11.05.1984
Neðri deild: 86. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5773 í B-deild Alþingistíðinda. (5085)
340. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir:
) Herra forseti. Ég vildi ganga úr skugga um að ég gengi ekki svo á hlut hv. 3. þm. Reykv. að hann yrði að hætta ræðu sinni í miðju kafi til þess að ég kæmist að að svara spurningum hans hér fyrr í dag. En svo mun nú ekki vera, heldur hitt, að hann mun hafa óskað eftir því að taka sér nokkra málhvíld, enda er það að vonum, og þá notum við tímann til þess að hann geti fengið svör við þeim spurningum sem hann bar fram til mín.
Fyrst var spurt um það, og raunar spurðu fleiri hv. þm. um það atriði, hvort ríkisstj. hygðist láta það gerast að námslán yrðu skert svo á hausti komanda að lánsfjárhlutfall færi ofan í 60%. Því er til að svara að talan 60%, sem menn nefna í þessu sambandi, er engan veginn einhlít. Í þessu sambandi eru margir þættir í reikningsdæminu sem ekki verður um fullvíst fyrr en einhvern tíma með haustinu: t. d. fjöldi námsmanna, í öðru lagi verðbólgustigið sem miðað er við í þessum útreikningi, í þriðja lagi hve mikið munu gefa ýmsar sparnaðarráðstafanir sem ætlunin er að gera með breytingu á úthlutunarreglum lánasjóðsins innan ramma laganna, m. ö. o. í nokkru aðhaldi eins og raunar allar stofnanir, sem hafa með höndum fé frá hinu opinbera, verða að gera. Ég hygg að þeir sem stjórna þessari stóru peningastofnun geri sér ljóst, eins og aðrir, að það er ekki síst hagsmunamál einmitt þeirra sem eru ungir að koma efnahagsmálum landsins og ríkisfjármálum á réttan kjöl, ef við ætlum ekki að stefna stjórn þessa þjóðfélags í það horf að hér verði um langan aldur atgervisflótti. Um það var orðið töluvert í tíð hv. síðustu ríkisstj. þegar efnahagsmál voru að koma hér öllu á kaldan klaka. Þess vegna þurfti aðgerða við. Mesta hættan sem blasir við íslenskum námsmönnum í dag er að þeir missi trú á íslensku þjóðfélagi, að það sé nokkurt vit í að búa í þjóðfélagi sem er ekki almennilega stjórnað. Þeir verða að sjá árangur erfiðis þeir hafa lokið námi.
Við skulum ekki halda að ungt fólk sé svo yfirborðslegt og einfalt að hægt sé að segja því að vandamálin leysist með því að leysa fjárþörf frá degi til dags. Auðvitað hefur hið unga fólk ekki síður áhyggjur af framtíð sinni og kannske meiri áhyggjur en margur þm. virðist hafa. Og þess vegna er það að hinn almenni námsmaður skilur hvað ríkisstj. er að gera með því að reyna að koma efnahagsmálum landsins á réttan kjöl, þótt svo að þeir sem stundum gefa yfirlýsingar í pólitískum tilgangi gefi þær meira til þess að beina þeim gegn stjórnvöldum landsins en raunverulega að menn geri sér ekki ljóst að í stærstu stofnunum sem ríkisfé er varið til er aðgerða þörf, alls staðar, ekki síður í Lánasjóði námsmanna en annars staðar. Það hefur gerst að með reglugerðarbreytingum hefur grundvelli útreiknings framfærsluþarfar námsmanna verið breytt vegna þess að laun hafa breyst í landinu. Þetta var ekki gert á síðasta ári á þann veg að á sama tíma og allir launþegar þurftu að taka á sig töluverðar skerðingar, miðað við að hafa fengið fullar verðlagsbætur á laun sín, það fengu þeir ekki, hélst full verðlagsbót inni í námslánum. Þetta er ljóst og ekki um deilt. Þess vegna verða tíðindi á borð við þau, sem við lásum um í blöðum núna nýlega, að ungt fólk sem ætlar að fara að sinna því starfi sem það hefur lært til hrekkur frá þegar það sér hver launin raunverulega eru. Ég dreg ekki dul á að mér þykja kennaralaun vera lág. Þegar ungur kennari ætlar að fara að sinna kennslustarfi kemst hann að raun um að þá hefur hann miklu lægri tekjur en hann hafði frá degi til dags þegar hann var í námi. Vissulega þarf hann að borga aftur þetta lán, en hann þurfti ekki að greiða skatta af framfærslueyri sínum þennan tíma, þ. e. þessu lánsfé. Hann þarf að greiða síðar af tekjum sínum, þannig að viðbrigðin verða ákaflega mikil. Við verðum að breyta til þannig að unnt sé