14.05.1984
Efri deild: 97. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5811 í B-deild Alþingistíðinda. (5141)
340. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum
Ragnar Arnalds:
Virðulegi forseti. Það frv. sem hér er til umr. um ráðstafanir í ríkisfjármálum hefur verið afgreitt gegnum Nd. Alþingis og er nú hér til 1. umr. Forsrh. hæstv. hefur mælt fyrir frv., en satt best að segja var það ekki forsrh. sem mælti fyrstur fyrir þessu frv. Sá sem tók að sér að mæla fyrstur fyrir þessu frv. og það á opinberum vettvangi var hv. þm. Friðrik Sophusson, varaformaður Sjálfstfl. Hann mælti fyrir frv. í viðtali sem birtist í Morgunblaðinu daginn áður en frv. var tekið hér til 1. umr. á Alþingi. Hann lýsti aðdraganda frv. í einni setningu sem óðara varð landsfræg, en hún var á þessa leið: „Þetta tók um tvo mánuði og þá fæddist lítil mús.“ Í raun og veru segir þetta sem hv. þm. Friðrik Sophusson sagði um frv. þegar í upphafi, allt sem segja þarf um þetta frv. Meðgöngutíminn var tveir mánuðir eins og alkunnugt er. (Gripið fram í: Í styttra lagi.) Í styttra lagi má kannske segja miðað við sum önnur mannanna börn, en í lengra lagi ef litið er til hagsmuna þjóðarinnar og þess að ríkisstj. ætti að koma með till. sínar í svo alvarlegum málum sem þessum strax og hún gerði grein fyrir þeim vanda sem við væri að glíma. Nei, meðgöngutíminn varð töluverður og það sem gerðist var akkúrat þetta: Það fæddist lítil mús.
Kjarni þessa frv. er sá að ríkisstj. tekur alls ekkert á vandanum. Hún treystir sér ekki til þess að stoppa í þetta gat upp á tvo milljarða, sem hún taldi að við blasti í febrúarmánuði, heldur grípur það neyðarúrræði að taka erlend lán í stórum stíl til þess að komast ekki í greiðsluþrot. En auðvitað fyllir hún ekki í gatið með því. Það er mesti misskilningur, sem fram hefur komið hjá mörgum ræðumanninum sem um þennan vanda hefur fjallað, að gatið væri fyllt með erlendum lántökum. Gatið verður alveg jafn stórt eftir sem áður. Það verður þessi milljarðs halli á rekstri ríkissjóðs og síðan forðast ríkissjóður greiðsluþrot með því að taka erlend lán.
Þessi hlið málanna er athyglisverð fyrir þá sök að meðan fyrri stjórn var við völd var það algengt að áróðursmenn tækju svo til orða að það væri ekki að furða þótt þetta baslaðist allt áfram hjá þeim. Þeir tækju bara erlend lán þegar á þyrfti að halda og fylltu upp í það sem á vantaði með lánum. En sannleikur málsins er sá að það er hvorki hægt að fylla upp í ríkissjóðsgat hvað reksturinn varðar með innlendum né erlendum lántökum. Gatið hverfur ekkert við það. Það er áfram til staðar og þess vegna er það um leið kjarni málsins að þegar ríkissjóður kom út með afgangi í rekstri öll árin 1980, 1981 og 1982, með verulegum afgangi öll árin, gat ekki eðli málsins samkvæmt verið neitt gat á ferðinni sem fylla þyrfti upp í með erlendum lánum. Það lá í hlutarins eðli að menn voru að segja ósatt þegar þeir stilltu málum svo upp. Niðurstaða ríkisreiknings hlaut að segja allan sannleikann, að það var ekkert gat sem þurfti að fylla upp í með erlendum lánum.
