08.11.1983
Sameinað þing: 16. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 675 í B-deild Alþingistíðinda. (513)
29. mál, stjórn á fiskveiðum
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég skal einskorða mál mitt við þær beinu fsp. sem til mín hafa komið. Ég vil taka það fram að í þessari þáltill. er fyrst og fremst verið að tala um veiðileyfastjórn sem er í miklum mæli. Og ég er viss um að það verður ákveðið að allar veiðar verði bundnar leyfum. Það er þó sameiginleg niðurstaða í því frv. sem nú liggur fyrir í rn. og sem var sett saman af nefnd sem til þess var skipuð. En menn mega ekki tala eins og í þessu hafi ekki verið unnið og þessi mál hafi ekki verið skoðuð niður í kjölinn. Það hefur nefnd eftir nefnd gert. Og það liggur fyrir ótrúlega mikið efni um það, sem er mikil lesning. Í þessu hafa hin ýmsu samtök unnið, Fiskifélagið, Sjómannasambandið og Farmanna- og fiskimannasambandið, LÍÚ, nefndir skipaðar af rn. o.s.frv., o.s.frv.
Ég vildi aðeins víkja að því sem hv. þm. Jón Baldvin spurði beint um, þ.e. hvað ég hyggist gera varðandi kvótakerfið. Ég vil nú fyrst taka það fram að við núverandi lög hefur sjútvrh. ekki vald til að setja kvótakerfi á togarana. Það er talið að hann hafi haft vald — það hefur ekki verið vefengt — til að skipta loðnunni milli skipa, vegna þess að þar var um mjög jafna skiptingu að ræða. Það kom fram till. um að skipta síldarkvótanum milli reknetabáta á grundvelli veiði undanfarinna þriggja ára. Niðurstaða þeirra lögfræðinga sem ég leitaði til um það efni var sú, að ekki var talið að ég hefði vald samkv. lögum til að gera það. Þessi mál þurfa því að koma til meðhöndlunar hér á Alþingi ef slíkt skal upp tekið. Ég vil hins vegar taka það fram að ég legg á það áherslu núna á næstunni og mun skipa vinnunefnd.
Það sem ég legg áherslu á er að sameina kraftana, að fá tiltölulega fáa menn frá sjómönnum, frá vinnsluaðilum, frá útgerðarmönnum, frá Þjóðhagsstofnun og Fiskifélagi til að starfa saman, m.a. til að skapa vettvang fyrir það starf sem þeir eru að vinna hver á sínu sviði. Það eru nefndir starfandi hjá flestum þessara aðila, við þurfum að bera saman bækur okkar núna á næstunni, og ég mun leggja á það áherslu að skapa samstarfsvettvang fyrir alla þessa aðila. Og ég hef þegar undirbúið það.
Þessar upplýsingar um fiskstofnana voru rétt að koma fram. Þing LÍÚ er nýafstaðið, þing Fannanna- og fiskimannasambandsins er nýafstaðið, Fiskiþing er fram undan, og á öllum þessum stöðum og í öllum þessum ágætu samtökum eru þessi vandamál mjög mikið rædd þessa dagana. Það mun því ekki á skorta að reynt verði að skapa sem best samstarf á milli þessara aðila. Og ég er því algerlega sammála að ekki mun af veita að gera það. Og það mun ekki heldur af veita að skapa sem besta pólitíska samstöðu um þessi mál, því að hér er um mjög viðkvæm mál að ræða og skoðanir manna skiptast ekki eftir stjórnmálaflokkum. ég er sannfærður um það.
Við munum eftir því varðandi atkvgr. hér í þinginu t. d., þegar lagt var til að flottrollið yrði bannað, ætli það hafi ekki verið 1977, að sú till. féll með mjög naumum meiri hluta. Ýmislegt fleira í þessu efni hefur gerst í gegnum tíðina. Þegar fiskveiðilögin voru sett á sínum tíma 1976 voru mikil átök hér á Alþingi um það hvernig þau lög skyldu vera og mikið unnið í nefndum. Sjónarmið manna fóru ekki eftir pólitískum flokkum. kannske miklu fremur eftir landshlutum, og það er mjög miður í þessu efni. Að sjálfsögðu þurfum við að skapa bærilegar sættir milli aðila og landshluta. En ég geri mér fulla grein fyrir því að það er alls ekki við því að búast að allir geti verið ánægðir og allir verið sáttir. Þetta eru slík stórmál að það er ekki hægt að búast við því. Þar verður á að skera og Alþingi Íslendinga kemur áreiðanlega inn í þá mynd, hjá því verður ekki komist. enda eðlilegt að svo sé.