10.05.1984
Sameinað þing: 89. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5635 í B-deild Alþingistíðinda. (4934)

Umræður utan dagskrár

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Hv. 5. þm. Austurl. kvartaði undan því að upplýsingar hefðu ekki verið tiltækar um gang mála í sambandi við samninga við Alusuisse vegna ÍSALs. Ég vil taka það fram, og það má honum vera vel kunnugt um, að ég hef ávallt verið reiðubúinn til að sitja fyrir svörum um þetta mál, eftir því sem því hefur skilað fram, sem hefur verið hægar en menn bundu vonir við. Hv. þm. segir að menn hafi beðið með óþreyju og fullir áhuga á framgangi þessa máls. En þegar hann á lokadögum þings biður um upplýsingar um stöðuna þá sýnist mér nú áhuginn vera misjafn. Það vakti athygli mína að aðeins einn varaþm. Alþb. sá ástæðu til þess að hlýða á ræðu hv. þm. Og það er ég nærri viss um að ef aðalmaðurinn hefði verið nær, þá hefði hann — (Gripið fram í.) Ég tók vel eftir því. Það má nú sjá minna grand í mat sínum en hv. 7. þm. Reykv., hvort hann er nær eður ei. Ég gáði að því og svo var ekki. Hv. 3. þm. Reykv. hefur látið fylgjast með því fyrir sig hvenær ræðunni var að ljúka, því þá gekk hann í salinn og fyrr ekki. En þetta er nú meira í gamni sagt.

Það hefur aldrei verið hik á mér varðandi bráðabirgðasamkomulagið sem undirritað var 23. sept. s. l. við Alusuisse. Ég tók hins vegar fram, sem öllum er augljóst, að við vorum ekki komnir á leiðarenda í þessu máli. Við náðum stórkostlegum árangri, við komumst út úr sjálfheldu hv. 5. þm. Austurl., sem hann bjó sér til í sinni ráðherratíð í þessum málum, og náðum stórkostlegum árangri í hækkun orkuverðsins um tæp 50%. Það var enginn vafi á því að þetta var tímamótasamningur að þessu leyti. En hver neitar því að við þurfum að ná lengra í orkuverðsmálinu? Hver neitar því að þarna voru óleyst viðfangsefni og gömul deilumál? Og til þess að taka af allan vafa strax liggur það fyrir, og það veit hv. þm., að kröfur okkar nú, mínar eða ríkisstj. skulum við segja, eru óbreyttar um að endurákvörðun framleiðslugjaldsins verði staðfest. Ég skal nú víkja að þessu máli og að fsp. hv. 5. þm. Austurl. í þeirri röð sem hann bar þær fram.

Ég hafði lofað því að leyfa Alþingi að fylgjast með og við það hef ég verið reiðubúinn að standa hvenær sem eftir væri kallað. Það hafa kannske ekki verið eins bráðar fréttir af þessu fram að færa og menn hefðu e. t. v. vonað, en þó hefur ekkert gengið úr böndunum í þessu falli. Hv. þm. veit það jafnvel og ég og hafði raunar af því mikla raun að þessi mál eru öll þyngri í vöfum en menn skyldu ætla við fyrstu kynni, að ég ekki tali um þá raun sem hann hafði af því að koma þeim öllum í sjálfheldu og komast hvorki lönd né strönd í þeim.

