08.11.1983
Sameinað þing: 15. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 647 í B-deild Alþingistíðinda. (497)

396. mál, lækkun tolla af tækjabúnaði til sjúkrahúsa

Fyrirspyrjandi (Kolbrún Jónsdóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svör hans, sem ég tel alls ekki nægjanleg því að það er hægt að teygja þessa endurskoðun í fjöldamörg ár í viðbót. Ég tel ekki koma nógu skýrt fram hvort hann telji að rétt væri að endurskoða a.m.k. nauðsynlegustu vörur til sjúkrahúsa. T. d. má nefna sjúkrarúm. Við vitum að á dvalarheimilum víða um land liggja gamalmenni á venjulegum svefnbekkjum, svo að erfitt er um hjúkrun.

Ég hvet hæstv. fjmrh. og ríkisstj. til að endurskoða þessi málefni.

Okkur ber virkilega að þakka öllum þeim mörgu félögum sem staðið hafa að söfnunum til hjálpar öldruðum og sjúkum, og það er víða. Ef þeirrar hjálpar hefði ekki notið við væri illa komið fyrir slíkum stofnunum.