Halli ríkissjóðs hefur lengi verið fyrirsjáanlegur. Þegar á s. l. ári var ljóst að fjárhagur ríkissjóðs hlyti að vera erfiður á þessu ári. Ástæðan var sú að þegar eftir að þessi ríkisstj., sem nú situr, tók við virtist beinlínis stefnt á það að á árinu 1983 yrði talsverður rekstrarhalli hjá ríkissjóði. Hver ákvörðunin rak aðra þar sem teknar voru ákvarðanir um stórfelld útgjöld upp á hundruð milljóna króna án þess að nokkrar tekjur kæmu þar á móti og eins var það að tekjur ríkissjóðs voru felldar niður hver af annarri án þess að gerð væri tilraun til að láta eitthvað koma þar í staðinn.
Sem dæmi má nefna að skömmu eftir að þessi ríkisstj. tók við voru gerðar breytingar í skattamálum sem samtals höfðu í för með sér um 400 milljón króna aukaútgjöld fyrir ríkissjóð. Þar kom ekkert annað á móti. Niðurgreiðslur voru líka auknar í tíð þessarar stjórnar á seinasta ári án þess að nokkrir peningar væru til fyrir þeim. Þvert á móti var sýnt að niðurgreiðslur yrðu frekar að dragast saman ef eitthvað væri og sérstaklega að á vantaði um greiðslu á vaxtagjöldum, en ríkisstj. tók ákvarðanir um verulega miklu meiri niðurgreiðslur en innistæða var fyrir og án þess að nokkrar tekjur kæmu þar á móti.
Það var eins og vegamálin. Fráfarandi stjórn dr. Gunnars Thoroddsen hafði gert ráð fyrir því að innheimt væri í Vegasjóð nokkuð á annað hundrað milljónir kr. með sérstakri skattlagningu og hafði miðað vegáætlun sína við það. Alþingi hafði að vísu ekki afgreitt þessa sérstöku skattlagningu þar sem ekki entist tími til þess, en málið hafði farið í gegnum þrjár umr. í Ed. og verið samþykkt þar og reyndar einnig í gegnum tvær umr. í Nd. Það lá því fyrir að fullur vilji var hjá Alþingi til þess að samþykkja þessa skattlagningu í þágu Vegasjóðs og þess vegna ákvað ríkisstj. að vegáætlun sú, sem undirbúin hafði verið af fjvn., skyldi standa.
En hvað gerði sú stjórn sem við tók? Jú, hún hélt sig við útgjöldin sem fráfarandi stjórn hafði ákveðið, en hún sleppti tekjuöfluninni. Hún ákvað að skatturinn skyldi ekki lagður á. Það skyldu bara tekin erlend lán upp í það gat sem þarna var myndað. Auðvitað bar stjórninni að gera annaðhvort, að afla tekna á móti sem raunverulega kæmu inn sem rekstrartekjur hjá ríkissjóði eða að skera niður vegáætlunina í samræmi við tekjurnar. En hvorugt var gert. Þarna var vísvitandi myndað gat hjá ríkissjóði upp á nokkuð á annað hundrað milljónir kr.
Þegar allar þessar breytingar á fjárlögum fyrir árið 1983 eru lagðar saman kemur út gat af völdum núverandi ríkisstj. á fjárlagaárinu 1983 upp á rétt um 800 millj. kr. Við höfum enn ekki séð ríkisreikninginn fyrir árið 1983 og ég get ekki neitt fullyrt um það hver niðurstaða hans verður, en mig hefur lengi grunað að rekstrartap ríkissjóðs á árinu 1983 yrði ekkert mikið meira en næmi akkúrat þessum 800 millj. kr. sem voru á ábyrgð þessarar nýju ríkisstjórnar. Greiðsluafkoman var að vísu óhagstæð sem nam rétt um 1100 millj. kr., en reglan hefur verið mörg undanfarin ár að reksturinn hefur raunverulega komið miklu betur út en greiðsluflæði ríkissjóðs. Það eru þarna viss útgjöld sem tilheyra árinu 1984 en komu til gjalda á árinu 1983, eins og t. d. útflutningsuppbætur upp á 50 millj. kr. Ég hygg því að staðan á árinu 1983 rekstrarlega séð sé skárri en greiðslustaðan gaf til kynna og sennilega ekkert mikið meiri en nam útgjöldunum sem ekki var aflað tekna fyrir eða skattalækkunum sem voru þess eðlis að ekkert kom í staðinn.