Fyrst víkur hann að skattadeilunni. Sé ég þá ástæðu til að fara nokkuð nákvæmlega yfir stöðu málsins og rifja upp forsöguna, enda þótt frá henni væri skilmerkilega skýrt í umr. sem urðu hér á hinu háa Alþingi einum þrisvar sinnum fyrir áramót og síðast, eins og hv. þm. gat um, 8. des. Það er kannske best að ég fari örfáum orðum um skipan dómnefndanna. Það er rangt að hér hafi verið sérhannaður farvegur af Alusuisse um að finna skjótvirkari aðferð til að komast til botns í þessum deilumálum. Það lá alveg ljóst fyrir að ég gat aldrei sætt mig við neitt, neina niðurstöðu í þessum málum nema þá sem gæti talist dómur eða dómsígildi. Það vil ég leggja áherslu á. Það kom aldrei til greina, þótt eftir væri leitað, að ég væri til viðræðna um samninga um þessi deiluatriði. Og það var ekki síður mín ósk að fundin yrði skjótvirkari leið við að ná til botns í þessum vandamálum heldur en fyrir lá, að okkur hafði verið stefnt fyrir gerðardóm í New York skv. ákvæðum aðalsamnings, en gera mátti ráð fyrir því að sá dómur gengi e. t. v. eftir tvö eða þrjú ár. Það er alveg ljóst mál að örðugleikum er bundið að ná endanlegu samkomulagi við Alusuisse fyrr en fyrir liggja niðurstöður í því máli. Og það varðar alveg sérstaklega ákvæði sem við þurfum að ná fram í skattgreiðslunum. Þetta veit ég að hv. þm. skilur. Þess vegna varð það að ráði að ákveðið var að skipa þrjár dómnefndir. Tvær hafa þegar tekið til starfa en samkvæmt samningnum skal hin þriðja taka til starfa þegar hinar tvær hafa lokið málafærslu sinni. Aðallögfræðingar af hálfu Íslands í rekstri málanna eru í fyrsta lagi Ragnar Aðalsteinsson, en hann hafði áður verið skipaður aðaltalsmaður ríkisstj. af forvera mínum í sama máli gegn Alusuisse, og með honum eru skipaðir af Íslands hálfu Eiríkur Tómasson hæstaréttarlögmaður og Halldór J. Kristjánsson deildarlögfræðingur í iðnrn.

Fyrsta dómnefndin fjallar um verðlagningu á aðföngum til ÍSALs 1976–1980, um meint yfirverð á anóðum, rafskautunum og súráli. Verkefni hennar er tvíþætt. Í fyrsta lagi að skila bindandi álitsgerð um þá aðferð sem viðhafa ber til að ákveða verð á hráefnum með tilliti til skattskyldu, og þá nógu greinilega til að unnt sé að framkvæma útreikninga á framleiðslugjaldinu 1976– 1980. Í öðru lagi að skila bindandi álitsgerð um rétt íslenskra yfirvalda til að endurákvarða framleiðslugjald ÍSALs afturvirkt, þ. e. fyrir árin 1976–1979, en þau ár fór ekki fram árleg endurskoðun eins og var árið 1980 og síðar. Allt þetta hygg ég að hafi komið skýrlega fram í umr. á hinu háa Alþingi á haustdögum.

Í byrjun októbermánaðar 1983 skipaði Alusuisse í gerðardóm þennan Don Silver, málaflutningsmann í New York. Stuttu síðar skipaði ég Stanley Surrey, prófessor í skattarétti við lagadeild Harvard-háskólans í dómnefndina. Hinir tilnefndu gerðardómsmenn skipuðu í byrjun desember 1983, það dróst nokkuð úr hömlu, Philip F. Wineberg, hinn virtasta skattasérfræðing í Kanada, formann nefndarinnar. En ákvæði var um að formaður hennar yrði af öðru þjóðerni en hinir tveir. Dómnefnd þessi kom saman til fyrsta fundar þann 9. des. 1983 og óskaði eftir frumgreinargerðum frá málsaðilum fyrir lok janúar 1984. Í framhaldi af því fór fyrsta réttarhald dómnefndarinnar fram í New York hinn 20. febr. 1984. Í því réttarhaldi var lagður grundvöllur að rekstri málsins og teknar ákvarðanir um réttarfarsatriði. Þess skal getið að dómnefndin hefur samkvæmt grein 1.5 í bráðabirgðasamkomulaginu úrskurðarvald um valdsvið sitt og skal ákveða eigin málsmeðferð með hliðsjón af almennum grundvallarreglum um meðferð einkamála.

