11.05.1984
Neðri deild: 86. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5788 í B-deild Alþingistíðinda. (5107)

276. mál, kjarasamningar opinberra starfsmanna

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Því var haldið fram þegar þm. voru settir undir kjaradóm að nú væri búið að ganga þannig frá málum að þeir fengju ekki meira aðkast fyrir það hvaða laun þeir hefðu. Mér sýnist hæstv. fjh.- og viðskn. hafa gengið jafntryggilega frá því og hægt er að það aðkast verði aftur upp tekið því þannig er að málum staðið að það virðist vera samdóma álit n. að það séu forréttindi að heyra undir kjaradóm, og má það furðulegt heita í ljósi þess að allir ríkisstarfsmenn féllu einu sinni undir kjaradóm, en börðust þá fyrir því að fá verkfallsrétt til að sleppa undan kjaradómi og höfðu sigur. Hef ég aldrei heyrt öllu vitlausari málflutning en hér hefur verið hafður í frammi þegar menn hafa haldið því fram að það séu forréttindi að falla undir kjaradóm. Ég er hlynntur því að hver einasti ríkisstarfsmaður, hvaða starfi sem hann gegnir, eigi þess kost að störf hans séu metin af kjaradómi og ég skil ekki hvaðan mönnum kemur það að standa gegn slíku. Er það ekki réttlátt ef menn óska eftir því? Ætla menn virkilega að fara að halda því fram að kjaradómur sé eitthvert forréttindafyrirbrigði? Ég vænti þess að menn geri sér grein fyrir því að allir ríkisstarfsmenn heyrðu undir kjaradóm. — Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri.