09.05.1984
Efri deild: 92. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5570 í B-deild Alþingistíðinda. (4827)
81. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna
Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Það frv. sem hér liggur fyrir hefur reyndar lengi verið í smíðum og lengi staðið til að breyta lögunum um Hafrannsóknastofnun, en það er fyrst nú í vetur sem frv., sem lagt hefur verið fyrir fleiri þing, hefur verið tekið til afgreiðslu. Unnið hefur verið í því að koma málinu fram og er það mikils virði að nú loks skuli þeim áfanga náð. Ýmsar brtt. hafa verið gerðar á frv. og eru þær að mínu mati allar til mikilla bóta. Ég á von á að þegar þetta frv. hefur verið samþykkt sem lög muni virkni Hafrannsóknastofnunar aukast mjög verulega og aðstaða til starfa verði jafnframt betri.
Það er bætt við forstjóra sem á að sjá um rekstur útgerðar þeirrar sem fellur undir stofnunina. Er það mjög góð breyting að mínu viti því að ekki er eðlilegt að menn sem eru sérmenntaðir sem fiskifræðingar séu að vasast í slíkum málum, heldur stjórni þeir menn sem hafa til þess sérþekkingu þeim geira stofnunarinnar sem sér um útgerðina.
Ég tel að með breytingu er varðar 15. gr. frv. verði svokölluð ráðgjafarnefnd gerð virkari. Hún þarf einmitt að vera virkari frá því sem nú hefur verið. Staðreyndin er sú, að þessi ráðgjafarnefnd hefur komið saman einu sinni tvisvar á ári og lítið gert, en við vonum að með þeirri nýskipan sem hér er á komið verði þessi nefnd virkari og um leið betur í stakk búin til að vera stofnuninni til ráðgjafar.
Í 16. gr. er getið um útibú þau sem starfað hafa utan Reykjavíkur og verða áfram starfandi. Á sínum tíma voru allmiklar deilur um hvort rétt væri að setja upp slík útibú, en starfræksla þeirra hefur sannað gagnsemi þeirra. Ég tel að það hafi verið skoðun nm. að í raun ætti að hlúa betur að þessum útibúum. Eins og hv. síðasti ræðumaður gat um fer mikið af tíma þeirra manna sem starfa við þessi útibú í ýmis störf sem óeðlilegt er að þeir sinni. Ætti að nýta menntun þeirra og þekkingu betur en nú er gert. Það má geta þess að sannað er að þeir sem hafa starfað við þessi útibú utan Reykjavíkur hafa átt frumkvæðið að mörgu nýtilegu varðandi vinnslu fiskjar og vænti ég þess að svo verði áfram.
Ég veit að þrátt fyrir að n. hafi náð samkomulagi um þessa gerð frv. ásamt með brtt. eru ekki allir innan stofnunarinnar sáttir við frv. og vildu breyta því á annan veg og eitthvað meira en nú er gert, en ég legg áherslu á að þær brtt. sem n. flytur sameiginlega eru gerðar eftir ítarlegar umr. og viðræður við marga aðila og ekki lagt til að breyta fleiri atriðum þótt einstakir nm. gætu hugsað sér það. Um þetta varð samkomulag í nefndinni. Og ég tek undir þakkir til formanns um stjórn hans á vinnubrögðum. Það má segja að dregist hefur allmikið að koma frá sér nál., en þá er það til afsökunar að málið var mikið rætt og ítarlega og því bera þeim, sem að því hafa unnið, góðar þakkir.