11.05.1984
Neðri deild: 86. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5747 í B-deild Alþingistíðinda. (5077)

340. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Ég hafði hugsað mér í upphafi máls míns að beina nokkrum spurningum til hæstv. forsrh. og þá einkum og sér í lagi vegna þess að heilbr.- og trmrh. er fjarverandi. Mér leikur hugur á að vita hvort hæstv. forsrh. mundi geta gengið í salinn. (Forseti: Hæstv. forsrh. mun verða hér við.) Já takk.

(Forseti: Hæstv. forsrh. er væntanlegur.) Já. Ég hélt að það mundi verða til hægðarauka að hann væri viðstaddur og ég doka þá við andartak.

Herra forseti. Eins og ég gat um var ætlun mín að beina máli mínu að hluta til til hæstv. forsrh. í fjarveru hæstv. heilbrmrh. Ég mun hafa þann hátt á ræðu minni að gera þau atriði sem einkum varða spurningar að umtalsefni í upphafi máls míns.

Í 15. gr. frv. hefur verið gerð breyting á því hvenær elli- og örorkulífeyrisþegar eigi rétt á greiðslu vegna tannlækninga. Ég bar fram þá fsp. í n. hvort þessi breyting mundi með nokkrum hætti skerða rétt einhverra sem nú nytu þarna réttar. Það var talið að svo væri ekki. Ég fór fram á að fá um þetta yfirlýsingu frá hæstv. heilbr.- og trmrh. en sú yfirlýsing hefur ekki borist enn þá. Vil ég nú í fyrsta lagi óska eftir því við hæstv. forsrh. að hann kanni þetta mál gaumgæfilega og gefi yfirlýsingu um það, en í annan stað vil ég beina því til deildarinnar hvort ekki væri ástæða til að taka af öll tvímæli.

Það er í fyrsta lagi að út úr greininni eins og hún var áður hefur verið fellt að bætur allt að 100% nái til langsjúks fólks á stofnununum og til þeirra sem vangefnir eru. Það kann að vera tilviljun að þetta hafi verið fellt út, en ég vil a. m. k. að menn viti vissu sína um hvort hugmyndin sé að réttur þessa fólks sé sá sami og hann hefur verið, þ. e. að þessar greiðslur séu greiddar 100% .

Í annan stað hefur sú breyting verið gerð að umorða greinina að því er varðar elli- og örorkulífeyrisþega að öðru leyti. Áður var þetta orðað svo, að elli- og örorkulífeyrisþegar fengju 50% en þó væri heimild til tryggingaráðs að hækka þetta í 75% eða jafnvel 100% í þeim tilvikum sem ég taldi upp áðan. Í greininni eins og hún er núna er þetta svo orðað, að þeir elli- og örorkulífeyrisþegar sem njóta a. m. k. hálfrar tekjutryggingar skuli fá endurgreitt fyrir 75% kostnaðar. Ég vek athygli á því, að það er fyrir þá elli- og örorkulífeyrisþega sem njóta a. m. k. hálfrar tekjutryggingar. Ég stóð upphaflega í þeirri meiningu að þarna væri kannske um einhverja endurbót að ræða, en eftir upplýsingum frá Tryggingastofnun, sem ég hef fengið í dag, hefur framkvæmdin á núverandi lagaákvæði verið sú, að ef menn nytu einhverrar tekjutryggingar, þ. e. væru með tekjutrygginguna á bilinu fáein hundruð króna og upp í hálfa tekjutryggingu, væri endurgreitt 75%. Þessar upplýsingar eru býsna alvarlegar vegna þess að samkv. þeim er með þeirri breytingu sem lögð er til í frv. beinlínis verið að ganga á hlut þeirra elli- og örorkulífeyrisþega sem eru með einhverja tekjutryggingu, en minni en hálfa.

Ég trúi því ekki að ætlun þingsins sé að láta þetta gerast, en mér sýnist að Tryggingastofnun og tryggingaráð hafi ekki möguleika, eins og lagagreinin er orðuð nú, til þess að koma til móts við þetta fólk með sama hætti og áður vegna þess að í greininni, eins og hún er orðuð, er það skýrt tekið fram að þeir skuli njóta a. m. k. hálfrar tekjutryggingar.

