11.05.1984
Neðri deild: 86. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5784 í B-deild Alþingistíðinda. (5094)

340. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Þá auknu miðstýringu sem hér er verið að leggja til er hvergi að finna í stefnuskrá Framsfl. og mér er ekki kunnugt um að hún sé heldur til staðar í stefnuskrá Sjálfstfl. Að öðru leyti vísa ég til þeirrar ræðu sem ég flutti hér áðan og segi því nei.