11.05.1984
Efri deild: 94. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5721 í B-deild Alþingistíðinda. (5041)

306. mál, skattskylda innlánsstofnana

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Hv. 3. þm. Norðurl. v. heldur að hann geti hengt hatt sinn á það að ráðh. treysti sér ekki til að fara með tölur og vilji heldur bíða og koma þeim á framfæri skriflega en eiga það á hættu að fara með rangar tölur. Að það sé einhver ástæða til þess að fylgja eftir einhverjum flótta. Hvers lags vinnubrögð eru þetta og það af fyrrv. ráðh.? Það er enginn hér á neinum flótta og það er ekkert við það að athuga þó að menn vilji ekki fara með tölur, sem þeir hafa ekki við höndina, af þeirri einföldu ástæðu að þeir vilja heldur hafa þær réttar þegar þeir gefa þær en eftir minni sem gætu hugsanlega verið rangar.