Sem sagt, þarna varð til stórfellt gat hjá ríkissjóði og það er þetta gat sem hefur verið að stækka, víkka út, í meðförum núverandi stjórnar því að hún var ekki aðeins örlát á ýmiss konar skattalækkanir í þágu atvinnurekstrar á árinu 1983 heldur hefur hún haldið þar áfram af fullum krafti.
Skattar á skrifstofu- og verslunarhúsnæði hafa t. d. verið lækkaðir. Þar hefur atvinnureksturinn sloppið við verulegar byrðar en ríkissjóður fengið á sig enn eitt gatið. Hér hafa verið samþykkt lög sem fela í sér verulegar skattaívilnanir í þágu hlutabréfaeigenda, í þágu þeirra sem fjárfesta í atvinnurekstri. Allt hefur þetta orðið til þess að auka hallann hjá ríkissjóði.
Nú seinast fyrir helgina, á föstudaginn var, vorum við alþm. einmitt hér í hv. Ed. að fjalla um frv. ríkisstj. sem fela í sér stórfellda lækkun á skattgreiðslum banka og lánastofnana, lækkanir sem nema um 120 millj. kr. að meðaltali á ári næstu þrjú árin. Þarna er um að ræða lækkanir sem ekkert kemur á móti. Þarna er spilað út 120 millj. án þess að fjmrh. og ríkisstj. hans geri minnstu tilraun til þess að skera niður útgjöld á móti eða afla annarra tekna. Þarna var svo sannarlega á ferðinni sýnikennsla í því hvernig á að koma götum á ríkissjóð. (Gripið fram í.) Hvað sagði nú hæstv. fjmrh.? Ég heyrði það ekki. Jæja, við geymum það. Þarna var sem sagt um ágæta sýnikennslu að ræða fyrir komandi ráðamenn fjármála hér á landi hvernig þeir eigi að koma öllu á kaldan klaka með því að spila út tekjustofnum ríkisins án þess að láta þar nokkuð koma á móti. Þetta einkennilega örlæti hæstv. fjmrh. og núv. ríkisstj. í garð ákveðinna þjóðfélagshópa og stofnana, bæði atvinnurekenda, fólks sem hefur efni á því að fara í ferðalög til útlanda, þeirra sem eiga skrifstofu- og verslunarhúsnæði eða nú síðast í þágu bankanna, verður sannarlega holl lexía fyrir menn þegar þeir standa frammi fyrir sívaxandi hallarekstri ríkissjóðs.
Menn spyrja að sjálfsögðu stjórnarandstöðuna að því hvað hún vilji gera þegar svo stendur á að fyrirsjáanlegur er halli. Ég hef nú þegar nefnt ýmislegt það sem við hefðum hagað á annan veg ef við hefðum ráðið. Við hefðum ekki samþykkt allar þessar skattalækkanir á atvinnureksturinn. Við hefðum ekki fallist á lækkun skatts á skrifstofu- og verslunarhúsnæði og jafnvel þótt við hefðum látið plata okkur til þess á fyrra stigi hefðum við breytt um afstöðu, alveg hiklaust, þegar gatið stóra kom í ljós í febrúarmánuði. Það gæti hæstv. fjmrh. gert enn þann dag í dag. Hann gæti tekið ákvörðun um að vera ekki að lækka skatta á skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Hann gæti tekið ákvörðun um að vera ekki að lækka skatta á bankana. Hann gæti lagt að nýju á álag á ferðagjaldeyri. En hann kærir sig ekkert um að gera það vegna þess að hann er búinn að ákveða að það eigi bara að vera dágóður halli á ríkissjóði, hann sé búinn að fá það vel inn á undanförnum árum að það geri ekkert til. Það er að vísu mesti misskilningur. Þó að staða ríkissjóðs hafi verið allþokkaleg á undanförnum þremur árum er mjög stórfelld skuld við Seðlabankann og ríkissjóður allskuldugur líka hvað erlend lán varðar. Mundi því áreiðanlega ekki veita af þó að við fengjum svo sem eins og fimm ára tímabil nú til viðbótar þar sem væri einhver afgangur hjá ríkissjóði á hverju einasta ári og gæti gengið upp í að greiða niður lán og skuldir.