Meðal réttarfarsákvarðana sem dómnefndin úrskurðaði í réttarhaldinu 20. febr. 1984 var að réttarhöld hennar skyldu vera lokuð. Af hálfu ríkisstj. hafði verið gerð krafa um opna málsmeðferð, sérstaklega með tilliti til þess að ríkisstjórn átti í hlut. Alusuisse hafði gert kröfu um leynd réttarhaldanna sérstaklega vegna viðskiptaleyndar á þeim upplýsingum sem fyrir dómnefndina yrðu lagðar. Vegna úrskurðar um leynd málsmeðferðar verður ekki að sinni hægt að gera frekari grein fyrir framvindu starfs þessarar dómnefndar. Ég vona að menn skilji það.

Þess skal þó getið að vikuna 24. 27. apríl voru viðamikil réttarhöld í málinu í New York. Að mati lögfræðinga ríkisstj. í málinu má búast við að niðurstöður liggi fyrir í ágúst eða september komi ekki upp óvænt atvik sem tefji málsmeðferðina. Starf dómnefndar þessarar mun því taka nokkuð lengri tíma en þá sex mánuði sem gert var ráð fyrir í bráðabirgðasamningunum. Hafa ber í huga í þessu sambandi að mat á réttri verðlagningu á hráefnum til ÍSALs er flókið og vandasamt úrlausnarefni. Þá er þess einnig að geta að alþjóðlegur gerðardómur, bæði vegna fjarlægðar milli landa og annarra atriða, er ávallt nokkuð seinvirkur.

Í öðru lagi vil ég rifja upp dómnefnd skattasérfræðinga skv. gr. 1.2 í bráðabirgðasamkomulaginu. Dómnefnd þessi var skipuð til að skila áliti um eftirgreind atriði: Í fyrsta lagi afskriftir á gengistöpum, í öðru lagi afskriftartíma fjárfestingar í mengunarvarnarbúnaði, um varasjóðsgreiðslu og um beitingu viðbótarálags á vanframtalda tekjustofna ÍSALs. Dómnefndin var skipuð í október 1983. Af hálfu ríkisstj. var Ólafur Nilsson, lögg. endurskoðandi, skipaður í dómnefndina en af hálfu Alusuisse Sigurður Stefánsson lögg. endurskoðandi. Hinir tilnefndu dómnefndarmenn skipuðu með samkomulagi Guðmund Skaftason hæstaréttarlögmann og lögg. endurskoðanda, formann dómnefndarinnar. Alli er þetta skv. ákvæðum bráðabirgðasamkomulagsins. Dómnefndin efndi til fyrstu réttarhalda í Reykjavík hinn 20. des. 1983. Báðir aðilar hafa lagt fram aðalgreinargerðir í málinu og munu svargreinargerðir verða lagðar fram innan tíðar. Málið verður munnlega flutt í júnímánuði og að mati lögmanna ríkisstj. í málinu má gera ráð fyrir að úrskurður dómnefndar þessarar liggi fyrir í lok júnímánaðar.

Þá er það í þriðja lagi dómnefnd endurskoðendanna skv. gr. 1.6 í bráðabirgðasamkomutaginu. Þriðja dómnefndin verður skipuð þegar hinar tvær fyrrnefndu hafa lokið störfum, eins og ég gat um áðan. Dómnefnd þessi verður skipuð ríkisendurskoðanda og endurskoðendum ÍSALs, sem fara þó með eitt atkvæði þótt fleiri séu saman, og formanni sem aðilar koma sér saman um. Verkefni þessarar dómnefndar verður að framkvæma endanlegan útreikning á framleiðslugjaldi á grundvelli álitsgerða fyrrnefndu dómnefndanna. Verkefni hennar verður því einfaldara en verkefni fyrrnefndu dómnefndanna og að mati lögfræðinga ríkisstj. eru líkur á að hún geti skilað áliti á fáeinum vikum.

