08.11.1983
Sameinað þing: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í B-deild Alþingistíðinda. (495)
396. mál, lækkun tolla af tækjabúnaði til sjúkrahúsa
Fyrirspyrjandi (Kolbrún Jónsdóttir):
Herra forseti. Á þskj. 71 leyfi ég mér að spyrja hæstv. fjmrh. um lækkun tolla af tækjabúnaði til sjúkrahúsa o. fl.:
„Hyggst fjmrh. beita sér fyrir því að lækka eða afnema tolla, vörugjald og söluskatt af:
a) tækjabúnaði til sjúkrahúsa og dvalarheimila. þar með talið sjúkrarúma,
b) nauðsynlegum rekstrarvörum til lækningar- og hjúkrunarstarfa?"
Það vekur mann til umhugsunar þegar verið er að fella niður aðflutningsgjöld af t.d. gervigrasi á knattspyrnuvelli og söluskatt af aðgöngumiðum að fjölleikasýningum erlendra aðila sem ferðuðust hér um landið s.l. sumar og sama má segja um aðgöngumiða að tækjum í tívolí sem var sett upp í Reykjavík s.l. sumar, hvort ekki sé rétt að endurskoða álögur á tækjabúnað til sjúkrahúsa og dvalarheimila og nauðsynlegra rekstrarvara til lækningar- og hjúkrunarstarfa. Nægir að nefna að sjúkrarúm hækka um 100% frá hafnarbakka að sjúkrahúsi eða dvalarheimili. En flestar af þessum stofnunum eru reknar að stærstum hluta af ríkissjóði. Er því ekki litið að marka þær tölur sem upp eru gefnar um framlög ríkissjóðs til tækjakaupa, ef helmingurinn rennur til baka í ríkissjóð? Ég vil endilega undirstrika þessi atriði, þar sem núna er verið að skerða framlög til heilbrigðismála í landinu með nýju fjárlagafrv., og vísa því þessari spurningu til hæstv. fjmrh.