Í þriðja lagi vil ég vekja athygli á því varðandi þessa grein, sem ég hef stundum gert að umtalsefni áður, að það er tilhneiging til þess í þessu þjóðfélagi að fara öðruvísi með gamalt fólk, sem nýtur tekjutryggingar frá almannatryggingum, en annað gamalt fólk, sem nýtur lífeyrissjóðsgreiðslna að hluta til, en getur verið með nákvæmlega sömu tekjur. Við vitum að tekjutryggingin er fyrst og fremst vegna þeirra sem ekki eru í lífeyrissjóðum. En menn geta fengið greiðslur úr lífeyrissjóði sem gefa þeim ráðstöfunartekjur sem eru nákvæmlega hinar sömu og sá hefur sem tekjutrygginguna hefur. Hvers vegna er verið að gera þarna upp á milli? Hvers vegna á sá sem er með tekjutryggingu að njóta frekari hlunninda en sá sem hefur borgað í lífeyrissjóð, en hefur samt ekki upp úr því samtals neitt hærri tekjur en þeir sem tekjutryggingarinnar njóta?

Ég tel að í þessum atriðum eigi það sama yfir báða hópana að ganga. Það kemur fram mismunun í útsvarsálagningu gagnvart þessum tveimur hópum. Það er ekki á dagskrá hérna núna, en í þessari grein, eins og hún er orðuð og eins og þetta hefur verið framkvæmt, hefur komið fram mismunun milli þessara tveggja hópa gamals fólks, og ég tel að við eigum að afnema hana. Það er ekkert auðveldara en að miða þessa tryggingu við ákveðið tekjumark, og þá getur það verið það tekjumark sem tekjutryggingin er og að allir án tillits til þess hvernig þeir fái þessar tekjur eða fái ekki meiri tekjur en þetta, fái að njóta almannatrygginganna óháð því hvort menn fá tekjurnar í gegnum tekjutrygginguna sem slíka eða í gegnum lífeyrissjóð, sem þeir hafa reyndar lagt á sig að greiða í áður og maður getur ekki séð hvers vegna þeir ættu að vera réttlægri þess vegna.

Ég hefði gjarnan viljað, herra forseti, heyra viðhorf ríkisstj. líka til þessa efnis. Ég vona að hæstv. forsrh. heyri mál mitt því að ég tel að í þessum punkti felist mjög verulegt misrétti sem ekki eigi að vera við lýði í okkar þjóðfélagi.

Ég hef áður gert það að umtalsefni, herra forseti, að hækkunin á tannlæknakostnaði hjá ýmsum hópum í þjóðfélaginu væri mjög tilfinnanlegur skv. því sem hér er gert ráð fyrir að gera. Það kom fram í máli hv. þm. Guðmundar Einarssonar að meðaltölin segja ekki nema litinn hluta sögunnar í þessu efni. Ég tók mig reyndar til líka og reyndi að áætla hvað tannrétting hefði kostað hjá ungri konu sem ég þekki til. Þar var ekki um læknisfræðilega aðgerð að ræða, heldur af öðru tagi, nefnilega útlitslagfæringu ef má orða það svo. Fram kom að þetta væri tveggja ára aðgerð. Hún hefði þurft að fara á u. þ. b. sex vikna fresti til tannréttarans og greiða í hvert skipti á bilinu 500 til 1500 kr. Auk þess var mjög einföld upphafsaðgerð sem var alldýr og mun kosta á bilinu 5–10 þús. kr. Heildarkostnaður er þá 20–25 þús. kr.

