08.11.1983
Sameinað þing: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 645 í B-deild Alþingistíðinda. (491)

395. mál, staðgreiðslukerfi skatta

Fyrirspyrjandi (Kolbrún Jónsdóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir greinargóð svör, en harma að engin áform skuli vera uppi í hæstv. ríkisstj. um að taka þetta mál upp að nýju eða ræða það frekar því að ég tel að enginn vandi sé að koma slíku kerfi á hér á Íslandi, eins og er í okkar nágrannalöndum, og held að það vanti aðeins herslumuninn og pólitískan vilja vanti líka, eins og hæstv. ráðh. reyndar kom að að væri ekki fyrir hendi. — En ég vil endurtaka þakkir til hæstv. fjmrh.