Ég vil sérstaklega árétta að kröfugerð ríkisstj. fyrir dómnefndunum er að endurákvörðun á framleiðslugjaldi ÍSALs, sem gerð var í tíð fyrri ríkisstj., verði staðfest sem réttmæt.

Til að einfalda og flýta málsmeðferðinni og m. a. með það fyrir augum að meginhluti ágreinings þessa yrði leystur af inniendum aðilum var samið um að skipta álitaefnum þeim sem til úrlausnar voru milli þriggja dómnefnda. Þetta breytir þó í engu grundvallarkröfugerð í málinu um að endurákvörðun framleiðslu gjalds ÍSALs fyrir árin 1976–1979 og 1980 verði staðfest.

Að mati lögmanna ríkisstj. í máli þessu, þeirra Ragnars Aðalsteinssonar hæstaréttarlögmanns, Eiríks Tómassonar hæstaréttarlögmanns og Halldórs J. Kristjánssonar deildarlögfræðings, sem eins og fyrr greinir fara með málið fyrir dómnefndunum þremur og annast framkvæmd fyrsta kafla bráðabirgðasamningsins af hálfu ríkisstj., má búast við lokaniðurstöðu í málunum í septembermánuði n. k.

Dómnefndirnar munu skv. grein 1.5 í bráðabirgðasamningnum skila rökstuddum niðurstöðum og skulu gera grein fyrir forsendum að niðurstöðum sínum. Verður Alþingi að sjálfsögðu gerð grein fyrir niðurstöðum gerðardómsmáls þessa. Niðurstöður úr gerðardómsmeðferð þessari og forsendur úrskurðar hverrar dómnefndar um sig verða að sjálfsögðu opinberar, enda þótt úrskurðað hafi verið af fyrstu dómnefnd að málsmeðferð þar skyldi verða leynileg.

Þá skal ég að lokum geta þess í þessu sambandi að skv. gr. 1.3 í bráðabirgðasamningnum verða álitsgerðir þeirra dómnefnda sem um ræðir í gr. 1.1. og 1.2 í samningnum endanlegar og bindandi fyrir málsaðila eins og um væri að tefla úrskurð gerðardóms eins og hans er getið í aðalsamningi og/eða dóm fyrir dómstóli.

Það er álit aðalráðgjafa ríkisstj. í samningum um stóriðju, Hjartar Torfasonar, að engar óeðlilegar tafir hafi orðið á meðferð málsins og síst að það verði fremur kennt viðsemjanda okkar, Alusuisse, heldur en okkur, sem höfum talið ástæðu til að krefjast þess að ný og fleiri málsgögn yrðu lögð fram fyrir þann rétt sem aðalvandamálið liggur fyrir, fyrstu dómnefnd.

Þá spurði hv. 5. þm. Austurl. um hina tímabundnu raforkuverðshækkun sem skv. bráðabirgðasamkomulaginu á að vera uppsegjanleg frá og með 23. júní, þ. e. með þriggja mánaða fyrirvara níu mánuðum eftir undirskrift bráðabirgðasamkomulagsins. Frá því er að segja að ég geri mér vonir um að samkomulag náist um að hvorugur aðili hreyfi við því máli meðan reynir frekar á samningsgerð, og raunar er það vissa mín. Það er ekki rétt að sú viðbótarhækkun á raforkuverði hafi numið 117 millj. kr. á ári til Landsvirkjunar. Þetta er miklu hærri tala, var reiknuð fyrst út sem 136 millj. kr. en vegna breytingar á gengi dollars er hér um verulega miklu hærri tölu að tefla þótt ég hafi hana ekki handbæra.

