09.05.1984
Neðri deild: 83. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5594 í B-deild Alþingistíðinda. (4888)
341. mál, Íslensk málnefnd
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Eins og fram kemur í athugasemdum við þetta frv., sem hér liggur fyrir, er það flutt í því skyni að treysta með lagasetningu grundvöll þeirrar starfsemi sem Íslensk málnefnd hefur með höndum. Til nefndarinnar var stofnað fyrir nærfellt 20 árum og er upphaf hennar og þróunarsaga nokkuð ítarlega rakin í athugasemdum sem frv. fylgja. Nefndin var stofnuð með bréfi menntmrh. Gylfa Þ. Gíslasonar 30. júlí 1964 og reglurnar um starfsemi hennar voru settar árið eftir.
Fyrstu árin voru umsvif nefndarinnar fremur lítil, enda fjárveitingar takmarkaðar. Árið 1979 var framlag til málnefndarinnar í fjárlögum 250 þús. gkr. og í fjárlögum fyrir 1980 var fjárveitingin hækkuð í 2 millj. gkr. Hæstv. forseti þessarar deildar, sem þá var menntmrh., beitti sér fyrir endurskipulagningu málnefndarinnar og enn auknum fjárframlögum og fjárveitingin var hækkuð 1981 í 35 þús nýkr. Jafnframt var formanni nefndarinnar, Baldri Jónssyni dósent, veitt lausn undan kennsluskyldu í heimspekideild Háskóla Íslands um fjögurra ára skeið frá 1. jan. 1981 að telja. Þá var m. a. haft í huga, að honum gæfist meira svigrúm til að sinna starfsemi tengdri Íslenskri málnefnd jafnframt rannsóknarstörfum sínum. Fjárveitingar til málnefndarinnar hafa síðan farið hækkandi og í fjárlögum 1984 eru nefndinni ættaðar 511 þús. kr. til starfsemi sinnar. Með þessum hætti hafa starfsskilyrði nefndarinnar gerbreyst, enda hefur starf hennar farið mjög vaxandi.
Ég leyfi mér, herra forseti, að lesa þennan litla kafla upp úr athugasemdum við frv. til þess að gera hv. þdm. betur grein fyrir því hvaða mál hér er á ferðinni, en núna er um það fjallað að staðfesta þessa starfsemi með löggjöf. Að undirbúningi þessa frv. hafa staðið formaður málnefndar, Baldur Jónsson dósent, dr. Guðmundur Magnússon háskólarektor og fyrir hönd menntmrn. Runólfur Þórarinsson deildarstjóri. Frv. er samið í anda þess sem málnefnd hefur unnið að á undanförnum árum og liggur hér fyrir.
Frá upphafi hefur nefndinni verið ætlað tvíþætt hlutverk, annars vegar að sinna starfi að söfnun og útgáfu nýyrða en starfsemi á því sviði hafði um alllangt skeið farið fram á vegum menntmrn. með atbeina orðabókarnefndar Háskólans, en hins vegar að veita leiðbeiningar og ráðgjöf um málfarsleg efni, bæði almenningi og stofnunum svipað og hliðstæðar nefndir annars staðar á Norðurlöndum. Þannig var ljóst að málnefndinni var og er ætlað mikilvægt verkefni í þeirri viðleitni sem beinist að ræktun, vernd og eflingu íslenskrar tungu. Lengi framan af starfsferli nefndarinnar var henni þó sniðinn svo þröngur fjárhagsstakkur að ekki gat orðið um umfangsmikið starf að ræða. Það er fyrst hin síðustu ár að veruleg breyting hefur á orðið að þessu leyti, enda hefur þess séð stað í umsvifum nefndarinnar. Svo sem vænta mátti hefur komið skýrt í ljós að mikil þörf er á ráðgjafarstofnun af þessu tagi. M. a. hefur tekist gott samstarf við aðila sem vinna að nýyrðamálum á ýmsum sérfræðisviðum, en þar er við mikil og vaxandi verkefni að fást sem miklu skiptir fyrir framtíðarþróun tungunnar að vel takist að leysa. Á þessu hefur sérstök þörf orðið á síðustu árum vegna örrar þróunar í tæknimálefnum og mikið og óeigingjarnt starf hefur verið unnið af málnefndum og orðanefndum ýmissa starfsgreina.
