel unnið áður en Kvikmyndasafn kom til sögu og haft á þessu skilning og vil ég þar sérstaklega nefna til sögunnar Magnús Jóhannsson kvikmyndagerðarmann og þann mann sem stýrir hér hljóðupptöku á ræðum alþm. þó deila megi um varðveislugildi ýmiss af því sem hér er sagt. En hann hefur unnið ómetanlegt starf við að bjarga gömlum íslenskum kvikmyndum, ekki bara frá skemmdum heldur frá því að eyðileggjast. Það gerði hann áður en starfsemi Kvikmyndasafnsins kom til og fyrir það á hann ekki aðeins þakkir heldur mikinn heiður skilinn. Það finnst mér rétt að komi fram við þessa umr.
En það er Kvikmyndasafnsins að halda þessu verki áfram og mikilsvert er að þannig verði staðið að málum þar að þessi menningarverðmæti geymist en glatist ekki og þau geymist með þeim hætti að komandi kynslóðir megi þeirra njóta. Það er m. a. til að tryggja þetta og að þessum málum verði sinnt eftir því sem hægt er að gera slíkt í löggjöf að nefndin leggur þessa breytingu til.
Í fjórða lagi leggur nefndin til breytingu á 8. gr. frv. sem hljóðar svo eins og það var fram lagt: „Heimilt er að koma á skylduskilum kvikmynda skv. nánari ákvæðum í reglugerð.“ Nefndin leggur til að í reglugerðinni skuli m. a. kveðið á um greiðslu kostnaðar við skylduskilin og skal ég nú skýra í örfáum orðum hvers vegna þetta ákvæði er til komið. Það er komið til vegna þess að bara efniskostnaður og vinnukostnaður við að gera eintak af langri leikinni kvikmynd getur sjálfsagt leikið á bilinu 150–200 þús. kr. Það er veruleg upphæð og miklu skiptir að það séu góð og óspillt eintök sem Kvikmyndasafnið fær til varðveislu. Séu ekki ákvæði um þetta og ef þetta er lagt sem skattur á kvikmyndagerðarmenn kemur það í rauninni til frádráttar þeim styrk sem þeir fá úr sjóðnum og þá skapast kannske sú hætta að menn freistist til að skila í skylduskilin til Kvikmyndasafns eintaki, sem kannske er búið að fara hringinn í kringum landið, búið að sýna í tugum kvikmyndahúsa með jafnmörgum kvikmyndasýningarvélum af jafnmörgum mönnum, eintaki sem kannske er engan veginn gallalaust. Þessu er ætlað að koma í veg fyrir slíkt.
Ég hef áður, herra forseti, vikið að 10. gr. sem við leggjum til að verði felld niður þar sem meginefni hennar er búið að taka upp í 2. gr. frv. Hér er að vísu ákvæði um að leggja áherslu á samstarf og samvinnu við sjónvarpsdeild Ríkisútvarpsins og aðra dreifiaðila sjónvarpsefnis. Það er ekkert sem knýr á um að lögbinda slíkt samstarf. Ég hygg að slíkt samstarf muni verða og muni komast á án þess að það sé með nokkrum hætti bundið í lögum.
Við 12. gr. leggur nefndin til að bætist ákvæði, þar sem hér er verið að fara inn á nýjar brautir að ýmsu leyti, um að lög þessi skuli endurskoðuð eigi síðar en að tveimur árum liðnum frá gildistöku þeirra. Til viðbótar því komi síðan svofellt ákvæði til bráðabirgða, með leyfi forseta:
„Menntmrh. er heimilt að setja reglur um kvikmyndastörf erlendra aðila á Íslandi að undangenginni ítarlegri athugun.“
Það sem okkur nm. gengur til með þessu ákvæði til bráðabirgða er að tryggja það að athugað verði hvernig þessum málum er háttað erlendis. Skv. upplýsingum ráðuneytisstjóra menntmrn. þá er sú athugun raunar þegar að nokkru hafin. N. taldi líka mikilvægt að hér væri ákvæði er heimili menntmrh. að setja reglur um kvikmyndastörf erlendra aðila hér á landi. Það er áreiðanlegt að að ýmsu leyti hefur verið pottur brotinn að því er þetta varðar, bæði varðandi atvinnuleyfi hugsanlega og eins hefur verið látið að því liggja að e. t. v. hafi þessi erlendu fyrirtæki ekki farið að öllu fyllilega eftir íslensum skattalögum og reglum án þess að nokkuð sé um það fullyrt. Um þetta er brýnt að séu reglur og nauðsynlegt að kanna hvernig þessum málum er háttað með öðrum þjóðum. Þetta er til að þrýsta á það og tryggja að svo verði gert.
Hér er vissulega um stórt skref að ræða til stuðnings íslenskri kvikmyndagerð, þessari listgrein sem svo ótvírætt hefur sannað tilverurétt sinn og gildi á undanförnum árum með gerð þeirra mörgu og ágætu kvikmynda sem ekki aðeins hafa hlotið lof og aðsókn hérlendis heldur hafa einnig fjölmargar hlotið verðlaun á erlendum vettvangi. Það er raunar alveg sérstakt ánægjuefni, sumum kannske undrunarefni, hversu vel hér hefur tekist til.
Kvikmyndagerð er dýr listgrein, sjálfsagt einna dýrust listgreina, og þar er um mjög áhættusöm störf að ræða í fjárhagslegu tilliti. Þess vegna hafa allar þjóðir í kringum okkur valið einhverjar leiðir í líkingu við þessa, að styrkja þessa listgrein með ýmsum hætti. Nefndin mælir einróma með því að þetta frv. til laga um kvikmyndamál verði samþykkt með þeim breytingum sem hún leggur til á þskj. 773.