11.05.1984
Neðri deild: 86. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5785 í B-deild Alþingistíðinda. (5100)

240. mál, ábyrgð á láni fyrir Arnarflug

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég skrifaði undir nál. í þessu máli með fyrirvara eins og hv. þm. Guðmundur Einarsson og hv. þm. Kjartan Jóhannsson. Ég tek undir þann fyrirvara, sem fram kom í málflutningi þeirra, að öðru leyti en því að ég mótmæli því að kaup á vélinni frá Iscargo hafi verið gerð undir þrýstingi frá ríkisstj. Hins vegar er það út af fyrir sig rétt að skv. lögum um Stjórnarráð Íslands er samgrh. t. d. „ríkisstjórnin“ í samgöngumálum og það er hugsanlegt að einhverjir einstakir ráðherrar hafi beitt þrýstingi í þessu efni, en ríkisstj. sem heild gerði það ekki.

Ég skírskota til þess fyrirvara, sem hv. þm. gerðu hér grein fyrir, að öðru leyti.