10.05.1984
Sameinað þing: 89. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5627 í B-deild Alþingistíðinda. (4928)

295. mál, útvarp frá Alþingi

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég vil aðeins taka fram vegna ummæla sem hér hafa fallið að ég get ekki tekið undir þau sjónarmið að smáir þingflokkar njóti ekki fulls réttar í ríkisfjölmiðlum borið saman við hina stærri flokka. Hér verða útvarpsumr. á þriðjudag og þeim er svo háttað að þingflokkur með þrjá þm. á bak við sig hefur þar sama rétt til ræðutíma og þingflokkur með 23 þm. Jafnframt er það svo, ef fulltrúar stjórnar og stjórnarandstöðu skiptast á skoðunum í sjónvarpsþáttum sem oft eru haldnir, að stjórnarandstaða hefur þar fjóra fulltrúa en meiri hluti á Alþingi tvo og síðan er til þess ætlast að ræðutími hvers fulltrúa sé hinn sami. Umtalsverður meiri hl. þm. með umtalsvert meira fylgi á bak við sig hefur því hálfu minni ræðutíma en minni hl.

Ég held að ég verði líka að láta í ljós þá skoðun mína gagnvart t. d. Kvennalista að hann hefur átt svo greiðan aðgang inn í ríkisfjölmiðla með sín sjónarmið að það er mikið vanþakklæti ef verið er að gera lítið úr því og raunar ekki sæmandi. Um hitt þýðir svo ekki að tala hér á Alþingi, þó þau tvö blöð, og raunar þrjú nú, sem ekki eru í eigu stjórnmálaflokka leggi sitt mat á það frá hverju þau segja í umr. hér á Alþingi. Ég held að það sé öldungis ljóst um blað eins og Dagblaðið-Vísi að það hefur ekki flokksleg tengsl. Sömuleiðis er ljóst um Morgunblaðið að það er mjög óháð í sínum fréttaflutningi, borið saman við það sem áður var og borið saman við blöð eins og Alþýðublaðið eða Þjóðviljann svo að dæmi sé tekið. Ég ætla að þegar menn taka svo til orða að öll dagblöð hér á landi séu undir einhverjum flokksaga séu menn hreinlega að stytta sér leið að einhverri niðurstöðu sem menn vilja fá og hirða þá lítið um hitt hvort sú niðurstaða sé nákvæmlega rétt eða á skynsamlegum rökum byggð.

Herra forseti. Ég er ekki að fara fram á að taka þann rétt af þm. sem þeim ber skv. þingsköpum. Ég hygg að stjórnarandstöðunni veiti ekki af tvöfalt meiri tíma til að reyna að koma því litla sem hún hefur að flytja til skila. Það hefur líka sýnt sig í þeim þáttum sem orðið hafa og umr. að hún stendur æ frekar höllum fæti því meir sem í henni heyrist.