En ég vil svo sannarlega ekki að mál mitt verði skilið svo að það eina sem hæstv. fjmrh. geti gert sé að hækka þá skatta sem hann er búinn að lækka á atvinnureksturinn og bankana o. s. frv. Hann getur líka gert margt annað. Hann getur t. d. ákveðið að eyða ekki 100 millj. kr. í nýja flugstöð. Þar er fé sem má taka til að lækka útgjöldin hjá ríkissjóði. Hann getur líka ákveðið það að útgerðarmenn ættu að borga lán sem þeir tóku og fengu ábyrgð ríkissjóðs á fyrir tveimur árum með þeim yfirlýsta skilningi allra stjórnmálamanna sem að því stóðu að útgerðarmenn ættu að borga þetta lán og ábyrgð ríkissjóðs væri ekki í því skyni að hann greiddi lánið heldur einungis til að auðvelda lántökuna. Ef nú væri ákveðið að útgerðarmenn stæðu undir sínum skuldum og borguðu þetta lán — (Gripið fram í: Er það loðnulánið?) Það er loðnulánið, já. (Gripið fram í: Ég vil bara að það komi fram.) Jú, akkúrat. Þetta er það sem nefnt hefur verið manna á milli loðnulán. Ég veit ekki hvort hið opinbera, staðfesta heiti lánsins er það, ég man það nú satt að segja ekki. En við skiljum hver annan og vitum að þarna var um að ræða lántöku í þágu útgerðar á þeim tíma þegar engin loðna veiddist og útgerðin stóð illa að vígi, sérstaklega þeir sem áttu þessa stóru báta sem aðallega voru ætlaðir til loðnuveiða. Þá var óhjákvæmilegt að taka lán og gera þeim kleift að fleyta sér í gegnum erfiðleikana. En nú er loðna farin að veiðast á nýjan leik og þeir eiga alveg skilyrðislaust að standa undir þessu láni. Það er engin ástæða fyrir ríkissjóð að taka það á sig. Þarna er enn ein stór upphæðin sem mundi muna mikið um. (Gripið fram í: Loðnugat.) Þarna er sem sagt loðnugat, já. Það loðnugat eiga þeir að taka á sig sem það eiga. (Gripið fram í.) Ég vil bara svara þessum spurningum þannig að þetta gat var ekki orðið gat á þeim tíma þegar ég var fjmrh. Þetta gat verður fyrst gat þegar núv. hæstv. fjmrh. tekur það á sig að standa skil á þessari upphæð í stað þess að láta útgerðarmennina gera það. Götin eru nefnilega ekki nein eilífðarfyrirbæri og það skiptir dálitlu máli hvort þau eru búin til og hvort stoppað er upp í þau á réttum tíma.
Staðreyndin er sú að þegar við ræðum hér um göt og orsakir þeirra erum við að tala um mál sem við vissulega höfum ekki fullt yfirlit yfir. Ég hygg að gatið hjá ríkisjóði sé töluvert miklu stærra en það sem búið er að gera grein fyrir nú þegar. Ég er sannfærður um að öll kurl eru ekki komin til grafar. Ég bara nefni það dæmi að hæstv. fjmrh. lét afgreiða fjárlögin þannig að öll ráðuneyti ættu að spara sem svaraði 2.5% í launum. Ég hef fullar heimildir fyrir því og ágæta vissu að það er ekki á nokkurn hátt verið að framkvæma þetta fyrirheit fjárlaganna. Það er varta minnsta tilraun gerð til þess í rn. að spara þessi 2.5% sem átti að spara. Þarna er enn eitt gatið á ferðinni sem verður til þegar ekki er framkvæmt það sem stendur í fjárlögunum. Ég hafði satt að segja aldrei frú á því að til stæði að framkvæma þetta fyrirheit.
