09.05.1984
Efri deild: 92. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5573 í B-deild Alþingistíðinda. (4831)
329. mál, Fiskveiðasjóður Íslands
Karl Steinar Guðnason:
Herra forseti. Það mál sem liggur hér fyrir um Fiskveiðasjóð Íslands er afleiðing af fiskverðsákvörðun og slæmri stöðu útgerðar, sem best sést á því að hér er farið fram á heimild til að Fiskveiðasjóður skuldbreyti lánum sem afgreidd verða árið 1984, lánum sem nemi allt að 90% af tryggingarverðmæti skipa. Þar með er ekki allt talið og mörg skip þyrftu á meiru að halda en þessu. Kom fram í n. að þau eru a. m. k. níu sem þyrftu á mun meiru að halda og sýnir það mjög vel hve bág staða ýmissa útgerða er.
Það kom og fram í n., og það af tilviljun, að til stæði að miða þessa skuldbreytingu við fiskiskip sem væru stærri en 20 tonn. Nm. gerðu aths. við það og í framhaldi af því mun fyrirhugað að breyta þeirri viðmiðun þannig að þetta nái til smærri báta. En hvers vegna kom þetta fram? Í frv. er gert ráð fyrir að samin verði reglugerð um framkvæmd þessara mála. Reglugerðin var, að því er mér skilst, að mestu leyti tilbúin þegar sjútvn. hélt fund og embættismenn höfðu hana undir höndum, en við nm. fengum hana ekki. Þetta minnir á hversu fráleitt er að n. þingsins séu ekki hafðar með í ráðum við smíði reglugerða eða túlkun á þeim lögum sem verið er að setja og tel ég að svo þurfi að vera í auknum mæli að n. Alþingis segi sitt álit á þeim reglugerðum sem settar eru. Ég tel að það virki þannig að Alþingi þurfi þá ekki að þola að lög séu túlkuð á annan hátt en alþm. gætu hugsað sér. Vona ég að sú breyting verði á í framtíðinni að nm., t. d. í sjútvn., fái að fjalla um þær reglugerðir sem settar eru um sjávarútvegsmál, geti sagt sitt álit og lagt inn sínar hugmyndir eða mótmælt því hvernig að málum er staðið ef þeim þykir svo þurfa að vera.
Það hefur komið fram hérna að meiningin er að breyta þessu atriði um stærðarmörk og við erum sáttir við það, aðrir nm., og er samkomulag í n. um að afgreiða þetta mál. Mönnum er ljóst hver staða útgerðarinnar er. Það þarf að vísu fleira til að koma en að Fiskveiðasjóður skuldbreyti lánum á þennan veg og við skulum vona að svo verði gert.