Þetta er kannske rétt að menn skoði í samhengi við að það hefur borist bréf frá Tryggingastofnun ríkisins um hversu margir í ákveðnum aldursflokkum hafi nýtt sér tannréttingar og hver meðaltalsupphæðin er. Meðaltalsupphæðin er breytileg eftir aldursflokkum og fjöldin líka, en það kemur í ljós að það eru um 4100 einstaklingar á aldrinum 6–15 ára sem fara í tannréttingar, það eru um 1150 í aldursflokknum 16 ára og það eru um 700 í aldursflokknum 17–18 ára. Umtalsverður fjöldi ungs fólks fer því í tannréttingar. Meðalkostnaður fyrir 16 ára og eldri er u. þ. b. 10 þús. kr. skv. þessu yfirliti og virðist þá tiltölulega lágur, miðað við þá áætlun sem ég gerði og nefndi áðan varðandi ekki flókna aðgerð. Menn sjá af þessu að hér er um að ræða umtalsverða upphæð fyrir þá unglinga sem hér um ræðir — unglinga sem nýlega sluppu með skrekkinn þegar gera átti þá annars flokks vinnuafl og borga þeim lægra kaup en öðrum.

Það kemur fram í þessu yfirliti frá Tryggingastofnun að tíundi hver einstaklingur á aldrinum 6–15 ár fer í tannréttingar árlega. Ef hver tannrétting tekur tvö ár þýðir þetta væntanlega að fimmti hver einstaklingur á aldrinum 6–15 ára fer í tannréttingar. Og að því er varðar einstaklinga sem eru 16 ára er þetta hlutfall þannig að fjórði hver einstaklingur sem er 16 ára fer í tannréttingar á hverju ári. Af þessu geta menn ráðið að hér er um umtalsverðar upphæðir að ræða. Það má líka geta þess að fram kemur í þessu að þriðji hver einstaklingur sem er 16 ára að aldri fer í aðrar tannaðgerðir. Þær aðgerðir sem hér er verið að grípa til af hálfu ríkisstj. snerta því mjög margar fjölskyldur í landinu.

Ég vildi vekja athygli á þessum upplýsingum og inna hæstv. forsrh. eftir því hvort ríkisstj. sjái ekki ástæðu til þess að fengnum þessu upplýsingum að endurskoða líka þetta ákvæði.

Í þriðja lagi vil ég gera að umtalsefni þá hækkun sem fyrirhuguð er á læknisþjónustu, á rannsóknarþjónustu og á lyfjum. Það var upplýst í n. að hér væri um að ræða hækkunaráform á bilinu 200–300%. Það er í sjálfu sér mjög athyglisvert að ríkisstj. kunni einungis að hækka gjöld á fólkið í hundruðum prósenta á sama tíma og því er gert að fá kauphækkanir sem eru 3 og 5%. Heildarupphæðin, sem hér um ræðir og gert er ráð fyrir að spara, er 125 millj. „Spara“ verður að segja innan gæsalappa vegna þess að hér er ekki um neinn raunverulegan sparnað í þjóðfélaginu að ræða, heldur einungis að skattleggja sjúklingana, þá sem þurfa að fara til læknis, þá sem þurfa að fá röntgenmynd, þá sem þurfa að fá rannsókn, hvort heldur það er blóðsýni eða annað, og þá sem þurfa á lyfjum að halda.

Þessi skattlagning upp á 125 millj. kr. vekur þeim mun meiri furðu sem við höfum horft upp á að áður hafði ríkisstj. gert tilraun til að höggva í þennan sama knérunn og búa til sérstakan sjúklingaskatt á þá sem legðust inn á sjúkrahús.