Hv. þm. Friðrik Sophusson lýsti því líka yfir í framsöguræðu sinni fyrir þessu frv., sem mun hafa verið haldin á fundi sjálfstæðismanna einhvers staðar á höfuðborgarsvæðinu, að það vantaði í húsnæðislánakerfið, þrátt fyrir þetta frv., 300–400 millj., eins og hann reyndar orðaði það, „ef standa á við digrar yfirlýsingar félmrh.“ Ég tek það fram að þetta eru óbreytt orð Friðriks Sophussonar, „ef standa á við digrar yfirlýsingar félmrh.“ Það er greinilegt að loforðin, sem hæstv. félmrh. hefur verið að gefa fyrir hönd ríkisstj., þykja ekki alls staðar merkileg á ríkisstjórnarbænum, og greinilega er verið að tala í nokkrum óvirðingartón um vanda húsbyggjenda sem hæstv. félmrh. mun hafa verið að gefa þessar digru yfirlýsingar um að yrði leystur.
Hv. þm. Friðrik Sophusson bætti því við að óleystur vandi útgerðarinnar, hvað lausaskuldir hennar snertir, næmi um 400–500 millj. kr. Þarna er enn eitt gatið sem fyrirsjáanlegt er að með einhverjum hætti verði að fylla í, að vísu ekki ríkissjóðsgat vegna þess að ekki verður vandi útgerðarinnar leystur með greiðslu úr ríkissjóði, en sennilega lánsfjárlagagat.
Um frv. ætla ég ekki að fjölyrða margt á þessu stigi, enda gefst tækifæri til að ræða það nánar við 2. umr. málsins eftir nánari athugun í nefnd. Ég vil þó segja alveg eins og er að það er makalaus niðurstaða sem í þessu frv. felst. Gerð er tilraun til þess að spara í þágu ríkissjóðs. Hverjir eru það sem helst eru látnir taka þann sparnað á sig? Í fyrsta lagi eru það heimilin þar sem munnar eru flestir og þar sem landbúnaðarvörur eru mest borðaðar. Það er sem sagt ætlunin að leysa stóran hluta af þessum vanda með því að hækka búvörur í verði, hækka þær vörur sem mannmörg og barnmörg heimili nota hvað mest. Það er því ljóst að einn stór þáttur í þessari fjáröflun lendir af fullum þunga á fátækum heimilum.
Aðrir, sem eiga að taka þarna á sig stóra byrði, eru sjúklingarnir. Það er annar hópurinn sem talinn er sérstaklega hæfur til þess að bera byrðarnar sem stafa af því að verið er að lækka skatta á atvinnurekstrinum og bönkum. Þeir fá minni sjúkradagpeninga en áður hefur verið. Þó að í frv. sé að vísu reynt að láta í veðri vaka að það séu atvinnurekendur sem taki þessa byrði á sig þá er það mesti misskilningur því að þeir sem taka þetta á sig eru ekki síður verkafólk sem er nýbyrjað í vinnu og er því ekki komið með þann rétt sem fólk fær eftir að hafa verið hjá sama atvinnurekenda í ákveðinn tíma og fær því veikindi sín greidd af þeim atvinnurekanda. Sama gildir um húsmæðurnar. Þær taka á sig þessa réttindaskerðingu mjög almennt og reyndar námsmenn líka sem ekki hafa aflað sér þess réttar sem fólginn er í veikindarétti skv. samningum. Sá hópurinn, sem verður fyrir hvað mestri skerðingu, eru börnin vegna stóraukins tannviðgerðarkostnaðar. En þó tekur alveg steininn úr þegar kemur að námsmannahópnum. Þar er greinilega á ferðinni langsamlega rosalegasta kjaraskerðingin sem í þessu frv. er fólgin.
Ég þarf ekki að orðlengja um þennan þátt málsins. Hann hefur verið margræddur á opinberum vettvangi. Ég var viðstaddur fund í fjh.- og viðskn. Ed. Þar staðfesti framkvæmdastjóri Lánasjóðs ísl. námsmanna að það væri nákvæmlega rétt reiknað, sem áður hafði fram komið, að námslán á síðari hluta þessa árs mundu lækka úr 95% umframfjárþarfar námsmanna, eins og lánin voru greidd á fyrri hluta ársins, og niður í 60%. Sem sagt, langt, langt niður fyrir það sem verið hefur á undanförnum árum.
