09.05.1984
Neðri deild: 82. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5577 í B-deild Alþingistíðinda. (4844)
82. mál, Ríkismat sjávarafurða
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Skv. 14. gr. þessara laga er það afurðadeild Ríkismatsins sem veitir það leyfi sem hér um ræðir. Það er mjög óeðlilegt að annar aðili svipti leyfi heldur en sá sem veitir leyfið. Ég tel það með öllu ótækt. Að öðru leyti sé ég enga ástæðu til þess að þetta ákvæði um að rn. svipti menn vinnsluleyfi sé inni í þessum lögum og tel það að ýmsu leyti varasamt. Ég segi því nei.