að reka stofnun þessa þannig að hún gegni hlutverki sínu, þannig að hún jafni rétt manna til náms á þann veg að allir sem hæfileika hafa geti sinnt því þótt efnahagur sé þröngur, en ekki á þann veg að það þurfi að standa í stríði ár hvert út af þessum málum til að fá fjármagn til lána. Sjálft kerfið er þannig upp byggt að það eyðist af því vegna þess hvernig það hefur verið fjármagnað á undanförnum árum. Stór hluti af fjármagni lánasjóðsins hefur verið fenginn með lánum sem lánasjóðnum hefur verið gert að taka eða gert kleift að taka og það hleðst upp fjármagnskostnaður hjá lánasjóðnum, hann þarf að borga vexti, en hann fær hins vegar ekki greidda vexti af þeim lánum sem hann sjálfur lánar út. Það sjá allir að svona kerfi eyðist nema til komi sífellt styrkir frá hinu opinbera. Á meðan þessu er hagað svona, eins og verið hefur undanfarin ár, lengist ætíð í þau tímamörk sem menn hafa miðað við þegar menn dreymdi um að þetta yrði einhvern tíma kerfi sem færi að standa undir sér sjálft með afborgunum. Það lengist sífellt vegna þessa kostnaðar. Og sannleikurinn er sá, þrátt fyrir háværar yfirlýsingar á síðasta ári um skerðingar og slíkt, að aldrei munu málefni lánasjóðsins hafa staðið betur en þau gerðu þá. Menn tala hér gjarnan um að menn samþykki tilteknar fjárhæðir á fjárlögum, en svo sé bara alltaf útvegað það sem á vantar. Þetta er rétt eitt dæmið um að menn hér á hv. Alþingi eða þeir sem stjórnað hafa á undanförnum árum hafa ekki sjálfir tekið mark á fjárlögunum sem þeir voru að setja. Og það segir sig líka sjálft, að þetta hlýtur að leiða til óþarfnaðar fyrir öll landsins börn og líka fyrir þetta unga námsfólk sem við viljum styðja með því að hafa almennileg og traust námslán.
Á síðasta ári, í júnímánuði, óskaði stjórn LÍN eftir 182 millj. kr. aukafjárveitingu. Það fengust einungis 135 millj. í ágústmánuði. Það gekk á ýmsu vegna þess að ekki fékkst hærri fjárhæð. Í nóvembermánuði komu um það yfirlýsingar frá ýmsum stjórnendum samtaka námsmanna, ekki þó alls staðar frá, að nú vantaði 40 millj. ef unnt ætti að vera að standa við úthlutun lána í desembermánuði. Í þessu sambandi voru gerðar ýmsar ráðstafanir af hálfu ríkisstj. til þess að tryggja að ekki þyrfti til þess að koma, m. a. þær, að samið var við viðskiptabanka um að þeir tækju að sér víxillánin í desember, sem eru lánin til 1. árs nemanna, til þess að lánasjóðurinn gæti fremur greitt út þessi desemberlán. En svo einkennilega vildi til að það tókst að greiða út desemberlánin og þurfti alls ekki að grípa til þessa samkomulags við viðskiptabankana, sem hefði verið stórfé í þessu sambandi eða stærstur hluti af því sem talið var vanta. Þetta sýndi að af einhverjum ástæðum kom ekki til þess að vöntunin yrði raunverulega sú sem ætlað var. Staðreyndin varð önnur þegar á átti að herða vegna þess að forsendur breyttust og vegna aðhalds. Þess vegna er það að fyllsta ástæða er til að gera ráð fyrir að forsendur geti enn þá breyst og engin ástæða er til að ganga út frá því að skerða þurfi námslánahlutfallið með þeim hætti sem hér er um talað.
Ég er sjálf þeirrar skoðunar að það sé svigrúm innan laganna, innan úthlutunarreglna og með því e. t. v., ef á þarf að halda, að leita samninga við viðskiptabanka í sambandi við víxillánin. Það sér hver maður, þegar fé Lánasjóðs námsmanna er eins naumt skammtað og alls staðar þarf að vera og alts staðar er gert núna, að vitanlega er engin ástæða til þess að víxillán, sem sumpart eru greidd til baka hinn sama vetur, séu tekin af því knappa fjármagni, heldur að lánin komi þá fyrst til útborgunar þegar skylda hefur stofnast af sjóðsins hálfu, en samkv. lögunum er ekki skylda að veita víxillánin heldur heimilt. Mér er alveg kunnugt um að margir halda að þetta sé lagaskylda, en svo er ekki og það er skýrt fram tekið og það segir sig sjálft að þetta heimildarákvæði, eins og ýmis önnur heimildarákvæði í lögunum, verður einungis notað þegar fjármagn er til þess að nota það.