Líklega þurfum við að fara meira en áratug aftur í tímann til þess að finna tímabil þegar námslán voru aðeins 60%. Mjög lengi var þessi prósenta milli 70-80%. Og það get ég upplýst hér að þessir útreikningar framkvæmdastjóra Lánasjóðs ísl. námsmanna voru ekki hraktir á þessum fundi. Þeim var ekki einu sinni mótmælt af talsmönnum stjórnarmeirihlutans, enda voru þær lagðar svo skýrt og augljóslega fram að þar gat ekkert dulist.
Ég spurði framkvæmdastjóra Lánasjóðs ísl. námsmanna um það á fundinum hvort það væri ekki frekar á hinn veginn að þetta yrði aldrei meira en 60% umframfjárþarfar, en gæti orðið minna ef t. d. námsmönnum fjölgaði meir en áætlanir gerðu ráð fyrir, sem reyndar er útlit fyrir, og ef verðbólga yrði meiri en ráð hefur verið fyrir gert í útreikningum, sem líka er allt útlit fyrir. Hann tók mjög undir það og sagði: Þetta er alveg laukrétt. Það er útlit fyrir að námsmönnum fjölgi um 2–3% meira en útreikningarnir gera ráð fyrir og það er útlit fyrir að verðbólgan verði a. m. k. 4–5% meiri en útreikningar gera ráð fyrir. Sem sagt, þá verður fjárvöntunin meiri og ef menn ætla að standa við það sem stendur í þessu frv. að ekki megi eyða til Lánasjóðs ísl. námsmanna hærri upphæð en nefnd er í frv. er alveg ljóst að allt stefnir í það að hlutfall lána af umframfjárþörf námsmanna verði lægra en 60%, sennilega milli 50 og 60%.
Sannarlega er þetta makalaus niðurstaða af því þegar ríkisstj. tekur sig til að spara, hvar hún kemur niður, hvar hún finnur þá aðila í þjóðfélaginu sem helst eru taldir geta staðið undir að bjarga fjárhag ríkissjóðs. Þó er kannske makalausasta niðurstaðan af öllu makalausu að hún skuli gera ráð fyrir því að erlend lán verði tekin til þess að greiða barnsmeðlög í landinu, til þess að bjarga fjárhag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem aldrei hefur tekið lán, hvorki innlend eða erlend. Hann er nú í fyrsta skipti látinn taka lán, erlent lán til þess að geta gert upp skuldir sveitarfélaga við ríkissjóð vegna barnsmeðlaga. Þessi uppfinning núv. ríkisstj. er einstæð í allri Ístandssögunni. Erlent lán hefur áreiðanlega aldrei verið tekið í þessum tilgangi.
Sama má raunar segja um kaupgreiðslur til opinberra starfsmanna. Ég þekki það ekki að erlend lán hafi verið tekin í því skyni. Ég veit heldur ekki til þess að erlend lán hafi verið tekin til þess að útvega fé í Byggingarsjóð ríkisins þó að kannske mætti segja að það væri þó nær lagi og ekki alveg jafn forkastanlegt eða fráleitt. En ég hygg að það hafi aldrei fyrr verið gert og að ríkisstj. slái öll met í þessum efnum.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fjölyrða um þann alræmda bandorm sem hér er til umr. því að ég ætla að stuðla að því með öðrum hv. þm. Ed. að þessi fundur þurfi ekki að standa allt of lengi. Langar ræður eru ekki endilega neitt betri en stuttar ræður. En ég verð bara að segja alveg eins og er að hv. þm. Friðrik Sophusson hitti svo sannarlega naglann á höfuðið þegar hann tók það fram í opinberu blaðaviðtali að með þessu frv. væru allar horfur á að Sjálfstfl. kæmi buxnalaus til næstu kosninga.