Nú kemur að spurningu minni til hæstv. forsrh., sem ég vona að menn geti þá skilað til hans ef hann heyrir ekki mál mitt, og hún er hvort ekki sé hugmyndin að taka sérstakt tillit til aðstæðna í þessu sambandi ef þessi aðgerð á virkilega fram að ganga. Mér hefur t. d. borist bréf frá hópi sem ég man ekki eftir að hafi verið áður gerður að umtalsefni hér í þinginu. Það er bréf frá áhugafólki um þarfir sjúkra barna. Þessi hópur mótmælir eindregið framkomnum till. um hækkun á göngudeildargjaldi úr 100 í 300 kr. svo og annarri hækkun á hluta sjúklinga í læknis- og lyfjakostnaði. Bent er á að foreldrar veikra barna beri nú þegar verulegar fjárhagsbyrgðar vegna barna sem reglulega þurfa að koma á göngudeildir til eftirlits og meðferðar. Í bréfinu segir: „En nefnd hækkun mun fyrst og fremst bitna á tekjulágum barnafjölskyldum og þeim foreldrum sem þurfa að koma reglulega með börn sín til eftirlits og meðferðar eins og áður var bent á. En oft þurfa foreldrar að leggja í mikinn ferðakostnað“, segir í bréfinu, „og dvalar- og uppihaldskostnað til þess að börnin fái nauðsynlega heilbrigðisþjónustu, auk verulegs tekjutaps vegna frátafa frá vinnu.“

Þess vegna spyr ég hæstv. forsrh. hvort ríkisstj. hafi hugað að því hve gífurleg byrði sú hækkun sem hér um ræðir geti orðið fyrir þetta fólk og hvort ekki sé hugmyndin að koma neitt til móts við það í þeirri feikna gjaldtöku sem hér er fyrirhuguð, en hækkun á henni er um 200–300%.

Því má reyna að bæta við að í nefndu bréfi er bent á að göngudeildarþjónustan sé nauðsynleg til að reyna að draga úr innlögnum barna á sjúkrahús eins mikið og kostur er. Og hér komum við einmitt að einum punkti þessa máls. Með því að hækka greiðslurnar, sem menn eiga að greiða fyrir göngudeildarþjónustu, fyrir sérfræðiþjónustu, fyrir lyf og fyrir rannsóknir og fyrir röntgen, er verið að stuðla að því að þeim mun fleiri leggist inn á sjúkrahús vegna þess að greiðslubyrðin af því að leggja það á sig að vera heima og njóta göngudeildarþjónustu verður óheyrilega há meðan kostur er á að sá kostnaður verði ekki ef menn eru lagðir inn á sjúkrahús. Hér er sem sagt þrýst á sjúkrahúsakerfið í landinu. Þetta kemur öndvert á þá stefnu sem ríkisstj. hafði á upphafsdögum sínum.

Í fjórða lagi, að því er varðar sératriði í þessu frv., vil ég gera sérstaklega að umtalsefni þann þátt sem snýr að landbúnaðarmálum. Það er gert ráð fyrir 67% aukningu útflutningsbóta frá því sem áður hafði verið gert ráð fyrir. Það er ekkert smáræði. Útflutningsbæturnar verða á þessu ári samtals um 500 millj. kr. og tel ég þá með þær greiðslur sem menn verða að standa undir af lánum sem voru tekin til þess að greiða útflutningsbætur á árum áður. Í þessu frv. birtast hins vegar engin áform um að draga úr í þessum efnum. Ég held að það sé meira en nauðsynlegt að menn fóti sig á því að setja sér ákveðin markmið í þessum efnum og draga úr útflutningsbótaþörfinni stig af stigi — og ekki bara þörfinni heldur setja sér ákveðin mörk sem menn verði að lifa eftir á hverjum tíma. Ég hefði gjarnan viljað, í framhaldi af yfirlýsingum hæstv. forsrh. norður á Akureyri fyrir ekki löngu, heyra hverjar horfur hann telur að séu í þessum efnum.

Í öðru lagi hlýt ég að spyrja að því er varðar landbúnaðarþáttinn hvort það sé virkilega hugmynd ríkisstj. að með því einu að taka hluta af kjarnfóðurgjaldinu til að greiða með útflutningi, til að mæta útflutningsbótagreiðslum, eigi að hækka verðlag á landbúnaðarafurðum í landinu. (Gripið fram í.) Við höfum búið við kjarnfóðurgjald. Nú áformar ríkisstj. að taka hluta af þessu kjarnfóðurgjaldi og leggja það á sem sérstakt gjald á vegum ríkissjóðs og láta það renna til þess að taka þátt í kostnaðinum við útflutningsbætur. Við þessa einföldu aðgerð, skv. upplýsingum sem komu fram í n. frá fulltrúum bændasamtakanna, á það að gerast að landbúnaðarvöruverð í landinu hækki sem þessu nemur. Mér finnst furðulegt ef svo einföld aðgerð sem þessi á að verða til þess að hækka landbúnaðarvöruverð í landinu, þegar ekki er um að ræða nein viðbótarútgjöld fyrir bændurna. Kjarnfóðurgjaldið í heild getur verið það sama. Ég vil beina þeirri spurningu til forsrh. hvort ríkissj. ætli virkilega að láta þetta fram ganga með þessum hætti eða hvort hún muni ekki sporna hér við fótum og sjá til þess að svona áform verði ekki látin fram ganga.