M. ö. o., verkefni málnefndar er fyrst og fremst þjónustustarfsemi þar sem aðrar stofnanir á vegum heimspekideildar Háskólans hafa fremur með höndum rannsóknarverkefni.
Með hliðsjón af því að Íslensk málnefnd hefur þannig fengið aukin fjárráð til starfsemi sinnar og allt virðist benda til vaxandi verkefna fram undan þótti orðið tímabært að fá starfi nefndarinnar örugga fótfestu í löggjöf og því er þetta frv. fram komið. Vert er að leggja áherslu á að frv. byggir í meginatriðum á þeim stefnumiðum sem fylgt hefur verið um hlutverk og starf Íslenskrar málnefndar, m. a. skv. reglum þeim sem um nefndina hafa gilt. Um vöxt og viðgang starfseminnar mun að sjálfsögðu fara mjög eftir því hvernig fjárveitingum verður hagað hverju sinni.
Í athugasemdum, sem frv. fylgja, er gerð allrækileg grein fyrir helstu atriðum frv. og einstakar greinar þess skýrðar. Ég leyfi mér að vísa til þeirra skýringa og tel ekki ástæðu til að orðlengja miklu frekar um einstök efnisatriði. Að tvennu vil ég þó víkja sem mönnum kynni að lítt athuguðu máli að þykja horfa til mikilla breytinga sem e. t. v. væru kostnaðarsamar. Þetta finnst mönnum e. t. v. þegar þeir líta á málið í einni svipan en svo er raunar ekki þegar betur er að gáð.
Í 1. gr. segir að Íslensk málnefnd sé málræktar- og málverndarstofnun og reki Íslenska málstöð í samvinnu við Háskóla Íslands. Með orðinu „Íslensk málstöð“ er ekki verið að búa til neitt nýtt. Það er einungis nafn á skrifstofu málnefndar svipað og hún hefur starfað. Raunar kemur í 4. gr. nánar fram hvað við er átt með Íslenskri málstöð. Þar er um að tefla skrifstofu nefndarinnar, eins og það er orðað, og miðstöð þeirrar starfsemi sem hún hefur með höndum. Þetta er einnig til nokkurs samræmis við erlendar málnefndir sem Íslensk málnefnd hefur haft mikið samstarf við. Þær reka málstöðvar í sínum löndum. Það er því ljóst að ekki er verið að stofna til spánýrrar stofnunar sem þegar í stað krefjist stórfelldrar aukningar á starfsliði, síður en svo. Í sömu gr., þ. e. 4. gr., segir að rekstur Íslenskrar málstöðvar annist sérstakur forstöðumaður er jafnframt skuli vera prófessor í heimspekideild með takmarkaðri kennsluskyldu.
Eins og skýrt er í athugasemdum við greinina er hér ekki um að ræða mjög mikla breytingu heldur í raun staðfestingu á núverandi skipan að því leyti að formaður Íslenskrar málnefndar er kennari við Háskóla Íslands og hefur um rúmlega þriggja ára skeið haft lausn frá kennsluskyldu til að sinna málefnum nefndarinnar jafnframt störfum að máltölvunarrannsóknum. Þess er þó að geta að núverandi formaður er dósent við háskólann en skv. frv. mundi maður í prófessorsembætti tengjast málnefndinni. Er það í raun eini kostnaðaraukinn sem augljóslega mundi sjálfkrafa leiða af samþykkt frv., þ. e. mismunur á launum dósents og prófessors, en sá munur nemur um 54 þús. kr. á ári miðað við kauplag 1. apríl 1984.
Það er tekið fram í frv., eins og raunar sjálfsagt er, að um veitingu þess starfs fer eftir sömu reglum sem um önnur prófessorsembætti. Með þeirri skipun sem hér er gert ráð fyrir eru og efld tengsl Íslenskrar málnefndar við Háskóla Íslands svo sem eðlilegt má telja miðað við verkefni nefndarinnar.
Ég hygg, herra forseti, að ekki þurfi að hafa öllu fleiri orð um þetta frv. Ég vildi aðeins láta koma fram að hér er í raun um lögfestingu að ræða á starfsemi sem þegar fer fram og er til mikils gagns fyrir íslenska tungu og þróun hennar og á vonandi eftir að verða það um langa framtíð.
Ég legg til, herra forseti, að þessu máli verði vísað til 2. umr. og hv. menntmn. þessarar deildar.