09.05.1984
Efri deild: 92. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5573 í B-deild Alþingistíðinda. (4832)

329. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Frsm. (Valdimar Indriðason):

Herra forseti. Nokkur orð vegna ummæla síðasta ræðumanns varðandi þá reglugerð sem væntanlega verður sett um þessar lánveitingar.

Ég tek undir með honum að það á alls ekki að liggja á slíkum reglugerðum við n. þingsins. En í þessu tilviki, ég man ekki betur, kom það fram, þegar fulltrúar Fiskveiðasjóðs voru hjá okkur á fundinum, að þeir voru með undir höndum drög að slíkri reglugerð, en vildu ekki lofa okkur að sjá hana. Aftur á móti hafði ég þá strax samband við sjútvrh. og bað hann um þessa reglugerð. Hann sagði mér að hann væri ekki búinn að fara yfir hana sjálfur, en það væri sjálfsagt að láta okkur hafa þau drög sem hann hefði undir höndum. Þau fengum við á fundi s. l. mánudag og fórum yfir þau án þess að hafa leyfi til fjölföldunar. Það var því ekki legið á gögnum af hans hálfu. Ég held að fulltrúar Fiskveiðasjóðs hafi litið þannig á að þeir gætu ekki lagt reglugerðina fram fyrr en búið væri að fjalla um hana af þeirra yfirmanni, hæstv. sjútvrh. (Gripið fram í.) Já, en hann leyfði þetta strax þó hann væri ekki búinn að fara yfir hana sem slíka. — Ég vildi það kæmi fram þannig að ekki ylli misskilningi.