Um frv. þetta í heild er skemmst frá því að segja að í því felst uppgjöf ríkisstj. á því að leysa vanda efnahagsmála. Þetta frv. einkennist fyrst og fremst af gífurlegum erlendum lántökum. Ég gat þess í ræðu minni við 1. umr. að menn skyldu ekki blekkja sig á því að hér væri verið að tala um 2100 millj. kr. eingöngu í viðbót í erlendum lántökum, heldur yrðu menn að horfa á hversu mikið væri hugmyndin að auka erlendar lántökur í heild sinni á árinu, bæði með þessum áformum og þeim áformum sem áður hafa verið tíunduð vegna lánsfjáráætlunar og f;árlaga og í sambandi við afgreiðslu þeirra. Þá stendur bókað í bókum ríkisstj. að aukning á erlendum lánum bara skv. þessum áformum er 3500 millj. kr. En vel að merkja: Í áætluninni er gert ráð fyrir að lán til atvinnufyrirtækja verði 1000 millj. kr. Þessar upphæðir hafa ævinlega verið of lágt áætlaðar og reynst yfirleitt 50–100% hærri.

Enn er þessi áætlun sem sagt mjög lág. Þess vegna leitaði ég eftir upplýsingum um það í n., og þær yrðu gefnar af hálfu langlánanefndar, hvort uppi væru nokkur áform af hálfu ríkisstj. eða hefðu komið fram um að hafa sérstakan hemil á þessum lántökum. Því var svarað til að engar sérstakar fyrirskipanir eða reglur hefðu verið settar um að hafa hemil á þessum lántökum, hvorki af hálfu ríkisstj. né þess ráðh. sem fer með þessi mál. Þá var líka upplýst að á fyrstu fjórum mánuðum ársins, 1/3 hluta ársins, er þegar búið að nota 2/3 hluta af þeirri upphæð sem áætluð var í lán vegna véla og tækja. Sú upphæð var áformuð 210 millj. kr. yfir árið í heild, en það er þegar búið að nota yfir 2/3 hluta hennar eða 147 millj. kr. þegar rúmir fjórir mánuðir eru liðnir af árinu. Þetta bendir auðvitað til þess að þessi upphæð stefni í mun hærri tölu.

Þá eru veitt lán á vegum langlánanefndar til skipakaupa og flugvélakaupa. Þegar lánsfjárlög og lánsfjáráætlun voru hér til umfjöllunar var það tíundað í fjh.- og viðskn. hvaða skip og hvaða flugvélakaup væri um að ræða í þessu sambandi. Ef þau áform standa óbreytt stefnum við þegar langt umfram þá áætlun sem hér hefur verið gerð um 1000 millj. kr. Ef þau áform hafa aukist kemur það enn til aukningar. Ef einhver áform hafa verið lögð á hilluna kemur það auðvitað til frádráttar. En af þeim lið sem regluleg hreyfing er á, og maður getur helst markað þá tilhneigingu sem er, er ljóst að hér stefnir yfir. Þess vegna segi ég það: Heildarviðbót í erlendum lántökum á árinu verður áreiðanlega um og yfir 4000 millj. kr. Þetta er sú upphæð sem menn eiga að horfa á.

