08.11.1983
Sameinað þing: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 640 í B-deild Alþingistíðinda. (485)
390. mál, lokun járnblendiverksmiðjunnar
Fyrirspyrjandi (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Á þskj. sem merkt er 56. mál hef ég leyft mér að bera fram fsp. til hæstv. iðnrh. hvað varðar athugun á lokun Járnblendiverksmiðjunnar í tilefni af blaðaskrifum sem urðu í sumar og viðtölum við hæstv. forsrh. á þeim tíma. Spurningin er mjög einföld:
„Hvað líður könnun á því að loka Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga samkv. yfirlýsingum forsrh.?"