14.05.1984
Neðri deild: 89. fundur, 106. löggjafarþing.
Sjá dálk 5839 í B-deild Alþingistíðinda. (5219)
55. mál, tollheimta og tolleftirlit
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Frv. það til l. um breyt. á lögum um tollheimtu og tolleftirlit, sem hæstv. fjmrh. hefur nú gert grein fyrir, er komið frá Ed. Það hefur að minni hyggju að geyma ýmis ákvæði sem horfa til bóta og eru sjálfsögð, m. a. það ákvæði í 1. gr. að samræma ákvæði um landhelgi Íslands þeirri skilgreiningu sem þegar er í lögum nr. 41 frá 1979 um landhelgi Íslands.
Í 2. gr. e: rætt um að fjölga tollhöfnum landsins nokkuð. Það er talað um að fjölga þeim um sex og þar sem þrjár af þeim eru á Vesturlandi og einmitt þær hafnir sem þm. Vesturl. hafa nokkrum sinnum á undanförnum þingum óskað eftir að teknar væru í tölu tollhafna, þ. e. Grundartangi, Rif og Grundarfjörður, þá leyfi ég mér að fagna því að þessir staðir eru nú teknir upp í stjfrv. sem væntanlega verður að lögum áður en þingi lýkur.