Um stöðu samninganna er frá því að segja að þeim hefur seinkað, samningaviðræðunum sjálfum, og það er aðallega vegna veikinda formanns samninganefndar Alusuisse. Þess vegna hafa fallið niður fundir í mars og apríl en næstu samningafundir verða nú í maímánuði, hinn 24. og 25. maí. Þeir Alusuisse-menn töldu afar óþægilegt og erfitt um vik að skipta um formann samninganefndarinnar, sem hafði verið í samningaviðræðum frá upphafi, og hlutum við enda að fella okkur við þá niðurstöðu þeirra. En nú mun verða lögð mikil áhersla á samningaviðræðurnar og þá, eins og vikið var að af hálfu hv. þm., koma auðvitað fyrst og fremst til umr. raforkuverð og stækkun álverksmiðjunnar í Straumsvík og aðrir þættir sem að þeim atriðum lúta.

Það er rétt sem hv. þm. sagði að ég gat þess, sem rétt er, að tæpt hefur verið á álitlegum tölum í sambandi við raforkuverðið, álitlegum a. m. k. miðað við það sem við áður höfum komist í kynni við. Þar er ég að tala fyrst og fremst um viðbót við verksmiðjuna. En ég er þeirrar skoðunar að halda beri samningaviðræðum um orkuverð til stækkunarinnar sér, blanda því ekki saman við orkuverð til gömlu verksmiðjunnar. En samferða þessu fara auðvitað fram viðræður um hækkun verðsins.

Þess er að geta að menn bundu vonir við það að skömmu eftir að bráðabirgðasamningurinn var gerður mundi álverð á markaðinum í London hækka þannig að orkuverðið næði hinum umsömdu 10 millum. Þetta hefur ekki orðið. Þrátt fyrir allar spár þeirra sem gerst til þekktu eða þóttust þekkja hefur þetta farið á aðra leið. Álverð hefur farið lækkandi, verulega lækkandi undanfarna mánuði. Enn spá menn að síðari hluta ársins muni verulega úr rætast. Ekkert skal ég um það segja.

Á þessu stigi málsins verður hv. þm. að skilja að ég get ekki kveðið fastar að orði um orkuverð en ég geri nú. Við höfum áður talað um og menn eru nokkuð sammála um það, að framleiðslukostnaðarverð raforkunnar hjá nýjum raforkuverum sé 18 til 20 mill. Þetta hafa menn t. a. m. talað um í sambandi við kísilmálmverksmiðjuna og út frá 18 millum hefur alltaf verið gengið í sambandi við útreikninga á arðsemi þeirrar verksmiðju. Ég álít að við hljótum að hafa það sem viðmiðun að við getum ekki samið um sölu á orku okkar á lægra verði en framleiðslukostnaði nemur. En ég bendi á að þar verða menn kannske að líta til lengri tíma og ekki aðeins að miða við það sem gildir á hverjum tíma. Ég nefni þetta sérstaklega í sambandi við kísilmálmverksmiðjuna á Reyðarfirði. Það virðist blasa við að nokkrir greiðsluerfiðleikar verði hjá þeirri verksmiðju fyrstu tvö árin og e. t. v. lengur, og yfirleitt eru útreikningar vegna rekstrar slíkra verksmiðja með þeim hætti að gert er ráð fyrir halla og rekstrarerfiðleikum fyrstu árin, kannske 3–4–5 árin. Til þessa gætu menn e. t. v. tekið tillit ef þeir fá þá fast undir fætur um nægjanlega hækkun síðar, sem mundi vega upp á móti þeim tilhliðrunum sem gerðar eru í byrjun. Á þetta vil ég leggja áherslu, enda auðskilið öllum sem á hlýða væntanlega.

