11.05.1984
Neðri deild: 86. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5785 í B-deild Alþingistíðinda. (5097)
240. mál, ábyrgð á láni fyrir Arnarflug
Frsm. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. fjh.- og viðskn. Nd. sem hljóðar þannig, með leyfiforseta:
„Nefndin hefur athugað frv. á nokkrum fundum, notið aðstoðar fjmrn. og fengið forustumenn Arnarflugs hf. til að veita upplýsingar og svara spurningum nm. Að vel athuguðu máli telur nefndin rétt að ráðh. fái þessa heimild, enda liggja fyrir upplýsingar hans og ráðuneytisstjóra fjmrn. um að ábyrgð yrði einungis veitt skv. reglum Ríkisábyrgðasjóðs sem kveður á um 70% veðmörk.
Nefndin mælir með samþykkt frv.“