09.05.1984
Efri deild: 92. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5575 í B-deild Alþingistíðinda. (4836)

Um þingsköp

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Ég vil að það liggi alveg skýrt fyrir að sem 1. flm. þessa frv. óska ég eftir því að málið verði afgreitt frá n. og komi til atkvgr. hér í Ed. Ég tel það ekki málinu til framdráttar að vísa því til ríkisstj. Ég tel nauðsynlegt að málið fái að koma til atkvæða hér í Ed. og beini þeirri eindregnu ósk til formanns landbn. þessarar hv. deildar, hv. 11.. landsk. þm.