Fyrir ekki langt löngu var ég á fundi þar sem mættir voru ýmsir fulltrúar frá löndum í Suður-Ameríku. Þeir sögðu mér af högum fólks þar í landi og því sem hefði verið að gerast hjá þeim. Mér þótti það athyglisvert vegna þess að þeir eru þjáningarbræður okkar í erlendri skuldasöfnun. Þar er nú svo komið að þeir hafa enga stjórn á efnahagsmálum sínum, heldur verða að hlíta fyrirmælum alþjóðapeningastofnana, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og bankanna, um hvernig þeir stjórna sínum efnahagsmálum. Og þeim eru sett þröng og ströng skilyrði. Með því að halda áfram að hlaða upp erlendum lánum, eins og hér er gert, erum við að koma okkur í þá hættu að hafa ekki sjálfir stjórn á peningamálum okkar, ekki sjálfir stjórn á efnahagsmálum okkar, heldur lenda í sams konar þrengingum og þessir þjáningabræður okkar í erlendri skuldasöfnun hafa lent í. Ég vara mjög eindregið við því að haldið verði áfram þeirri þróun að hlaða upp erlendum skuldum, eins og er meginefni þess frv. sem hér er til umfjöllunar. Þá verður auðvitað hlægilegt þegar maður horfir á þessar tölur og sér hvert barn í gegnum það þegar ríkisstj. hefur verið að myndast við að segja að hún mundi nú halda sig við 60% markið sem hlutfall af þjóðartekjum að því er erlendar skuldir varðar. Hér gerðist það furðulega, að þegar boltinn stefndi ekki í markið var markið bara flutt, enda heyrist mér nú hafa dregið úr því að fulltrúar ríkisstj. haldi þessu á loft öllu lengur.

Í sambandi við efnahagsmál heyrist það oft af hálfu ríkisstj., og kemur m. a. s. fram í ályktun frá Verslunarráði Íslands, að menn verði að standa vörð um það jafnvægi sem hafi náðst í íslenskum efnahagsmálum. Hvers konar jafnvægi eru menn að tala um? Það hefur ekkert jafnvægi náðst. Ég vil vekja athygli á því. Það er áframhaldandi erlend skuldasöfnun. Það er áframhaldandi viðskiptahalli. Það er áframhaldandi halli á ríkisbúskapnum. Það er ekki jafnvægi í ríkisbúskapnum. Það er ekki jafnvægi í viðskiptum við útlönd. Það er ekki jafnvægi að því er varðar lántökur okkar og greiðslur af erlendum lánum. Það er ekkert jafnvægi. Það eina sem ríkisstj. hefur áorkað er að rýra lífskjörin í landinu, en um leið að ná verðbólgunni niður eins og kunnugt er. En ef ekki er að gert felst í aðgerðum ríkisstj. sá dómur að hér skuli áfram vera léleg lífskjör. Sá dómur er rangur og þeim dómi verður að hnekkja. En honum verður ekki hnekkt af þessari ríkisstj. vegna þess að hér hafa engar kerfisbreytingar verið gerðar. Það er einungis með kerfisbreytingum sem er unnt að ná hér raunverulegum árangri. Þær kerfisbreytingar þurfa að gerast í atvinnumálum, í sjóðakerfinu, í ríkisbúskapnum og þær þurfa líka að varða viðhorfið til atvinnurekstrarins, viðhorfsbreytingu varðandi fyrirgreiðslupólitík og viðhorfsbreytingu gagnvart fjárfestingastefnu og stjórnkerfismálum. Einungis með þeim hætti er mögulegt að ná hér raunverulegum árangri að því er varðar það að bæta lífskjör, ná raunverulegu jafnvægi og ná raunverulegum árangri í efnahagsmálum.

