10.05.1984
Neðri deild: 85. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5697 í B-deild Alþingistíðinda. (5009)

354. mál, landflutningasjóður

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Félag vörubifreiðaeigenda á flutningaleiðum sem heitir Landvari, skrifar samgn. Nd. bréf og sendir með frv. um breytingu á lögum um Landflutningasjóð. Undir þetta bréf skrifar formaður félagsins, Aðalgeir Sigurgeirsson, og framkvæmdastjóri þess, Stefán Pálsson lögfræðingur. Í þessu bréfi kemur fram að undirritaðir og Hilmar Jónsson sparisjóðsstjóri, sem er formaður Landflutningasjóðs, hafi rætt þetta mál við Ólaf Steinar Valdimarsson í samgrn. og samkomulag hafi orðið um að óska þess að samgn. flytti þetta frv. Ég hef rætt þetta við hæstv. samgrh. og það er einnig í samráði við hann sem nefndin flytur þetta mál.

Þetta er mjög einfalt. Eingöngu er verið að breyta 4. gr. laganna þess efnis að 1% gjald af starfsemi þeirra aðila, sem eiga og reka bifreiðar til skipulagsbundinna vöruflutninga um landið, 1% gjald af aðstöðugjaldsstofni, falli niður. Komið hefur í ljós þegar farið var að innheimta þetta gjald að það kemur mjög mismunandi niður á þessum mönnum. Sumir reka bara þessa vörubíla, aðrir eru með afgreiðslur, þriðju með verslun og það er ótrúlega mikill munur á þessari greiðslu þó að flutningarnir séu í svipuðum mæli. Það eru sem sagt allir sammála því sem um þetta fjalla, bæði stjórn sjóðsins og aðrir sem hafa athugað þetta mál, að tímabært sé að breyta þessu ákvæði.

Þetta er efnisatriðið. Síðan er lagt til að lög nr. 14 frá 1980 falli úr gildi, en þau varða einmitt þessa gjaldtöku. Samgn. hefur rætt þetta mál á sínum fundi og standa allir að því að flytja þetta. Enn fremur hef ég rætt þetta við formann samgn. Ed. og hann var sammála því og sagðist mundi reyna að greiða fyrir þessu máli. Ég sé ekki ástæðu til þess að lesa hér upp grg., þetta er svo einfalt mál. En ef menn vilja er hægt að svara hér spurningum. Þar sem klukkan er nú að verða tólf sé ég ekki ástæðu til þess að eyða tíma í það. Nefndin óskar ekki eftir því að fá þetta mál aftur þar sem hún hefur fjallað um málið og flytur það og ég legg því til að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og óska mjög eftir því, þar sem þetta er 1. umr. að þessu verði flýtt í deildinni.