Þess vegna er það, að leitað mun verða leiða sem ég hef nefnt í þessu sambandi og geta leitt til mikils sparnaðar. Á það er líka að líta, svo ég dragi þetta saman, að ekki er komið í ljós hver námsmannafjölgunin verður. Námsmannafjölgunin varð svo mikil núna á vormisseri að ekki er sama ástæða til að ætla að hún verði jafnmikil í haust.
Verðbólguforsendan er í útreikningum Lánasjóðs hærri en ég veit að till. hæstv. fjmrh. reiknar með. Þetta hefur áhrif á niðurstöðuna, enda sáum við á síðasta ári að verðbólgan varð miklu lægri en ætlað hafði verið í áætlunum bæði lánasjóðs og annarra stofnana. Það er eitt af því sem getur greitt úr þessu máli.
Í þriðja lagi er inni í verðbólguforsendu útreiknings Lánasjóðs námsmanna sú staðreynd að gengisþróun er engan veginn sú sem hún hefur verið á síðustu árum. Gengið er nokkurn veginn fast og þeir sem þurfa að byggja á þeirri forsendu nota hér um bil helming alls fjármagnsins sem lánasjóðurinn fær, þ. e. lán sem fara út í erlendum gjaldeyri eru um það bil helmingur af öllu fjármagninu. Menn sjá að það atriði hefur verulega þýðingu í þessum útreikningi.
Þessi atriði vildi ég sérstaklega taka fram og þess vegna er engan veginn einhlítt að svara þeirri spurningu hv. þm. hvort ríkisstj. ætli að láta lánin skerðast með þessum hætti ofan í 60%, já eða nei. Þessu er ekki hægt að svara þannig vegna þess að svo margar forsendur fyrir útkomunni í þeim útreikningi eru enn þá óljósar og fyllstu líkur á að þær forsendur batni að mun. Ég bind því enn þá vonir við að til þessa, eða yfir höfuð skerðingar á lánsfjárhlutfallinu sjálfu, þurfi ekki að koma.
Hv. þm. vék einnig að því, hvernig hugsunin væri að spara í öðrum ráðuneytum. Ég vil taka fram að í þessu frv. eru tvö atriði sem snerta sparnað menntmrn. fyrir utan þetta og sem snerta þær 25 millj. sem getið er í grg. frv. Annars vegar er frestunin á skólaskyldunni og hins vegar er það ákvæði sem hv. fjhn. ber fram sem brtt. og ég hygg að sé nú þegar allt kemur til alls ekki ágreiningur um, að heitið geti, meðal þm. Sú breyting sem felst í því að hafa heimild til að kenna saman mjög fámennum árgöngum í efri bekkjum grunnskóla er til hagsbóta fyrir dreifbýlið. Það hefur lengi verið bent á það og fræðslustjórar t. d. hafa bent á það, að í því væri fólgin ein leið sem sameinaði hagræðingu og hagsbætur fyrir strjálbýlið vegna þess að hún dregur úr þeirri hættu að leggja þurfi niður bekkjadeildirnar, sem haldið er uppi fyrir þessa árganga í mjög fámennum skólum, og senda börnin í aðra skóla. Á síðari árum hefur það verið vaxandi krafa frá foreldrum og heimilum, bæði í borg og byggð, að börnum sé gert kleift að búa svo lengi sem unnt er heima hjá sér. Það er liðin sú tíð að menn þyrftu fyrst og fremst að byggja á heimavistum til þess að börn gætu verið í skóla. Nú eru allt aðrar aðstæður. Það er hagur bæði heimila og barna að þeim sé gert kleift að stunda nám í sínum eigin heimaskóla út grunnskólatímann. Þessi breyting stuðlar að því. Enn fremur er það talið uppeldisfræðilega og kennslufræðilega skynsamlegt, og í því efni hafa verið gerðar athyglisverðar tilraunir á síðustu árum, að steypa saman fleiri árgöngum þegar fjöldi nemendanna leyfir það. Þannig er þetta atriði sem ég hygg að ekki sé um deilt.
Hitt get ég viðurkennt, með skólaskylduna, að ég hafði því stefnt að því og hafði haft fullan hug á því að láta hana koma til framkvæmda. Ég viðurkenni að þegar svo stendur á í ríkisfjármálum sem nú er þá þurfa ráðh. að gera fleira en gott þykir og láta sig hafa það að fresta einhverjum af óskamálum sínum, en svo er um þetta atriði. Ég veit hins vegar að margir hv. þm. eru þeirrar skoðunar að það sé á allan veg æskilegt að fresta þessu ákvæði.
Ég vildi segja þetta til skýringar um þessi atriði.
Ég hygg, herra forseti, að það hafi ekki verið fleiri spurningum til mín beint og get þá ekki lokið máli mínu á öðru en að óska þess að þetta frv., þótt mönnum sýnist sitt hvað um það, geti orðið til þess að stuðla að því að koma lagi á ríkisbúskapinn.