11.05.1984
Efri deild: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5707 í B-deild Alþingistíðinda. (5028)

305. mál, umboðsþóknun vegna gjaldeyrisviðskipta

Frsm. minni hl. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ríkisstj, hefur lagt hér fram tvö frv. sem bæði stefna í þá átt að lækka skattgreiðslu banka og annarra lánastofnana. Í þessu frv. sem nú er til umr. eru lækkaðar greiðslur gjaldeyrisbanka í ríkissjóð af umboðsþóknun og gengismun og nemur lækkunin 1/3 á þessu ári og veldur tekjumissi fyrir ríkissjóð sem svarar um 30 millj. kr. á árinu. Aftur á móti verður tekjumissirinn 60 millj. kr. á næsta ári og 90 millj. kr. á árinu 1986 þegar gjaldið verður endanlega fellt niður. Samtals nemur því tekjuskerðing ríkissjóðs af þessari ástæðu 180 millj. kr.

Sjaldnast eru eyru fjölmiðla einhvers staðar nærri þegar fundir í Ed. eru haldnir og héðan berst því miður ósköp lítið af upplýsingum úr umr., en það væri fróðlegt fyrir fjölmiðla, að ég tali nú ekki um ráðh., að átta sig á því að með þessum tveimur frumvörpum, sem verið er að afgreiða hér, er verið að skerða tekjur ríkissjóðs um hvorki meira né minna en 360 millj. kr. Ég held ég vilji biðja hæstv. forseta að hlutast til um það að fjmrh. komi hingað. (Forseti: Eða viðskrh. kannske, ef hann væri til staðar? Leitarflokkar eru lagðir af stað.) Ég hef nefnilega ekki séð gerða neina grein fyrir því í þskj. af hálfu ríkisstj. og talsmanna hennar hversu mikið tekjutap hér er um að ræða fyrir ríkissjóð. En þetta frv. sem hér er til umr. mun þýða tekjutap ríkissjóðs eins og ég nefndi áðan upp á 180 millj. kr. og frv. sem lagt er fram samhliða því um skattskyldu innlánsstofnana breytingu á þeim lögum, hefur í för með sér tekjutap fyrir ríkissjóð á sama tímabili upp á 178 millj. kr. eða samtals hvorki meir,a né minna en 348 millj. á þremur árum. Hér er verið að spila út úr ríkissjóði algerlega að óþörfu og án nokkurrar sjáanlegrar ástæðu upphæð sem nemur 120 millj. kr. á hverju þessara ára að meðaltali, eða samtals 360 millj. kr.

Við erum búnir að vera að rökræða og hafa áhyggjur af fjárhag ríkissjóðs og það hefur verið eitt mesta stórmálið sem hér hefur verið til umr. á undanförnum vikum. Þar vantar stórar fjárhæðir inn í til að endar náist saman. Eftir basl mikið tókst ríkisstj. ekki að leysa þann vanda heldur skildi eftir sig gat í rekstri ríkissjóðs sem verður að fylla með erlendum lánum upp á rétt um 1 milljarð kr. (Gripið fram í.) Gatið, sem eftir verður í rekstri ríkissjóðs á þessu ári og ekki er fyllt annaðhvort með niðurskurði á útgjöldum eða nýjum tekjum, nemur um 1 milljarði kr. Öll er þessi fjárhæð tekin að láni auk viðbótarfjáröflunar upp á 1 milljarð. Erlendu lántökurnar eru því um 2 milljarðar eins og kunnugt er. En á sama tíma og þetta gerist ætlar hæstv. fjmrh. að keyra hér í gegn tvö frumvörp um bankamál sem þýða tekjumissi fyrir ríkissjóð upp á 120 millj. að meðaltali á hverju ári næstu þrjú árin. Er vit í þessu? Nei, þetta er svo sannarlega glórulaust ævintýri.

Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. fjmrh. að því í fullri hreinskilni og með fullri vinsemd hvort ekki hafi komið til greina að endurskoða áformin um lækkun skatta á banka eftir að í ljós kom hversu bágur fjárhagur ríkissjóðs er í raun og veru. Við skulum gera okkur fyllilega grein fyrir því að fjárhagur ríkissjóðs verður ekki bara bágur á þessu ári. Úr því að ekki tókst með nýrri tekjuöflun eða niðurskurði á útgjöldum að ná saman endum á þessu ári mun það sjálfsagt ekki heldur takast á næsta ári. Hér er greinilega verið að stækka gatið enn frekar, vísvitandi er stefnt í það að halli á rekstri ríkissjóðs verði enn meiri en orðið er. Það eru engar smáupphæðir sem hér eru á ferðinni.

Hæstv. fjmrh. beitti sér strax í upphafi fyrir því að ákveðnir tekjustofnar ríkissjóðs voru felldir niður. Það er ein aðalástæðan fyrir því að endar náðu ekki saman á s. l. ári og á þessu ári. En hér er enn haldið áfram á sömu braut. Þessi einkennilega gjafmildi hæstv. fjmrh. og ríkisstj. hlýtur að vekja verulega athygli í ljósi fjárhagserfiðleika ríkissjóðs um þessar mundir. Ég vil spyrja hæstv. ráðh.: Er ekki hugsanlegt, bæði vegna fjárhags ríkissjóðs á þessu ári og þeirra vandræða sem hæstv. fjmrh. er í og vegna þeirra fjmrh. sem við taka, vegna þeirra ára sem framundan eru, að þessi ákvörðun, sem nú er verið að taka í sambandi við bankaskattana, verði endurskoðuð. Það er algerlega ábyrgðarlaus ákvörðun sem hér er tekin og ég trúi ekki öðru en að hæstv. fjmrh. sé reiðubúinn til þess að endurskoða þetta mál og það verði að flokkast undir óaðgætni að verið er að keyra þetta mál nú áfram á síðustu dögum þingsins þrátt fyrir það hvernig ástatt er.

Ég vil jafnframt leyfa mér að spyrja hæstv. fjmrh.: Gerði hann sér fyllilega grein fyrir hvað upphæðin er há? Hann hefur kannske haldið að þetta væru einhverjar smásummur sem hér væru á ferðinni. Ég heyrði það þegar málið var rætt í hv. fjh.- og viðskn. að ekki höfðu allir nm. áttað sig á því hversu stórar fjárhæðir hér voru á ferðinni. Mér er nær að halda að hæstv. fjmrh. hafi kannske aldrei fyllilega gert sér grein fyrir því að hann er að láta hér úr ríkissjóði 120 millj. kr. á ári í þrjú ár.

Ég vildi sem sagt vinsamlega skora á hæstv. fjmrh. að endurskoða þessa ákvörðun og um leið svara því hvort ekki hafi komið til greina að hætta við þessi áform og þá með hvaða rökum ákveðið var að keyra þetta mál áfram til endanlegrar afgreiðslu.