Ég sagði í upphafi þessa hluta ræðu minnar að það væri ljóst af nýjustu ráðstöfunum ríkisstj. að hún hefði gjörsamlega gefist upp í efnahagsmálum. Það sést af því að það rigndi yfir fólk yfirlýsingum frá ráðherrum af ýmsu tagi og talsmönnum ríkisstj. um allt það sem gera ætti og nauðsyn þess að ekki yrði nú vandanum velt á undan sér eins og fyrri ríkisstj. hefðu gert: ekki yrðu auknar erlendar skuldir, ekki yrði halli á ríkisbúskapnum. Það stendur ekki steinn yfir steini í neinu þessu. Og að því er hvert málið á fætur öðru varðar, sem hefði varðað einhverjar kerfisbreytingar, einhverja tilhneigingu í þá átt, þá hefur það verið barið niður með harðri hendi. Nú seinast höfum við þurft að horfa upp á það í hverju málinu á fætur öðru hvernig Sjálfstfl. hefur þurft að beygja sig í duftið fyrir þessu ofurvaldi kerfisins sem ríkisstj. er. Þetta er það sem fólkið í landinu hefur séð og það er þess vegna sem ríkisstj. er nú rúin því trausti sem hún vissulega naut í upphafi.

Nú rignir yfir vantraustsálitum á ríkisstj. Meira að segja þeir aðilar sem voru harðastir talsmenn og stuðningsmenn ríkisstj. vita varla hvernig þeir eiga að taka til orða til að fordæma hvernig ríkisstj. hefur brugðist í efnahagsmálum. Nefni ég þar t. d. Verslunarráð Íslands sem hefur nú ekki kallað allt ömmu sína í því að lofa þessa ríkisstj. fram að þessu. Verslunarráð Íslands segir tæpitungulaust að lántakan sem ríkisstj. nú fyrirhugar sé engin lausn á fjárhagsvanda ríkissjóðs og að slíkt atferli sé ekki síst alvarlegt í ljósi þess að fólk og fyrirtæki hafi lagað útgjöld sín að samdrætti í efnahagslífinu. Sömu kröfur um aðhaldssemi verður að gera til ríkisvaldsins.

Hér er einmitt kjarni málsins. Ríkisstj. hefur hert að kaupmætti fólks og ríkisstj. hefur sagt við fólkið í landinu: þið verðið að búa við lakari lífskjör og minni kaupmátt. Ríkisstj. segir líka: Við verðum að draga úr útlánum til fólks og atvinnuvega. En að því er sjálfa okkur varðar, segja ráðherrarnir í ríkisstj. og stuðningsmenn hennar, ætlum við að leysa allt sem okkur varðar með því að taka erlend lán. Aðhaldssemin á ekki að ná til ríkisstj. Það er þetta sem er í grundvallaratriðum rangt og verður til þess að rýra ríkisstj. öllu trausti.

Reyndar er það líka svo að grg. með lagafrv: mælir gegn því sjálfu. Í grg. er beinlínis talað um að það sé sérstakur hættuvaldur hversu mikil þensla sé í peningamálum þjóðarinnar. Þegar þensla er í peningamálum þjóðarinnar velur ríkisstj. þá aðgerð sem síst af öllu verður til að draga úr þenslu, heldur einmitt eykur á hana, nefnilega að reka sjálfa sig með halla og taka erlend lán. Grg. ríkisstj. með þessu frv. mælir beinlínis gegn þeim aðgerðum sem gripið er til.

Herra forseti. Það er sorglegt upp á það að horfa að ríkisstj. skuli hafa gefist upp við öll þau markmið sem hún setti sér. Ég sagði hér í haust: Nú hefur fólkið í landinu lagt mikið á sig til að draga úr verðbólgunni. Nú verður ríkisstj. að sýna gott fordæmi sjálf. Nú verður ríkisstj. líka að sjá til þess að þessi árangur verði varanlegur. Það verður hún að gera með því að láta aðgerðirnar ná til fjölmargra þátta í þjóðfélaginu. Í öllu þessu hefur ríkisstj. brugðist. Eftir stendur einungis ein aðgerð: lækkun kaups og rýrnun lífskjara. Ekkert annað hefur verið gert og verðbólgan er hætt að fara niður á við. Nú er hún farin að síga upp á við. Ríkisstj. hefur fallið á prófinu. Það er ekki nema von að hún hafi rúið sig trausti þjóðarinnar.

Ég vil að lokum einungis segja að ömurlegri uppgjöf hefur ekki sést lengi.