14.05.1984
Efri deild: 97. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5793 í B-deild Alþingistíðinda. (5132)
221. mál, jarðalög
Frsm. (Egill Jónsson):
Virðulegi forseti. Við 2. umr. þessa máls fór ég þess á leit fyrir hönd landbn. Ed. að frestað væri að taka til atkvgr. 3. till. n. á þskj. 825. Við nánari athugun hefur landbn. orðið sammála um að draga 3. brtt. sína á þskj. 825 til baka, en í till. er lagt til að orðalagi 13. gr. frv. verði breytt. Eins og fram kom er ég mælti fyrir brtt. n. var þessi brtt. flutt í tilefni af því að ekki tókst að leggja fyrir þetta Alþingi sérstakt frv. um fóðurverksmiðjur ríkisins, sem m. a. leysti af hólmi 55.–60. gr. laga nr. 45 frá 1971, um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum. Í þessum greinum eru Landnámi ríkisins og landnámsstjóra ætluð viss verkefni við rekstur þeirra þriggja graskögglaverksmiðja sem lagaákvæðin taka til.
Með því frv. sem hér er til umfjöllunar og fjalla um breytingar á jarðalögum er Landnám ríkisins, landnámsstjórn og embætti landnámsstjóra lagt niður, sbr. e-lið 14. gr. frv., og verða því aðrir aðilar að taka við verkefnum þeirra. Að athuguðu máli varð það niðurstaða að orðalag 13. gr. frv., eins og það liggur fyrir á þskj. 390, leiddi til sömu niðurstöðu og það orðalag sem nefndin lagði til með 3. brtt. sinni á þskj. 825.
Mér finnst vert, virðulegi forseti, að taka það fram að þessi lokaafgreiðsla n. fór fram óformlega, þ. e. mér var af nefndarinnar hálfu veitt heimild til að fá niðurstöðu í þetta mál með tilliti til þess sem fram kom á fundi landbn. Ed. Alþingis og með því að sú niðurstaða hefur fengist tel ég að hér sé mætt óskum nm., en að auki hef ég haft samband við allflesta nm., þó ekki alla, núna um helgina, en þetta er í samræmi við þá umfjöllun sem fram fór í landbn.