11.05.1984
Neðri deild: 86. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5762 í B-deild Alþingistíðinda. (5080)

340. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Hv. 3. þm. Reykv. beindi til mín örfáum spurningum sem mér þykir sjálfsagt að reyna að svara. Fyrsta spurningin var sú, hvort það væri stefna ríkisstj. að skerða tekjustofna sveitarfélaga við fjárlagagerð fyrir árið 1985. Svarið er að sjálfsögðu nei. Það hefði verið hægt að segja ýmislegt um þetta. Ég vil aðeins geta þess hér að mér finnst vera dálítið furðulegur tónn í mörgum hv. þm. í sambandi við tekjustofna sveitarfélaga. Á s. l. hausti og fram eftir vetri var haldið uppi hér miklum og hörðum ádeilum á ríkisstj. fyrir það að skerða ekki tekjustofna sveitarfélaga og látið í það skína og jafnvel fullyrt að sveitarfélögin væru með miklar álögur á almenning í landinu, það væri skattpíning af hálfu sveitarfélaga. En núna er gjarnan talað í þeim tón að verið sé að níðast á sveitarfélögunum, nú séu tekjustofnar þeirra í hættu o. s. frv.

Ég ætla ekki að orðlengja um þessi mál. Ég vil aðeins segja það að þær ráðstafanir sem koma fram í því frv. sem hér er til umr., t. d, í sambandi við 7. gr., eru gerðar í fullu samráði við yfirstjórn sveitarfélaganna í landinu. Og vil ég geta þess að stjórn sambandsins taldi, miðað við það ástand sem var og miðað við það að sveitarfélögin urðu að taka einhvern þátt í þeim ráðstöfunum sem verið er að gera, að eins og á stóð væri þetta besta leiðin.

Ég vil í þessu sambandi taka sérstaklega fram að það er búið að taka upp alveg ný vinnubrögð í samskiptum við sveitarfélögin í landinu. Á það vil ég leggja þunga áherslu og einmitt af gefnu tilefni segja það hér. Það hefur verið opinberlega upplýst að ríkisstj. hefði gert bindandi samráðssáttmála við sveitarfélögin í landinu það er gert ráð fyrir að fara eftir honum í öllum atriðum. Búið er að halda fyrstu fundi með ríkisstj. og fulltrúum sveitarfélaganna og hefur skapast mjög góður grundvöllur til að ræða sameiginleg vandamál sveitarfélaganna, sameiginleg mál ríkis og sveitarfélaga og takast á við þau verkefni sem vissulega eru alltaf að koma upp í samskiptum þessara mikilvægu stjórnkerfa í okkar þjóðfélagi. Þess vegna ítreka ég: Í sambandi við þær ráðstafanir sem þetta frv. fjallar um er allt gert í samráði við sveitarfélögin og með þeirra vilja eins og best var hægt að ná samkomulagi um og í samráði við þau. Í sambandi við aðra spurningu, er hv. 3. þm. Reykv. spyr hvort ég telji það tryggt að til húsnæðismála fáist þeir peningar sem gert er ráð fyrir og tilkynnt er hér að muni koma í gegnum erlenda lántöku ef innienda fjáröflunin bregðist, vil ég taka fram: Að sjálfsögðu er það alveg ljóst að með því að setja þetta inn í lántökuheimild er búið að baktryggja það að þessir peningar verði til staðar í húsnæðislánakerfið og það er þegar farið að reyna á það. Þannig að svarið er já, hv. þm.

Þriðja spurningin var um það hvort útlánareglur Húsnæðisstofnunar væru tilbúnar fyrir árið 1984. Svarið er nei, hv. þm. Þær liggja ekki fyrir enn. En það er mjög stutt í að svo verði. Ég ætla ekki, herra forseti, að tefja hér dýrmætan tíma með frekari umr. um þessi mál. Mig hefði langað til að ræða málefni, sem margir hafa talað hér fjálglega um, það er tannlæknakostnað og allt þar að lútandi. Ég vil aðeins í leiðinni slá þeirri spurningu fram eða hugmynd til hv. þm. að það væri vissulega verðugt og mikið verkefni ef hv. þm. vildu sameinast um það að reyna að skyggnast í hvernig uppbygging tannlæknaþjónustunnar er í raun og veru og raunar ýmislegt fleira í okkar heilbrigðisþjónustu. Og vegna þess að hv. 3. þm. Reykv. var að ræða mjög mikið um þessi mál þá vil ég minna á það að hann hafði tækifæri til þess að hafa áhrif á þau sem heilbr.- og trmrh. Ég var einn af þeim þm. sem gerðu þá harða hríð að þessu kerfi. Ég lagði mikla vinnu í að kynna mér hvernig þessir samningar voru og bar fram rök fyrir því hér í sölum þingsins hvað hægt væri að gera til að gera þessa þjónustu ódýrari og skilvirkari en hún er. Það kom í ljós að þær reglur sem farið var eftir skv. gildandi samningum við Tannlæknafélag Íslands voru alls ófullnægjandi og hv. 3. þm. Reykv. sem heilbrmrh. steig þá skref í framhaldi af þessu til að reyna að koma fram vissum lagfæringum í þessum mikilvægu samningum sem gætu auðveldað eftirlit með þessari dýru þjónustu í landinu. En árangurinn varð auðvitað ekki nema á einn veg. Tannlæknar þoldu ekki þennan þrýsting og sögðu upp öllum samningum og þess vegna eru engir samningar til í landinu í dag við Tannlæknafélag Íslands. Þeir eru ekki til. Þannig er ástandið. Það er því eðlilegt að hægt sé að nefna mörg dæmi eins og hv. 4. landsk. þm. nefndi réttilega áðan. Ég hef enn þá áhrifameiri sögur um þann kostnað fram að færa sem ég hef vitneskju um heldur en hann skýrði frá.

Herra forseti. Ég hef ekki meira um þetta að segja. Ég vona að ég hafi svarað þeim spurningum sem til mín var beint.