11.05.1984
Efri deild: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5721 í B-deild Alþingistíðinda. (5040)
306. mál, skattskylda innlánsstofnana
Frsm. minni hl. (Ragnar Arnalds):
Virðulegi forseti. Málið snýst alls ekki um það hvort ég hefði þessar upplýsingar undir höndum eða vissi þessar tölur. Málið snerist um hitt, hvort ráðh. hefði þessar tölur undir höndum, hvort hann gerði sér grein fyrir hversu stórar upphæðir væru hér á ferðinni. (Gripið fram í.) Og það kom líka á daginn að hann gerði sér alls ekki grein fyrir því og gat alls ekki nefnt neina tölu í því sambandi, hversu stórar upphæðir væru hér á ferðinni. Málið snýst sem sagt og hefur allan tímann snúist um það að mig uggir að þm. stjórnarflokkanna og ráðh. hafi alls ekki gert sér grein fyrir því hvað hann er að gera, hvað þeir eru að valda ríkissjóði miklum tekjumissi. Málið snýst um það.