Stækkun ÍSALs er auðvitað háð því hvaða orkuverð fæst fram. Við getum ekki fallist á stækkun ÍSALs nema við náum fram samningum um viðunandi orkuverð. Við getum það ekki heldur nema við náum fram reglum sem við getum sætt okkur við um skattgreiðsluna. Og nú verð ég enn að víkja mér undan að ræða skattfyrirkomulagið nánar vegna þess að ég held að niðurstöður fyrir fyrstu dómnefnd í skattamálunum hlytu mjög að styrkja aðstöðu okkar í þeim málum. Ég vænti þess að niðurstöður fyrir fyrstu dómnefnd í skattamálunum muni styrkja okkur. Og það hlýtur hv. 5. þm. Austurl. líka að binda vonir við. En ég held að við séum reynslunni ríkari af ákvæðum um skattgreiðslur af framleiðslugjaldi og með öðrum hætti af þessum iðnaði og að við þurfum að gera þau ákvæði öll skýrari og einfaldari í framkvæmd en við höfum dæmi um til að mynda af álsamningunum upprunalegu.

Enn var vikið að ákvæðunum um framsal hlutabréfa Alusuisse til þriðja aðila. Ég geri nú ráð fyrir því að þegar þar að kemur, að leitað verður eftir því við hið háa Alþingi að lögum verði breytt sem heimila Alusuisse að eignast meðeiganda að álverinu, þá muni hv. 5. þm. Austurl. og félagar hans fagna því til að mynda ef við gætum hugsað okkur að norskur aðili kæmi til skjalanna. En ég hef ekki séð ástæðu til að bera fram frv. til þessarar lagabreytingar af því að mál hafa dregist meira úr hömlu en ég ætlaði. Það er rétt að ég hef þetta frv. tilbúið og ég hafði í huga að leggja það fram öðru hvoru megin við áramót. Það var mín ætlan. En þegar leið á árið og ófyrirséðar tafir urðu á framgangi málsins þá dró ég þetta við mig og vil gjarnan gera það í síðustu lög. Ég vona líka að hv. þm. og hið háa Alþingi skilji það. Ég gerði viðsemjendum okkar viðvart um þetta og þeir gerðu ekki athugasemd við að hinkrað yrði við um framvindu þessa máls og lagabreytinguna. Ég hygg að það ætti að nægja að þetta mál, ef samningar yfirleitt takast við Alusuisse, yrði lagt fyrir hið háa Alþingi á haustdögum.

Ef við á næstunni náum samkomulagi um stækkun álversins við Straumsvík geri ég ráð fyrir því, og það hefur enda komið fram, að viðsemjendur okkar þurfi nokkurn tíma til að leita sér að — getum við kallað það — nýjum sameignaraðila. En fjármögnunarfyrirtæki eða bankar munu hafa sett Alusuisse það skilyrði að þeir fengju til leiks í þessu sameignaraðila fyrir allt að helmingi fyrirtækisins og það höfum við samþykkt fyrir okkar leyti. Og ég þykist nú vita að hv. fyrirspyrjandi sé í raun og veru ekkert sérstaklega óþolinmóður að bíða eftir að fá að samþykkja þessa lagabreytingu.

Ég vonast til að ég hafi vikið að þeim þáttum sem hv. þm. fjallaði um í fsp. sínum. Ef mér hefur orðið á að fella þar eitthvað undan er það ekki viljandi gert. Ég er og hef ávallt verið reiðubúinn til þess að sitja fyrir svörum um þessi mál, en ég þarf ekkert að ítreka það að einstöku atriði í samningsgerðinni geta ekki útlagst hér á hinu háa Alþingi meðan þann veg stendur í stönginni sem nú gerir í sambandi við samningaviðræðurnar við Alusuisse.

Ég tek afar nærri mér að leyna hið háa Alþingi nokkrum sköpuðum hrærandi hlut sem í mínum verkahring er. En ég þarf ekki, eins og ég segi, að fara fleiri orðum um nauðsyn þess eða öllu heldur, þær ástæður sem knýja mann til á vissu stigi máls að draga við sig að rekja allan gang mála og alla þætti þess, því að það gæti ella spillt mjög hagsmunum okkar í samningaviðræðunum.